SKÝRSLAN: Yin-og-yang í Þorlákshöfn
Hvað réði úrslitum?
Fylkismenn voru betri í fyrri hálfleik og staðan sýndi það, 4-1. Svo í seinni var þetta eiginlega bara frekar leiðinlegur fótboltaleikur. Frekar yin-og-yang-legt. Verð að gefa credit á Ægi fyrir að berjast vel. Hefðu ríflega getað náð í 1-2 í seinni.
Bestu leikmenn
1. Jordan Adeyemo
Adeyemo frábær að ná þessum tveimur mörkum. Var held ég tvisvar-þrisvar búinn að næla sér í þrennuna!
2. Máni Austmann Hilmarsson
Var geggjaður á vængnum í dag! Á skilið annað sætið hér.
Atvikið
Allur fyrri hálfleikurinn í raun! Tvö mörk frá Fylki á 2 mínútum, og þvílíkt skot í öðru markinu og hvað þá þriðja! Maður vonaðist eftir algjörri súpu svo í seinni en svo varð ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn eru komnir yfir Þrótt og eru því í 2. sæti Lengjudeildarinnar með 24 stig.
Ægismenn sitja enn í 11. sæti með 8 stig og -9 í markatölu eftir seinustu tvo leiki.
Vondur dagur
Það var stundum klaufagangur hjá báðum liðum. Ómar, markmaður Ægis hefði átt að gera betur í fyrsta markinu en seinna var nátturulega óverjandi. Smá klaufagangur hjá markmanni Fylkis í fyrsta marki Ægis og hvað þá seinna þegar Bjarki Steinsen gefur hann eiginlega á Adeyemo. Enginn átti eitthvern ævintýralélegan leik.
Dómarinn - 7
Held ég get ekkert sett út á Brynjar. Það var enginn sem kvartaði undan honum og ég get ekkert kvartað heldur.



