Fotbolti.net
@fotboltinetMagnús Atlason
Magnús Atlason
Fótbolti.net bikarinn
Valsvöllur
12°, stillt, þungskýjað og smá rigning. Fínasta fótboltaveður.
KH
KH
2 - 3
Reynir S.
Reynir S.
Tristan Snær Daníelsson 6'1 - 0Luis Carlos Cabrera Solys 38'2 - 02 - 151' Gísli Grétar Sigurðsson2 - 267' Jordan Smylie2 - 398' Ísak Daði Ívarsson
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Leik lokið!
Reynir Sandgerði komnir í 8 liða úrslit!
Alvöru hiti hér í þessum leik. Viðtöl og skýrsla á leiðinni. Takk fyrir mig.
120. mín
120+3
KH fær horn
120. mín
120+1
Samstuð hjá Sindra og Viðari og Viðar liggur eftir. Leit ekkert sérstaklega vel út en hann er staðinn upp.
120. mín
Mark en brot dæmt
Páll kemur boltanum í netið en brot í aðdragandanum.
KH
119. mín
Pirringsbrot

Kristinn Kári Sigurðarson

Reynir S.
113. mín
Leiktöf

Kolviður Gísli Helgason

112. mín
KH heimta víti
Heimamenn í hættulegri sókn og KH maður fer niður í teignum. Ekkert dæmt og líklegast rétt.
111. mín
Sýnist þetta hafa verið réttur dómur þarna áðan eftir að hafa séð myndband af atvikinu. Boltinn virðist hafa farið í magann á Viðari en ekki í höndina eins og Gunnar og KH menn vildu halda fram.
KH
106. mín
Rautt spjald

Gunnar Einarsson

106. mín
Allt er að sjóða upp úr
KH menn komast strax í sókn og boltinn fer að mér sýnist í höndina innan teigs á Sandgerðingi. Ekkert dæmt og Gunnar þjálfari algjörlega brjálaður.
106. mín
Allt hafið á ný
105. mín
Hálfleikur
15 mínútur eftir af þessum leik. Býst við svakalegu korteri.
Reynir S.
102. mín
InnKolviður Gísli Helgason
ÚtJordan Smylie
KH
101. mín
Gult spjald

Birgir Óliver Árnason

Birgir með grófa tæklingu á vallarhelmingi Reynis. Ef hægt væri að gefa appelsínugult spjald hefði mátt gefa honum það fyrir þessa tæklingu. Það stefndi allt í slag sem Óli stoppar við fæðingu. Hiti.
Reynir S.
98. mín
ALVÖRU AFGREIÐSLA

Ísak Daði Ívarsson

Boltinn berst til Ísaks á vítateigshorninu og hann tsjippar honum yfir Flóka sem var kominn of langt útúr markinu. Þetta er brekka fyrir heimamenn.
KH
97. mín
InnBirgir Óliver Árnason
ÚtPatrik Írisarson Santos
96. mín
Reynir fær horn
Sendingin inn í teiginn og Flóki nær að grípa hann eftir nokkrar tilraunir. Suðurnesingar hafa verið betri í framlenginunni.
91. mín
Framlengingin farin af stað
90. mín
90+4
Venjulegum leiktíma er lokið. Við erum á leiðinni í framlengingu. KH manni færi og án aðalþjálfarans. Þeir mega vera svekktir eftir dómaramistökin. Menn að kvarta í dómarateyminu rétt í þessu.
90. mín
90+3
Hörkuskot hjá Páli en rétt framhjá markinu.
90. mín
Stórskotahríð að marki KH
Taldi að minnsta kosti 4 skot eftir hornspyrnu hjá Reyni en KH henda sér fyrir öll skot. Þetta endar í annari hornspyrnu en þeir skapa sér ekkert þaðan.
Reynir S.
86. mín
InnSævar Orri Valgeirsson
ÚtValur Þór Magnússon
Reynir S.
86. mín
InnBóas Heimisson
ÚtGísli Grétar Sigurðsson
KH
83. mín
Gult spjald

