Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
ÍR
ÍR
0 - 1
Afturelding
Afturelding
0 - 12' Aron Elí Sævarsson (víti)
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Þetta var ekki skemmtilegur leikur en skýrsla og viðtöl á leiðinni.
93. mín
Maggi öskrar ,,búið dómari".
92. mín
Gunnar Bergmann er komin í hornið og missir svo boltann, Enes senior er brjálaður og öskrar á aðstoðardómarann.
Afturelding
91. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtSævar Atli Hugason
91. mín
Afturelding fær aukaspyrnu og Aron er lengi að ákveða sig.
90. mín
+3 í uppbótar.
90. mín
Föst fyrirgjöf inn í teig Aftureldingar en þeir skalla burt.
89. mín
ÍR er að herja á vörn Mosfellinga og gestirnir eru þéttir til baka.
88. mín
Nálægt
Afturelding tekur boltann af ÍR og Kooistra lætur vaða frá hálflínunni þar sem Vilhelm er langt frá teignum, skotið fer yfiar markið samt.
88. mín
Ólíver Elís stendur og tekur aukaspyrnuna, hann tekur hana lága og Afturelding er ekki í erfiðleikum að koma boltanum burt.
Afturelding
87. mín
InnGunnar Bergmann Sigmarsson
ÚtÓðinn Bjarkason
86. mín
Óliver Elís étur Holtan í skyndisókn.
85. mín
Fimm breytingar hjá ÍR en Maggi gerir enga, áhugavert.
ÍR
84. mín
InnHákon Dagur Matthíasson
ÚtKristján Atli Marteinsson
84. mín
Afturelding er að fara detta í skyndisókn en Halddór Atli rétt nær að koma boltanum burt.
83. mín
Ólíver Elís lætur vaða langt frá og skotið fer beint í varnarmann, smá glórulaust að mínu mati.
82. mín
ÍRingar reyna sitt besta að koma boltanum í boxið en vörnin er þétt hjá Aftureldingu.
77. mín
Dauðafæri
Boltinn dettur niður í teignum hjá Aftureldingu en Orri sparkar boltanum yfir markið.
76. mín
Boltinn skoppar inn í teignum og fer í Axel, ÍRingar vilja hendi og víti, erfitt að sjá þetta frá mínu sjónarhorni.
ÍR
76. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtGuðjón Máni Magnússon
ÍR
76. mín
InnHalldór Atli Kristjánsson
ÚtÍsak Atli Atlason
ÍR
76. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtHrafn Hallgrímsson
Afturelding
76. mín
Gult spjald

Birkir Már Sævarsson

ÍR er að komast í skyndisókn og Birkir stoppar manninn harkalega, tekur sinn eigin mann líka niður. Hann vissi að hann væri að fara í bókina eftir þetta.
74. mín
Birkir reynir að senda inn í teig en ÍR ná að koma boltanum burt.
72. mín
Orri fer með hendurnar í hnakkan hjá Sævari beint fyrir framan dómarann, hann dæmir ekki neitt. Sævar kvartar smá og ég skil hann, leit ekki út fyrir að vera þægilegt.
71. mín
Óðinn kemur með háa sendingu inn í teig en hún er ekki góð og fer í markspyrnu.
70. mín
Rangstaða á ÍR.
69. mín
Afturelding með sókn en þeir missa svo boltann og ÍR fær markspyrnu.
68. mín
Aron Elí er að fara að taka innkast, boltinn fer framhjá honum og hann þykist ekki sjá boltann, skondið. Aron segir ,,hann vippar honum yfir mig" sem er ekki alveg rétt.
67. mín
ÍR er að reyna að brjóta vörn Aftureldingar en það virkar ekki neitt. Maggi er búin að læsa þessu.
63. mín
Færiii
Boltinn skoppar í teignum, Stefán reynir hjólhestaspyrnu sem heppnast ekki, boltinn dettur á Orra sem tekur volley rétt yfir markið.
ÍR
59. mín
InnStefán Þór Pálsson
ÚtÓliver Andri Einarsson
Maðurinn sem skoraði tvennu í síðasta leik liðanna er mættur á völlinn.
57. mín
Óðinn kemst upp vinstri kantinn, reynir að senda inn í teig en ÍR sparkar boltanum fyrir hornspyrnu, sem Sævar tekur en Vilhelm grípur boltann.
56. mín
Dauðafæri!!!!!
Birkir keyrir upp hægri kantinn og sendir boltann fram fyrir markið beint á Óðinn Bjarkason sem er galopin með allt markið fyrir framan sig og hann skýtur yfir markið. Jahérna! Þetta átti að vera 2-0.
56. mín
Orðið smá rólegt.
52. mín
Bjartur sendir Holtan i gegn en boltinn er aðeins of fastur, þarna var gott tækifæri fyrir skyndisókn.
51. mín
Emil Nói reynir að koma boltanum í gegn en Axel sparkar boltanum burt.
48. mín
ÍR tekur hornið stutt og boltinn fer út í annað horn og það horn er skallað burt af fyrsta manni.
48. mín
Axel og Aron Elí í vandræðum þegar boltinn er að detta í gegnum vörnina, fá horn á sig.
47. mín
Hornið hjá ÍR kemst ekki framhjá fyrsta manni.
47. mín
Ísak kemur með sendingu inn í boxið en Andi sparkar honum fyrir horn.
46. mín
Aron Elí lætur vaða langt frá teignum, skotið fer rétt yfir markið.
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja, sjáum hvernig þeir svara eftir svona leiðinlegan fyrri hálfleik.
45. mín
Hálfleikurinn er mættur, þetta var nú frekar leiðinlegt. En við vonum eftir skemmtilegri seinni hálfleik.
44. mín
Nálægt
Emil tekur aukaspyrnuna, skotið fer framhjá stönginni, ekki langt frá.
43. mín
Aukaspyrna fyrir ÍR á hættulegum stað, Axel hrindir Orra niður og dettur ofan á hann. Bekkurinn hjá ÍR vill gult og ég er sammála.
42. mín
Nei það gera þeir sko ekki.
41. mín
Ein önnur hættulega aukaspyrna fyrir Aftureldingu, sjáum til hvort að þeir ná að gera eitthvað núna.
39. mín
Ísak Atli fer í skyndisókn en er stoppaður af Bjarti og brýtur svo á honum.
37. mín
Óðinn tekur hættulega aukaspyrnu, ÍR ná að koma boltanum burt. Aron Elí fer niður í teignum og Maggi er brjálaður yfir því og vill fá annað víti, segir að hann hafi verið togaður niður. Jóhann lætur hann heyra það og þeir rökræða í nokkar sekúndur.
35. mín
Kristján Atli kemur með sendingu inn í teig sem Mosfellingar eiga erfitt með fyrst en þeir ná svo að skalla honum burt.
33. mín
ÍR reynir að koma með háa sendingu inn í boxið sem fer beint í markspyrnu.
ÍR
31. mín
Gult spjald

