0. mín
Dómarinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson. 

0. mín
Spáin
Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.
FH 1 - 3 Stjarnan
Stjarnan nær í mikilvægan sigur á útivelli. Tómas Orri skorar fyrir FH og Emil Atla setur tvö.
0. mín
Nýr þjálfari kominn með fyrsta sigurinn
Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar um miðjan júní og Jón Þór Hauksson tók við liðinu. Jón náði svo í sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Garðbæingar unnu KA 3-1. Stjarnan er þá í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, og spurning hvort þeir geta haldið áfram á sigurbraut gegn neðsta liði deildarinnar.

0. mín
Ósigraðir í síðustu þrem
Tímabilið hjá FH hefur gengið mjög illa. Þeir eru í neðsta sæti með sjö stig. Fimm af þessum stigum hafa hins vegar komið í síðustu þremur leikjum, þar sem þeir hafa gert tvö jafntefli og unnið einn leik. Það er því spurning hvort að Hafnfirðingar seú að snúa gengi sínu við undir Jóa Kalla. 

0. mín
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Stjörnunnar í 13. umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Kaplakrikavelli. 






