Fotbolti.net
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Vindur og sól
Njarðvík
Njarðvík
1 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Oumar Diouck 73'1 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Þróttur niður í þriðja sæti eftir tap í Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Njarðvík voru betri aðilinn næstum allann leikinn en tóku alveg yfir hann eftir að Baldur Hannes Stefánsson fékk rautt spjald á 32 mínútu.

Bestu leikmenn

1. Oumar Diouck

Skorar sigur markið og ógnaði mikið, var að stinga sér inn fyrir vörnina og Þróttarar voru í veseni með hann.

2. Þórhallur Ísak Guðmundsson

Varði oft mjög vel og Þróttarar geta þakkað honum fyrir að þeir hafi ekki tapað stærra í dag.

Atvikið

Þegar Baldur fær rauða spjaldið þá voru Þróttarar aðeins að ógna og voru að vinna sig inn í leikinn en eftir rauða spjaldið þá gekk þeim frekar illa að búa til góð færi en reyndum samt alveg fram að síðustu mínútu.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er komið niður í 3.sæti og eru 1-2 stigum á eftir Fylki og Aftureldingu. Njarðvík sitja ennþá í 7.sæti en nálgast umspils sæti munar aðeins 3 stigum á þeim og Vestra sem sitja í 4.sæti.

Vondur dagur

Baldur Hannes Stefánsson henti í einhverja rugl tæklingu á 32 mínútu og fékk rautt spjald fyrir það og þá varð þetta mun erfiðara verkefni fyrir Þróttara.

Dómarinn - 8

Gunnar Freyr var bara flottur í dag, mér fannst rauða spjaldið hjá honum rétt og svo gaf hann nokkur gul spjöld sem voru sanngjörn að mínu mati. Hélt góða flæði í leiknum og leyfði átök inn á milli
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.