Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHelgi Inguson
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
3 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Taylor Marie Hamlett 10'1 - 01 - 119' Edith Kristín Kristjánsdóttir1 - 224' Líf Joostdóttir van BemmelTaylor Marie Hamlett 73'2 - 2Harpa Helgadóttir 89'3 - 2
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson
Leik lokið!
Frábær sigur Framara. Viðtöl og skýrsla væntanleg
Breiðablik
94. mín
InnÓlöf Margrét Marvinsdóttir
ÚtKatelyn Duong
Breiðablik
94. mín
Gult spjald

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Togar Taylor niður
Fram
92. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
91. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
Fram
89. mín
HAAAAA

Harpa Helgadóttir

Fram fær hornspyrnu eftir að Taylor hafði komist í frábætra stöðu. Boltinn hrekkur út á Hörpu fyrir utan teig. Hún svoleiðis smellhittir boltann og kemur Frömurum yfir.
Breiðablik
83. mín
InnElísabet María Júlíusdóttir
ÚtSunna Rún Sigurðardóttir
80. mín
Bæði lið að reyna að sækja sigurinn. Þetta verða skemmtilegar lokamínútur
76. mín
Aftur er darraðardans í vítateig gestanna. Framarar ekki langt frá því að pota boltanum í netið þarna. Endar með því að Breiðablik fær aukaspyrnu
Fram
73. mín
Fram jafnar metinn

Taylor Marie Hamlett (stoðsending: Sara Svanhildur Jóhannsdóttir)

Darraðardans inn í teig gestanna eftir að Fram fékk hornspyrnu. Boltinn hrekkur aftur út á Söru Svanhildi sem á frábæra fyrirgjöf sem ratar á pönnuna á Taylor. Góður skalli og gott mark.
Breiðablik
71. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
Skrýtin frammistaða hjá Ólöfu. Komið sér í góðar stöður en í krummafót fyrir framan markið.
70. mín
Aftur klúðrar Ólöf
Hrafnhildur Ása keyrir upp hægri kantinn og á þversendingu á Ólöfu. Ashley étur hana hins vegar. Góð varsla.
69. mín
Ólöf aftur að koma sér í frábæra stöðu. Á gott skot sem Ashley ver í horn
66. mín
Alda með flott skot framhjá marki eftir góða sókn. Framarar töluvert líklegri aðilinn þessa stundina
64. mín
Fram ógnar
Sara Svanhildur með flotta fyrirgjöf en Herdís gerir feykilega vel í markinu og ver skalla Unu sem var alveg út við stöng
Fram
63. mín
InnEmma Kate Young
ÚtKristín Magdalena Barboza
62. mín
Hætta
Taylor með fasta fyrirgjöf sem Elín Helena kemst inn í. Hún hreinsar hins vegar boltanum rétt yfir eigið mark. Blikar heppnir þarna
60. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
56. mín
DAUÐAFÆRI
Agla María með fyrirgjöf sem Ólöf tekur á móti. Ashley í markinu býst við skotinu og missir jafnvægið. Snerting Ólafar var hins vegar aðeins og þung og boltinn lekur framhjá markinu. Hún var hársbreidd frá því að ná að pota boltanum inn.
51. mín
Sara Svanhildur í ágætri stöðu en skot hennar er laust enda kominn úr jafnvægi
47. mín
Una Rós með fyrirgjöf á Öldu Dís sem á slakan skalla
Fram
46. mín
InnKatrín S. Vilhjálmsdóttir
ÚtSylvía Birgisdóttir
Anton gerir eina breytingu í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Fram byrjar þetta
45. mín
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið. Blikar verið betri aðilinn en Una Rós var ekki langt frá því að jafna. Tökum okkur 15
44. mín
VÁÁÁÁ
Una Rós með tilraun af svona 30 metra færi. Herdís var aðeins og framarlega í markinu og Una sá það. Boltinn fer í þverslána og skoppar á línunni
41. mín
Hrafnhildur Ása komin í afbragðsstöðu en skýtur útaf
34. mín
Það er aftur komið jafnvægi í leikinn eftir að Breiðablik komst yfir.
Breiðablik
24. mín
Breiðablik leiðir

Líf Joostdóttir van Bemmel (stoðsending: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir)

