0. mín
Lengjan um helgina
Öll tólfta umferð Lengjudeildarinnar verður leikin um helgina.
Í dag
19:15 Njarðvík-Þróttur R. (JBÓ völlurinn)
19:15 ÍR-Afturelding (Þarfaþingsvöllurinn)
19:15 Grótta-HK (Vivaldivöllurinn)
19:15 Ægir-Fylkir (GeoSalmo völlurinn)
Á morgun
14:00 Grindavík-Vestri (Stakkavíkurvöllur)
16:00 Leiknir R.-Völsungur (Leiknisvöllur)
0. mín
Þrír í leikbanni
Þrír leikmenn HK taka út leikbann í kvöld. Svavar Örn Þórðarson og Dagur Ingi Axelsson fengu að líta rautt spjald í síðasta leik gegn Fylki. Ívar Örn Jónsson er einnig í banni í kvöld vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Engin leikmaður Gróttu er í leikbanni.


0. mín
Staðan í deildinni
Grótta
Seltirningar sitja í 8. sæti deildarinnar með 13 stig. Nýliðarnir hafa gert vel það sem af er móts. Eftir að hafa unnið þrjá leiki í röð hefur liðið aðeins náð í eitt stig í síðustu þremur. Síðasti leikur liðsins var gegn Völsungi á Húsavík, þar fóru leikar 2-2.
HK
HK er í 5. sæti deildarinnar með 19 stig og aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Þróttar. Liðinu hefur tekist illa að tengja saman sigra. Síðasti leikur liðsins var gegn Fylki í Árbænum. HK vann dramatískan 0-2 sigur en það var jafnframt fyrsti útisigur liðsins á tímabilinu.



0. mín
Dómarar kvöldsins
Hreinn Magnússon verður á flautunni í kvöld. Þráinn Jón Elmarsson og Ragnar Arelíus Sveinsson verða á flöggunum.


0. mín
Velkomin á Vivaldi
Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í textalýsingu beint frá Vivaldivellinum. Hér munu Grótta og HK mætast í 12. umferð Lengjudeildarinnar.





