0. mín
Ægir
Nenad hefur sótt tvo sigra og eitt jafntefli með Ægisliðinu í fyrstu tíu leikjum mótsins en liðið er eins og er í 11. sæti deildarinnar og ljóst er að þessi leikur sé gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð eftir að hafa unnið tvö í röð þar á undan.

0. mín
Grindavík
Grindavík hefur aðeins sótt einn sigur í fyrstu níu leikjum sínum í deildinni og eru sem stendur með átta stig í 10. sæti deildarinnar. Grindavík er það lið sem hefur séð fæst mörk í leikjum sínum en aðeins hafa verið skoruð 21 mark í þeirra leikjum. Í síðustu umferð náði liðið þó í 2-2 jafntefli gegn HK í Kórnum.

0. mín
Dómarateymi kvöldsins
Stefán Ragnar Guðlaugsson er aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Breki Sigurðsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

0. mín
Stakkavíkurvöllur tekur vel á móti ykkur!
Sæl öll og gleðilegan föstudag!
Ég bið lesendur hjartanlega velkomna í þráðbeina textalýsingu héðan úr okkar allra bestu Grindavík. Fram undan er leikur Grindavíkur og Ægis í 11. umferð Lengjudeildar karla.



