Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Adolf Daði Birgisson 10'1 - 01 - 114' Sindri Þór Ingimarsson1 - 236' Örvar EggertssonÍsak Óli Ólafsson 42'2 - 2
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
Jafntefli loka niðurstaðan í þessum bráðskemmtilega leik. Ótrúlegt að það kom ekki sigurmark í þennan leik. Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
Horn fyrir Stjörnuna, mögulega síðasti séns.
93. mín
Gullið tækifæri!
Stjarnan í mjög góðri sókn og leikurinn alveg að verða búinn. Daníel Finns fær boltann rétt fyrir utan teig og hann með pláss til að skjóta sem hann gerir en rétt framhjá.
Stjarnan
91. mín
Gult spjald

Benedikt V. Warén

Mjög augljóst, stoppar skyndisókn FH.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
90. mín
Rétt yfir!
Daníel Finns með hornspyrnuna á nær þar sem Benedikt nær skallanum en hann flýgur yfir markið.
89. mín
Frábærlega varið!
Alex Þór gerir vel á miðjunni, vinnur boltann og kemur honum út á Daníel Finns. Daníel tekur fast skot sem á viðkomu í varnarmanni og er á leiðinni inn á nær en Jökull ver frábærlega!
Stjarnan
87. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
FH
86. mín
InnBirkir Valur Jónsson
ÚtÍsak Óli Ólafsson
85. mín
Dauðafæri Kjartan Kári!
FH-ingar snúa vörn í sókn og góð skyndisókn hjá þeim. Allt í einu er Kjartan kominn einn gegn Árna sem kemur vel út á móti Kjartani og Árni ver skotið frá honum!
85. mín
Frábær langur bolti fram hjá Sindra á Emil. Emil leggur hann svo út á Jóhann sem tekur skot en það er slappt og beint á Jökul.
79. mín
HVERNIG FÓR HANN EKKI INN!!
Horn hjá Stjörnunni og boltinn berst á fjær og er mögulega bara að fara inn beint úr horninu. Nema hvað að boltinn fer í Grétar sem virtist ekkert vita af honum og í slánna og FH-ingar ná að hreinsa. Stjörnumenn koma boltanum bara strax aftur inn í teig og Alex nær góðum skalla á markið, en Jökull með frábæra vörslu!!
78. mín
Langur bolti út á vinstri kant þar sem Benedikt fær boltann. Hann tekur nokkur skref inn á völlinn og tekur svo mjög fínt skot en Jökull ver vel frá honum.
FH
76. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtAdolf Daði Birgisson
FH
76. mín
InnViktor Nói Vidarsson
ÚtRóbert Hugi Sævarsson
FH
76. mín
InnGils Gíslason
ÚtSverrir Páll Hjaltested
74. mín
Stjarnan fær horn. Leikurinn að spilast eingöngu á vallarhelmingi FH síðustu mínútur. Hornið er lélegt. Boltinn á nær og Sindri reynir að framlengja en setur hann bara framhjá.
Stjarnan
69. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtBirnir Snær Ingason
Stjarnan
69. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtÖrvar Eggertsson
66. mín
Emil Atla í dauðafæri!!
Benedikt með glæsilega laumusendingu inn fyrir á Emil sem er kominn einn gegn Jökli. Emil tekur skotið og Jökull ver hann alveg greinilega mjög vel, Sigurður dæmir samt markspyrnu og gestirnir ekki hrifnir.
64. mín
FH-ingar í stórhættulegri sókn!
Arngrímur er með boltann á vinstri kantinum og hann kemur með stutta sendingu á Úlf sem er inn í teig. Úlfur reynir fyrirgjöfina sem er að fara detta fyrir galopinn mann á fjær, en þá kemur Örvar Eggerts askvaðandi og skutlar sér á eftir þessum bolta og hreinsar í horn.
63. mín
Hvernig varð þetta ekki mark!
Fyrirgjöf inn á teig FH og mér sýnist það hafa verið Örvar sem fær boltann á fjær. Hann skallar boltann aftur fyrir beint inn í þvögu sem er bara nokkrum metrum frá marklínu. Þar nær Emil að koma kollinum í boltann en skallinn hans beint á Jökul sem stóð fyrir framan hann.
61. mín
Ekki langt frá því að setja hann í eigið net
Stjörnumenn halda áfram að spila vel í kringum teig FH-inga, Benedikt kemur með fyrirgjöfina og Grétar nær að slæma fætinum í boltann en hreinsunin hans fer bara rétt yfir eigið mark.
Stjarnan
60. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtHeiðar Ægisson
57. mín
Stjörnumenn ná að spila sig vel í gegnum vörn FH-inga og Birnir í góðu færi en þröngu. Hann með skotið en beint í Jökul.
53. mín
Rólegt yfir þessu til að byrja með. Örvar Eggerts með fyrirgjöf hérna sem fór svo rosalega hátt yfir markið.
47. mín
FH-ingar ná að hreinsa eftir þessa hornspyrnu líka.
47. mín
Stjarnan með hornspyrnu strax í byrjun seinni hálfleiks, en FH-ingar komast fyrir boltann og úr verður önnur hornspyrna.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Staðan jöfn í hálfleik í bráðskemmtilegum leik. Liðin skiptast á að deila út höggum og vonandi heldur það bara áfram í seinni!
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
Engar vatnspásur hér.
FH
42. mín
Það er alltaf stutt milli marka!!

