Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Blautt en milt veður
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 18' Allison Grace LowreyArna Ísold Stefánsdóttir 24'1 - 11 - 237' Olga Sevcova1 - 372' Allison Patricia Clark
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Leik lokið!
ÍBV konur taka þennan leik 1-3 mikilvægur og langþráður sigur fyrir þær! Víkingskonur geta nagað á sér handabökin að hafa ekki sett eitthvað af dauðafærunum sínum inn!
93. mín
Víkingskonur næla sér í horn á lokamínútunni! Bergdís setur hann á fjær en þær missa hann allar framhjá sér
92. mín
Olga reynir að finna Ernu Hrönn innfyrir en Kristín Erla sér við henni og er á undan
91. mín
Eitt af síðustu tækifærum Víkings, horn sem Þórdís tekur en ÍBV ná að skalla frá
90. mín
A.m.k. 3 mínútur í uppbótartíma
88. mín
Freyyyyyjaaa
Freyja komin framhjá Arden í markinu en er ekki í jafnvægi og svakalega hægur bolti rúllar á markið en þar eru tvær ÍBV konur mættar og eiga ekki í vandræðum með að ná þessum bolta
85. mín
Víkingar reyna og reyna og ótrúlegt að þær hafa ekki náð að skora!
80. mín
Tæknilegir örðuleikar!
Kerfið er eitthvað að stríða mér og því er margt sem hefur dottið út í lýsingunni!
ÍBV
72. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
ÍBV
72. mín
MAAAARK!

Allison Patricia Clark

Allison kemur sér í frábæra stöðu og setur boltann í fjær hornið!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R.
68. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Víkingur R.
68. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
Víkingur R.
63. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtAnika Jóna Jónsdóttir
62. mín
ÍBV nálægt því að tvöfalda
Allison Clark komin í frábæra stöðu tekur skotið Sigurborg Katla nær að verja frábærlega
ÍBV
60. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtEdda Dögg Sindradóttir
ÍBV
60. mín
InnRagna Sara Magnúsdóttir
ÚtFridrikka Marie Clementsen
59. mín
Náálææææægt
Þórdís Hrönn með frábæra fyrirgjöf á fjær þar sem Jasmín kemur askvaðandi en skallinn framhjá
56. mín
Þórdís Hrönn komin í frábæra stöðu setur hann til hliðar og vonast eftir halupi en boltinn rúllar í gegnum teiginn og út fyrir endalínu, hún hefði átt að skjóta sjálf!
54. mín
SJÖTTA HORNIÐ!
Viktorija setur hornið fyrir á fjær þar er Allison Clark sem nær að setja hann aftur inn í en allt kemur fyrir ekki og loksins ná Víkingskonur að komast út úr vítateignum sínum
53. mín
Þetta er að verða eins og lélegur brandari! Olga með FIMMTA hornið! Klafs og endar með varnarskalla! Við erum að fara í SJÖTTA HORNIÐ
52. mín
Olga því með FJÓRÐA hornið í röð! Avery nær að flikka honum aftur fyrir sig en rétt framhjá markinu
51. mín
Viktorija tekur annað horn og aftur endar boltinn útaf!
50. mín
Viktorija tekur annað horn fyrir ÍBV Allison Clark er í þessu en Víkingskona nær að skalla hann yfir
49. mín
Olga Sevcova tekur horn fyrir ÍBV konur, en Víkingskonur sterkar og ná að koma þessu frá
48. mín
Bergdís nær ágætis skalla en framhjá
47. mín
Kristín Erla reynir skot utan af velli en það er hátt yfir
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Allison Lowrey sparkar þessu aftur af stað!
45. mín
Hálfleikur!
1-2 hér fyrir ÍBV í hálfleik, þetta hefur verið fjörugri leikur en við var að búast
45. mín
Bergdís nær skalla en rétt framhjá og þar sem flautar dómarinn til hálfleiks
45. mín
A.m.k. 3 mínútur í uppbótartíma
45. mín
Bergdís reynir langan bolta og finna Jasmín í hlaup en Sandra Voitane er á undan og bægir hættunni frá
44. mín
Anika Jóna gerir vel og nær að koma boltanum frá Allison Clark sem var að gera sig líklega
39. mín
ÚFFFF DAUÐAFÆRI
Freyja og Bergdís eru í dauuuuuuuuuðafæææææri tvær gegn Avery og Arden en Bergdís setur þetta beint í Avery! Rosalega illa farið með frábært færi
ÍBV
37. mín
MAAAARK!

