Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
0 - 0
HK
HK
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
0. mín
Dómarinn
Arnar Ingi Ingvarsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Mikael Ívan Axelsson. Dómaraeftirlitsmaður er Jóhann Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Spámaðurinn
Við fengum Alexander Rafn Pálmason, sem er á leið til Nordsjælland í Danmörku, til að spá í leikina. Fylkir 2 - 2 HK (19:15 í kvöld) Þetta verður góður leikur HK kemst 2-0 yfir en Fylkir hendir í comeback og nær jafnteflinu.
0. mín
HK ekki að ná að tengja sigra
HK-ingar hafa í raun skipst á að vinna og tapa allt tímabilið hingað til. Þeir náðu síðast að tengja saman sigra í byrjun móts þegar þeir unnu fyrstu tvo leiki sína. Þessi óstöðugleiki skilar þeim þó í 5. sæti deildarinnar eins og er en eru sex stigum frá topp sætinu. Eins og kom fram hér fyrir neðan er Dominik Radic einn af tveimur sem sitja á toppi markaskorara listans með sex mörk.
Mynd: HK
0. mín
Fylkismenn á góðu róli
Fylkir hafa unnið tvö leiki í röð gegn Gróttu og Grindavík, og sitja eftir það í 2. sæti deildarinnar aðeins einu stigi á eftir topp liði Þróttar. Guðmundur Tyrfingsson er einn af tveimur mönnum sem hafa skorað mest í deildinni hingað til eða sex mörk en hann deilir toppsætinu með HK-ingnum Dominik Radic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Lengjudeildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og HK í 11. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Tekk Vellinum í Árbæ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.