Ísak Óli Ólafsson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)

Fyrst var það Gustav Kjeldsen sem kom með skelfilega hreinsun beint í Tómas Orra, og Tómas var þá sloppinn einn gegn markmanni. Hann tekur skotið vissulega úr þröngu færi sem Árni ver mjög vel út í horn. Kjartan Kári tekur þá hornspyrnuna inn á teiginn og þar rís Ísak hæst og stangar boltanum í netið! Allt aftur orðið jafnt!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan
36. mín
Það er bakfallspyrna til að komast yfir!

Örvar Eggertsson

Birnir Snær reynir að lyfta boltanum inn á teig en Róbert Hugi nær hausnum í boltann en skallar hann bara beint upp. Boltinn kemur þá á Örvar sem tekur boltann á kassann, og í eiginlega sömu hreyfingu klippir boltann aftur fyrir sig upp í þaknetið! Alvöru mark frá uppalda FH-ingnum (í frjálsum)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
34. mín
Garðbæingar fá horn, Birnir Snær tekur þessa spyrnu. Tekur hornið stutt á Benedikt og fær hann strax aftur. Ætlar svo að keyra inn á teig en missir boltann útaf.
30. mín
Vel varið!
Benedikt reynir skotið fyrir utan teig, það er ekkert sérlega fast en það er hnitmiðað. Jökull þarf að teygja sig vel til að ná þessum.
28. mín
Það er skemmtileg harka í leiknum og greinilegt að Sigurður ætlar að láta leikinn fljóta. Á svona 30 sekúndna kafla falla við fjórir mismunandi menn en það er ekki fyrr en í fjórða skiptið sem Sigurður flautar.
26. mín
FH með hornspyrnu og Kjartan með boltan á fjær. Þar mætir Tómas og reynir skotið úr erfiðri stöðu en hátt yfir.
23. mín
Birnir Snær fær boltann úti vinstra megin á hættulegum stað, yfirleitt er það stórhættulegt fyrir andstæðinginn en Birnir fer illa með þetta og skýtur bara beint í fyrsta varnarmann.
20. mín
Ekki svo gott, Kjartan með spyrnuna á fjær þar sem Adolf nær skallanum en hann er laus og Örvar Eggerts hreinsar frá.
20. mín
Þá fær FH horn, ætli sami hlutur gerist aftur og FH skori fljótt eftir jöfnunarmakið.
19. mín
Leikurinn eiginlega alveg búinn að snúast við, var nýbúinn að skrifa um sterka byrjun FH-inga en þeir virðast hálf slegnir eftir að hafa fengið jöfnunarmark svona fljótt á sig.
Stjarnan
14. mín
Ekki lengi að svara!!