Breiðablik vinnur boltann ofarlega á vellinum. Ólöf finnur Líf sem á krafmikið hlaup í teig Framara. Hún klárar svo færið með prýði. Upp í fjærstöng.
24. mín
Aftur er hætta eftir hornspyrnu Breiðabliks. Boltinn hrekkur til Ólafar en Ashley er fljót niður og ver tilraun hennar.
Breiðablik
19. mín
FRÁBÆRT MARK

Edith Kristín Kristjánsdóttir

Framarar tapa boltanum á hættulegum stað. Edith fær hann, leikur á Kristínu Dís og smellir svo boltanum í fjærhornið. Stöngin inn og óverjandi!
16. mín
Ólöf með sendingu á Hrafnhildi Ásu sem lætur verja frá sér í kjörstöðu. Líf tekur frákastið en ekkert verður úr tilraun hennar. Markið liggur í loftinu!
15. mín
Breiðablik ógnar
Gestirnir verið töluvert betri eftir að Fram komst yfir. Búnar að fá nokkrar hornspyrnur og Ólöf Sigríður búin að fara illa með tvö góð færi
Fram
10. mín
Fram tekur forystuna!

Taylor Marie Hamlett (stoðsending: Harpa Helgadóttir)

Harpa Helgadóttir með sendingu á Taylor sem leikur á Kristínu Dís og á gott skot framhjá Herdísi.
8. mín
Blikar keyra í skyndsókn eftir hornspyrnuna. Komnar í 3 á 2 en eru klaufar og Hrafnhildur Ása lætur grípa sig rangstæða
7. mín
Alda Dís sloppin ein í gegn
Sara Svanhildur með stungusendingu á Öldu Dís sem er sloppin ein í gegn en á frekar máttlaust skot sem Herdís ver í horn
3. mín
Framarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins en ekkert verður úr henni
1. mín
DAUÐAFÆRI
Ólöf Sigríður komin í dauðafæri strax í byrjun leik. Flottur undirbúningur hjá Hrafnhildi Ásu sem kemur með þversendingu á Ólöfu sem er ein gegn Ashely en setur boltannn útaf. Heimakonur sleppa með skrekkinn
1. mín
Gestirnir sparka þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 3-0 tapi gegn Stjörnunni. Sylvía Birgisdóttir og Kristín Magdalenda Barboza koma inn fyrir Júlíu Margréti Ingadóttur og Freyju Dís Hreinsdóttur. Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir ekki eina einustu breytingu á sínu liði frá 0-3 sigri gegn ÍBV.
Fyrir leik
10. umferðin
Í dag 18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur) 19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn) 19:15 Þór/KA-Grindavík/Njarðvík (VÍS völlurinn) 19:15 FH-Þróttur R. (Kaplakrikavöllur) Á morgun 18:00 Valur-Stjarnan (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Fyrir leik
Thelma Karen spáir í spilin
Ungstirnið Thelma Karen Pálmadóttir sem leikur með Häcken í Svíþjóð spáir í 10. umferðina. Fram 0 - 2 Breiðablik „Blikar miklu sterkari í þessum leik enda með betra lið. Tekur smá tíma hjá blikunum að brjóta Frammara en ná að skora tvö góð mörk þó þær hefðu getað skorað sjö í viðbót."
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Fram
Fram vermir botnsæti deildarinnar með 4 stig. Liðið er fimm stigum frá öruggu sæti. Framarar hafa nú tapað þremur leikjum í röð í deild en þrátt fyrir erfitt gengi í deild er liðið komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Breiðablik
Blikar sitja á toppi deildarinnar með 21 stig, einu stigi meira en FH sem er í öðru sæti. Liðið hefur verið í vandræðum með að tengja saman sigra síðustu leiki en nú ætti að vera kjörið tækifæri til þess að vinna tvo leiki í röð í fyrsta skipti síðan um miðjan maí.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Hallgrímur Viðar Arnarson er dómari leiksins. Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem eru aðstoðardómarar. Breki Sigurðsson er fjórði dómari og Hjalti Þór Halldórsson er dómaraeftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deild kvenna snýr aftur!
Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í textalýsingu þráðbeint frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Hér mun Fram taka á móti Breiðabliki í 10. umferð Bestu deildar kvenna. U19 landsliðið keppti í lokakeppni EM í Bosníu í lok júní og byrjun júlí og því var hálfs mánaða hlé á deildinni á meðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.