Olga Sevcova (stoðsending: Allison Grace Lowrey)

Þetta var svo týpískt ÍBV mark! Allison laumar boltanum í gegn á Olgu sem er alein og setur hann í netið framhjá Sigurborgu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
35. mín
Freyja kemur sér í góða stöðu en er stöðvuð áður en hún nær að gera eitthvað úr henni
35. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
34. mín
Fridrikka Marie sleppur ein í gegn en flaggið góða fer á loft
33. mín
Mikið klafs í teignum sem endar með að Freyja liggur, Víkingur kallar eftir Víti en ekkert dæmt!
29. mín
Arden Joy ísköld undir pressu frá Bergdísi en skilar þessu frá sér
27. mín
ÚFFFF
Allison Clark er komin ein í gegn en setur boltann beint á Sigurborgu í markinu! Það má ekki gleyma þessu ÍBV liði í eina sekúndu
Víkingur R.
24. mín
BAAAAAAANGER!

Arna Ísold Stefánsdóttir

Víkingskonur voru búnar að hóta og hóta þessu! Arna er upp við vítateigshornið og smellir honum í samskeytin fjær! VÁ!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
21. mín
Hafliði Breiðfjörð fangaði fagnaðið hjá ÍBV!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
19. mín
Arden Joy!!!
VÁ! Ver skotið frá Freyju alveg út við fjærstöngina!
18. mín
Helena með frábæra stungu í gegn á Clark sem kemst áfram með boltann inn á teiginn, reynir síðan að taka hálft í hálft fyrirgjöf eða skot og boltinn rennur útaf
17. mín
Arna brýtur á Helenu við vítateig ÍBV, þær sparka þessu fram en þar er enginn...
13. mín
Allison kemst á hlaupið, hefur Viktoriju með sér en missir boltann frá sér
9. mín
ÍBV konur fá rokkstig fyrir að fagna þessu marki! Þær settust og réru líkt og Norðmenn! Ég vil sjá fleiri skemmtileg fögn í sumar
ÍBV
8. mín
MAAAARK!

Allison Grace Lowrey

Allison fær boltann frá Viktoriju og setur svo boltann fast í hnéið Áslaugu Dóru og inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
7. mín
Bergdís fær sendingu upp í hornið en setur hann svo í varnarmann og útaf, innkast upp við hornfána
5. mín
Brotið á Freyju, sýnist hún hafa farið dottið úr skónum í leiðinni, þetta tekur allavega óratíma fyrir hana að standa upp
2. mín
Olga gerir vel, kemst á hlaupið upp kantinn, reynir að finna Allison Clark en vantaði herslumuninn að Clark væri komin í geggjaða stöðu inn í teig!
1. mín
Jasmín Erla sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Hér er allt til reiðu fyrir frábæran leik! Víkingur í sínum aðal búning rauðar og svartar og ÍBV hvítar
Fyrir leik
ÍBV - byrjunarlið
Jón Óli þjálfari ÍBV gerir einnig tvær breytingar á sínu liði frá 0-3 tapi þeirra gegn Breiðabliki fyrir hléið. Inn í liðið kemur Arden Joy og Helena Hekla en á bekkinn setjast Guðný Geirs og Ragna Sara.
Fyrir leik
Víkingur - byrjunarlið
Einar þjálfari Víkings gerir tvær breytingar frá 1-1 jafntefli þeirra við Grindavík/Njarðvík fyrir hléið. Inn í liðið koma Freyja og Bergdís en á bekkinn setjast Dagný og Jóhanna Elín,
Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust 1. maí sl. þar sem ÍBV fór með 3-2 sigur af hólmi í ótrúlegum endurkomu leik. Víkingskonur voru yfir 0-2 í hálfleik en misstu leikinn niður í 2-2 jafntefli áður en Kristín Erla fékk svo að líta rauða spjaldið þegar um hálftími var eftir. Allison Clark gekk svo á lagið og skoraði sigurmark eyjakvenna undir lok leiksins.
Fyrir leik
ÍBV
ÍBV konur byrjuðu sumarið með hvelli sem án efa hjálpaði þeim þegar meiðsli og leikbönn settu strik í reikninginn. Þær hafa unnið 4 leiki, gert 2 jafntefli og tapað 3 leikjum. Þær sitja í 4. sætinu með 14 stig og sigur í kvöld þýðir að liðið nær að elta toppliðin en Stjarnan er einum sigurleik á undan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingur
Víkingskonur hafa ekki riðið feitum hesti í sumar, hafa náð 3 sigrum og einu jafntefli en tapað 5. Þær sitja í 7. sæti með 10 stig. Einu stigi á undan Val í 8. sætinu. Hins vegar er stutt í næstu lið fyrir ofan og sigur í kvöld kæmi þeim langleiðina í efri hlutann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Ronnarong Wongmahadthai og honum til halds og trausts verða Mikael Ívan Axelsson og Eydís Ragna Einarsdóttir aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Arnar Hólm Einarsdóttir og eftirlitsmaður í dag er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
11. umferðin
Glöggir lesendur sjá að 11. umferðin er spiluð núna þar sem 10. umferðin í heild var færð fram í september vegna lokamóts U19 á EM.
Mynd: UEFA
Fyrir leik
Besta deildin kallar á ný!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá hamingjunni þar sem Víkingur tekur á móti ÍBV í 11. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst á slaginu 18:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.