Rigon Jón Kaleviqi

KH
83. mín
Rautt spjald

Hallgrímur Dan Daníelsson

83. mín
Dómaramistök
Þetta er svakalegt. Sævar Gylfa sendir mjög slaka sendingu til baka á Sindra og dettur í leiðinni. Rigon kemst í boltann og er kominn einn í gegn og skorar. Rangstaða ranglega dæmd þar sem Óli hefur haldið að sendingin hafi verið frá KH manni. Rigon fékk gult fyrir mótmæli og Hallgrímur Dan þjálfari fékk rautt.
KH
80. mín
InnRigon Jón Kaleviqi
ÚtTristan Snær Daníelsson
Reynir S.
79. mín
InnPáll Guttormsson
ÚtSigurður Orri Ingimarsson
KH
77. mín
InnÞorsteinn Jökull Ívarsson
ÚtHaraldur Elí Sigurðsson
Reynir S.
76. mín
Stoppar sókn

Valur Þór Magnússon

Mjög góður sprettur upp kantinn Viktori og Valur hefur lítið annað val en að toga hann niður.
KH
73. mín
ÚFFFFF

Kristófer Heimisson

Ég hef misst af fyrra gula spjaldinu hjá honum en þetta var seinna gula. Alltof seinn í tæklingu sem er harkaleg. Martraðar seinni hálfleikur hjá heimamönnum.
70. mín
Það er ekki hægt að telja þessar hornspyrnur Reynis lengur, líklega komnar hátt í 10 í seinni hálfleik. Úr þessari kom góður bolti inn í teig og skalli Jordans rétt yfir.
Reynir S.
68. mín
InnÍsak Daði Ívarsson
ÚtAlex Þór Reynisson
Reynir S.
67. mín
ALLT JAFNT

Jordan Smylie

Reynir fær enn eina hornspyrnuna, barningur í teignum og boltinn fer einhvernveginn í stöngina. Jordan er fyrstur til, ræðst á boltann og potar boltanum inn, ekki ósvipað fyrra markinu.
64. mín
Kristinn reynir skotið fyrir utan teig en það er beint á Sindra sem á í litlum vandræðum með skotið.
61. mín
Sturla með flott hlaup og ætlar að senda fyrir á Tristan en þeir uppskera hornspyrnu. Lítið að frétta úr hornspyrnunni.
59. mín
Heimamenn ógna
Tristan í fínni stöðu inn í teignum en skotið rétt framhjá
KH
57. mín
InnViktor Þór Lárusson
ÚtBjarmi Kristinsson
Tvöföld skipting
KH
57. mín
InnKristinn Kári Sigurðarson
ÚtSigfús Kjalar Árnason
54. mín
Þessi seinni hálfleikur hefur verið í eigu Suðurnesinga sem voru að fá fimmtu hornspyrnu seinni hálfleiks. Hún rann samt út í sandinn.
Reynir S.
51. mín
Hlaut að koma að því

Gísli Grétar Sigurðsson

Barningur í teignum eftir fjórðu hornspyrnu þeirra í seinni. Gísli nær tánni í boltann potar honum inn og skorar þetta mikilvæga þriðja mark. Allt opið á Hlíðarenda!
49. mín
Frábær sprettur hjá Sigurði Orra en KH vörnin nær að tækla í horn. Úr hornspyrnunni fá þeir annað horn. OG svo annað.
47. mín
Reynismenn fá horn en heimamenn skalla frá
46. mín
Heimamenn hefja síðari hálfleik
45. mín
Engu bætt við og heimamenn leiða 2-0 í hálfleik, Flóki hefur séð til þess að Reynismenn hafi ekki náð að minnka muninn, nokkrum sinnum.
43. mín
Tækifæri
Eyþór kominn í fína stöðu inn í teignum en Flóki ver vel. Hann hefur átt mjög fínan fyrri hálfleik.
KH
38. mín
VÁÁÁÁÁÁ