Óliver Andri Einarsson

30. mín
Óðinn lendir á bakinu hjá Kristjáni Atla í góðar 5 sekúndur, skondið.
28. mín
Sævar Atli tekur horn sem fer beint á Aron Elí sem skallar yfir markið.
26. mín
ÍR tekur stutt horn sem fer ekki neitt.
25. mín
Sending yfir vörn Aftureldingar sem Óliver er að reyna að komast í en Andi Hoti sparkar boltnaum í horn.
21. mín
ÍR hefur klárlega verið meira með boltann en samt hafa þeir ekki náð almennilegu skoti. Afturelding hefur ekki gert neitt svakalegt og liggja þéttir til baka.
20. mín
Emil Nói reynir skot langt frá en skotið fer framhjá markinu.
19. mín
ÍR kemur með sendingu inn í boxið en Arnar Daði grípur boltann.
18. mín
Emil Nói kemur með háa sendingu inn í teig á Orra sem kemur með misheppnaða og of fasta sendingu, sem fer út af.
17. mín
Sigurður Karl reynir að koma boltanum í gegnum vörn Mosfellinga en boltinn er of fastur og fer í markspyrnu.
16. mín
Holtan fellur niður í teignum en Sveinn segir nei og segir honum að standa upp, ég er sammála þessu.
15. mín
Sveinn dómari dæmir brot á ÍR, Jóhann Birnir er alls ekki sáttur með þennan dóm.
14. mín
Guðjón Máni keyrir upp vinstri kantinn en nær ekki að komast framhjá Georg og endar svo að reyna komast framhjá honum en missir boltann í staðinn.
10. mín
Hár bolti inn í teig ÍR, skallað burt en beint á Holtan sem tekur volleyið en skotið fer langt yfir markið.
9. mín
Axel er tekin niður af Ísaki Atla, Sveinn dæmir brot.
8. mín
Afturelding fær aukaspyrnu ekki langt frá, Óðinn kemur með sendingu inn í boxið en ÍRingar skalla burt.
5. mín
Þetta byrjar frekar rólega ef við pælum ekki í markinu. En það er ofbirta í augun, sólin speglast af skóm Sveins dómara, sá hefur pússað skóna sína.
Afturelding
2. mín
MAAAARK!

Aron Elí Sævarsson

Fyrirliðinn tekur þetta, beint í neðra vinstra hornið. Vilhelm fer í rétt horn en nær honum ekki.
2. mín
Víti
Sýnist Holtan vera tekin niður í boxinu, dómarinn er ekki langi að hugsa.
1. mín
Gestirnir byrja þessa veislu.
0. mín
Áki Sölva spáir
ÍR 0 - 6 Afturelding Afturelding notar fyrri leik liðanna sem bensín og valta yfir þennan leik. Aron Elí skorar 2 mörk með skalla eftir horn. Elmar Kári setur fullkomna þrennu og Bjartur skorar úr langskoti.
0. mín
Dómaratríóið
Sveinn Arnarsson verður með flautuna, Óliver Thanh Tung Vú og Nour Natan Ninir verða með flöggin.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Staðan í deildinni
Heimamenn sitja í 9. sæti með 11 stig, 3 sigrar, 2 jafntefli og 6 töp. Í síðustu umferð töpuðu þeir grannaslagnum gegn Leikni 2-1. Víðir Freyr Ívarsson er markahæsti leikmaður ÍR í Lengjudeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Afturelding situr í öðru sæti með 22. stig, einu stigi frá fyrsta sæti. 7 sigrar, 1 jafntefli og 3 töp hingað til á mótinu. Í síðustu umferð spilaði Afturelding gegn Ægi og unnu þeir 8-1, Holtan skoraði þrennu. Holtan er markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar með 8 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
11 marka leikur í byrjun móts
Afturelding og ÍR spiluðu gegn hvor öðrum í byrjun móts á heimavelli Aftureldingar. Þann leik vann ÍR 4-7. Ír skoraði 4 mörk á 17 mínútna kafla í fyrri hálfleik, Stefán Pálsson og Emil Nói skoruðu báðir tvennu í leiknum. Þetta var mikið sjokk fyrir heimamenn.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Lengjan kallar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þráðbeina lýsingu frá leik ÍR og Aftureldingar á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti. Það er komið að 12. umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.