Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Fótbolti.net bikarinn
Malbikstöðin að Varmá
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
0 - 2
Ýmir
Ýmir
0 - 137' Breki Ottósson0 - 279' Breki Ottósson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Hvíti Riddarinn skákaður og mátaður á heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Ýmir var með betri varnarframmistöðu í dag, Hvíti Riddarinn fengu ekki nein alvöru færi í dag fyrir utan tvö. Ýmir skoruðu úr tveimur skyndisóknum sem líta ekki vel út fyrir Hvíta Riddarann. Sigurinn var verðskuldaður.

Bestu leikmenn

1. Breki Ottósson

Skoraði tvennu í dag, annars var hann mjög solid. Mörkin sem hann skoraði voru mjög góð. Klappaði svo til aðdáenda eftir leikinn.

2. Björn Mikael Karelsson

Það er mikilvægt að vera með traustan markvörð, hann var ekki með neinar sjónvarpsvörslur en hann varði eina dauðafærið hjá Hvíta Riddaranum svo var hann mjög solid í öllum hornum.

Atvikið

Fyrsta mark Ýmis er atvikið. Eftir það gat Ýmir verið aðeins meira til baka og Hvíti Riddarinn þurfti auðvitað að skora. Svo kom bara skyndisókn og Ýmir skoraði annað, alvöru varnarframmistaða. Hvíti Riddarinn átti erfitt með að brjóta Ými niður.

Hvað þýða úrslitin?

Hvíti Riddarinn er úr leik en Ýmir kemst í næstu umferð og nær úrslitunum.

Vondur dagur

Fyrsta mark Breka var frekar létt fyrir hann og ég held að menn voru ekki ánægðir með varnarleikinn þá. Breki labbaði inn í teig andstæðingsins og skotið var ekki það besta.

Dómarinn - 5

Fyrri var solid en þegar það fór að líða undir lok þá koma nokkrar umdeildar ákvarðanir. Þessar ákvarðanir höfðu samt engin áhrif á leikinn, en það sem ég skil samt ekki af hverju það var bætt við 7 mínútur við lok leiks þegar hann þurfti þess ekki, mín skoðun.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.