Sindri Þór Ingimarsson (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

Stjarnan í eiginlega sinni fyrstu sókn vinna sér inn hornspyrnu. Þar er það Birnir sem kemur með flottan bolta inn í teig á Sindra sem er með allt of mikið pláss í kringum sig og hann stangar þetta inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
13. mín
FH-ingar byrjað mun betur
Það er alvöru kraftur í heimamönnum, og kannski ekki alveg hægt að segja að þetta mark lág í loftinu, en eina liðið sem hefur verið líklegt þessar fyrstu mínútu hafa verið FH. Allt annað að sjá til þeirra en fyrr á tímabilinu.
FH
10. mín
Frábær byrjun hjá heimamönnum!!

Adolf Daði Birgisson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)

Tómas Orri neglir boltanum upp í loft en hann lendir svo beint hjá Kjartani Kára sem er með ruglaða móttöku til að drepa boltann alveg fyrir framan sig. Kjartan kemur svo með frábæran bolta inn í teig þar sem Adolf kemur í hlaupið bakvið varnarmanninn og stingur sér fram fyrir hann þar sem hann skallar boltann í netið! Adolf að stinga ríting í bakið á sínu uppeldisfélagi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8. mín
Róbert Hugi reynir skotið fyrir utan teig, en þéttur múr Stjörnumanna inn í teig er fyrir.
8. mín
Reynir skotið frá miðju
Benedikt með boltann á miðjum vellinum, hann tekur nokkur skref fram á við þegar hann sér að Jökull stendur aðeins framarlega. Hann reynir skotið úr miðjuhringnum en hátt yfir markið.
7. mín
Uppstilling liðanna
Þetta er eitthvað í þessa áttina. FH 4-2-3-1 Jökull Arngrímur - Ísak - Grétar - Aron Tómas - Róbert Adolf - Sverrir - Kjartan Úlfur Stjarnan 4-3-3 Árni Heiðar - Sindri - Kjeldsen - Örvar Logi Guðmundur - Jóhann - Benedikt Örvar - Emil - Birnir
6. mín
Kjartan í færi!
FH-ingar vinna boltann ofarlega á vellinum og Sverrir er með hann úti hægra megin. Hann kemur með fastan bolta á Kjartan sem lúrir rétt fyrir utan teiginn. Kjartan tekur skotið en Árni sér við honum þarna.
1. mín
Kjartan Kári með hlaup sem maður hefur séð svo oft hjá honum. Boltinn kemur til hans á kantinn og hann færir sig inn á völlinn og tekur skotið en þetta var laust og beint í varnarmann.
1. mín
Sigurður flautar og leikurinn er farinn af stað!
0. mín
Leikmenn og dómarar ganga inn á völl og þetta fer alveg að bresta á!
0. mín
Byrjunarliðin
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar frá síðustu umferð þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við ÍBV. Sverri Páll Hjaltested og hinn 16 ára gamli Róbert Hugi Sævarsson koma inn í byrjunarliðið. Baldur Kári Helgason og Kristján Flóki Finnbogason eru ekki í hóp, en Baldur er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sínu liði sem vann KA 3-1 í síðustu umferð. Það er Heiðar Ægisson sem kemur inn í liðið á kostnað Damil Dankerlui sem er ekki í hóp.
0. mín
Dómarinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Spáin
Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19. FH 1 - 3 Stjarnan Stjarnan nær í mikilvægan sigur á útivelli. Tómas Orri skorar fyrir FH og Emil Atla setur tvö.
0. mín
Nýr þjálfari kominn með fyrsta sigurinn
Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar um miðjan júní og Jón Þór Hauksson tók við liðinu. Jón náði svo í sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Garðbæingar unnu KA 3-1. Stjarnan er þá í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, og spurning hvort þeir geta haldið áfram á sigurbraut gegn neðsta liði deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Ósigraðir í síðustu þrem
Tímabilið hjá FH hefur gengið mjög illa. Þeir eru í neðsta sæti með sjö stig. Fimm af þessum stigum hafa hins vegar komið í síðustu þremur leikjum, þar sem þeir hafa gert tvö jafntefli og unnið einn leik. Það er því spurning hvort að Hafnfirðingar seú að snúa gengi sínu við undir Jóa Kalla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Stjörnunnar í 13. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Kaplakrikavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.