Fotbolti.net
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Njarðvík
Njarðvík
0 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
0. mín
Byrjunarliðin
Bæði lið gera 2 breytingar á sínum liðum. Hjá Njarðvík eru það Hrafn Guðmundsson og Valdimar Jóhannson sem fara út úr liðinu fyrir Símon Thasaphong og Leandro Fernandes. Hjá Þrótti R. eru það Sigurður Egill og Vilhjálmur Kaldal sem fara úr liðinu fyrir þá Viktor Steinarsson og Njörð Þórhalsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Spáin
Áki Sölvason er spámaður 12. umferðar og hann spáði skemmtilegum leik í kvöld. Njarðvík 2 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld) Oumar Diouck skorar tvö glæsileg mörk í fyrri hálfleik. Þróttarar taka síðan yfir seinni og ná að jafna með mörkum frá Adam Árna og Kára Kristjáns. Aron Dagur ver víti á 90+5.
0. mín
Njarðvík
Njarðvík tapaði á móti Aftureldingu 2-0 í síðasta leik og sitja þeir í 7 .sæti með 14 stig. Þetta hefur ekki verið drauma byrjun hjá Davíð Smára en hann hefur sýnt að hann sé frábær þjálfari og getur vel snúið þessu gengi við með Njarðvík.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Þróttur R.
Þróttur R. gerði 1-1 jafntefli við Vestra á heimavelli í síðasta leik, Þróttur jafnaði leikinn með marki frá Unnari Steini Ingvarssyni á 90 mínútu. Þróttur R. eru í fyrsta sæti með 23. stig einu fleira en Afturelding. Sigurður Egill Lárusson fór meiddur af velli og verður frá næstu vikurnar eftir að hann tognaði í liðbandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Dómarar
Aðaldómari í dag er Gunnar Freyr Róbertsson, honum til aðstoðar eru Tryggvi Elías Hermansson og Breki Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
12. umferð
Góða kvöldið, verið velkomin í beina textalýsingu á leik Njarðvíkur og Þróttar R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.