Luis Carlos Cabrera Solys

Misheppnuð sending til baka hjá Alex sem Luis kemst inn í. Hann er fljótur að bregðast við og skýtur lengst utan af velli. Sindri í markinu er allt of framarlega og nær ekki til boltans. Frábært mark!
35. mín
Þetta er ekki góður kafli hjá KH sem eiga of margar feilsendingar í augnablikinu. Hafa ekki náð almennilegri sókn lengi.
32. mín
Suðurnesingar hafa legið á heimamönnum síðustu mínútur.
28. mín
Mörkin gætu hæglega verið orðin fleiri í þessum leik
25. mín
DAUÐAFÆRI
KH menn tapa boltanum í uppspili og gestirnir koma með góða sendingu inn á Alex. Hann drepur boltann og hefur tíma en skotið ekki hnitmiðað og fer framhjá.
23. mín
Reynir fær enn eina hornspyrnuna en þeir ná ekki skoti á markið.
21. mín
Frábærlega spilað
Heimamenn láta boltann flakka hratt fyrir utan vítateiginn. Hann endar hjá Luis sem á skotið en Sindri ver vel frá fyrirliðanum.
16. mín
STÖNGIN
Tristan gerir mjög vel, kemst framhjá nokkrum og kemst inn í teiginn og á svo skot sem endar í stönginni. Þarna mátti litlu muna. Góð færi fyrir bæði lið þessa stundina.
15. mín
VARSLA
Þarna mátti ekki miklu muna, Jordan fær fína sendingu inn fyrir og nær föstu skoti meðfram jörðinni en Flóki kastar sér niður og nær höndinni í boltann.
9. mín
HÆTTULEGUR BOLTI
Sendingin inn í teiginn og þarna hafði bara þurft eina tá og boltinn hefði legið í netinu. KH nær að hreinsa frá á endanum. Nú fá þeir horn hinum megin frá en ekkert varð úr því, endar í markspyrnu.
8. mín
Gestirnir fá hornspyrnu
Fyrsta hornspyrna leiksins er gestanna
KH
6. mín
Heimamenn leiða!

Tristan Snær Daníelsson (stoðsending: Sigfús Kjalar Árnason)

Sigfús fær boltann á vítateigshorninu og hleypur í átt að endamörkum, kemur þá með sendinguna inn í teiginn sem ratar beint á Tristan sem klárar þetta þægilega í nærhornið.
1. mín
JORDAN
Gísli kemur með frábæra fyrirgjöf beint á pönnuna á Jordan Smylie en Flóki ver vel. Reynismenn nálægt því að taka forystuna strax í upphafi leiks.
1. mín
Farið af stað
Gestirnir sparka þessu af stað
0. mín
Þetta fer að bresta á
Liðin eru rétt að klára að hita upp í rigningunni á N1 - vellinum og áhorfendur farnir að tínast inn.
0. mín
Mættust í deildinni
Liðin mættust í deildinni hér á þessum velli fyrir rétt tæpum mánuði síðan. Sá leikur endaði í stórmeistara jafntefli, 2-2. Ég býst við hörkuleik hérna í kvöld!
0. mín
Reynir Sandgerði
Reynir Sandgerði skrapp til Hafnar í 32 liða úrslitunum þar sem þeir mættu Sindra. Reynir vann þann leik einnig 3-1. Gengi Reynis í deildinni er mjög svipað gengi KH en Sandgerðingar hafa unnið 6, gert 2 jafntefli og tapað þremur og sitja í 4. sæti. Þeir eru með 20 stig og með markatöluna +7.
0. mín
KH
Í 32 liða úrslitum Gatorade bikarsins fékk KH KÁ í heimsókn. Sá leikur endaði 3-1 fyrir heimamönnum. Í deild hafa þeir unnið 6, gert 3 jafntefli og tapað 2 leikjum og sitja í 3. sæti. Þeir eru því með 21 stig, 4 stigum frá toppnum og eru jafnframt með bestu markatöluna í deildinni, +16.
0. mín
Tríóið
Óli Njáll Ingólfsson verður með flautuna í kvöld og mennirnir með flöggin verða Kári Mímisson og Ragnar Karl Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Valsvöllurinn heilsar
Komiði margblessuð og sæl og verið velkomin í þessa textalýsingu beint frá Valsvelli. Í kvöld er 3. deildar slagur í 16 liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net þegar Knattspyrnufélagið Hlíðarendi tekur á móti Reyni frá Sandgerði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.