SKÝRSLAN: Evrópusaga Vestra byrjar á tapi
Hvað réði úrslitum?
Það sást langar leiðir að Qarabag væri frábært lið með gæði. Qarabag voru um 70% með boltann og áttu þennan leik í raun frá byrjun. Vestri vörðust vel í dag, en í mörkunum komu gæði Qarabag í ljós, Vestramenn höfðu getað gert betur í mörkunum, þá sérstaklega í örðu marki Qarabag þegar Elmar Atli fyrirliði missti boltann á hættulegum stað.
Bestu leikmenn
1. Zakaria Sawo
Zakaria Sawo var að spila sinn fyrsta alvöru keppnisleik fyrir Qarabag og átti virkilega góðan leik, hann skoraði og lagði upp mark í leiknum.
2. Abdellah Zoubir
Abdellah Zoubir skoraði virkilega flott mark í leiknum og var hættulegur á vinstri kanti Qarabag.
Atvikið
Þriðja mark Qarabag, ef það var einhver smá von fyrir Vestramenn í þessu einvígi þá fór hún á 86 mínútu þegar Renaldo Cephas skoraði þriðja mark Qarabag.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega það að Qarabag fara með þæginlega 3-0 forustu í seinni leik einvígisins sem fer fram á Avis-vellinum eftir viku.
Vondur dagur
Þórður Gunnar Hafþórsson, það er svolítið hart að gefa Þórði vonda daginn vegna þess að hann var að etja kappi við virkilega góða leikmenn í dag. Þórður átti erfitt uppdráttar í dag og komst ekki í takt við leikinn.
Dómarinn - 8
Roman Jitari og hans teymi dæmdu þennan leik fagmannlega og negldu allar ákvarðanir sem komu á þeirra borð.


