Fotbolti.net
@fotboltinetHafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Fótbolti.net bikarinn
Blönduósvöllur
Skýjað og rigning
Kormákur/Hvöt
Kormákur/Hvöt
7 - 4
Kári
Kári
0 - 120' Benedikt Ísar BjörgvinssonPere Belmonte (víti) 30'1 - 1Guzman Díaz Scarone 35'2 - 12 - 288' Stefán Logi Sigurjónsson2 - 3110' Finnbogi Laxdal AðalgeirssonSigurður Bjarni Aadnegard 121'3 - 3Pere Belmonte (víti) 123'4 - 3Manuel Ferriol Martínez (víti) 123'5 - 3Guzman Díaz Scarone (víti) 123'6 - 3Federico Ignacio Russo Anzola (víti) 123'7 - 37 - 4123' Grétar Jónatan Pálmason (víti)
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson
Leik lokið!
ÞVÍLÍKAR SENUR!!! TAKK KÆRLEGA FYRIR MIG!!!
Kormákur/Hvöt
123. mín
MAAAARK!

Federico Ignacio Russo Anzola

FYRIRLIÐINN KLÁRAR ÞETTA
123. mín
Árni Salvar Heimisson (Kári) brennir af
HANN FER Í SLÁNNA! NÚ ÞURFA HEIMAMENN AÐ SKORA TIL AÐ SIGRA
Kormákur/Hvöt
123. mín
MAAAARK!

Guzman Díaz Scarone

Sendir Kasper í vitlaust horn!
Kári
123. mín
MAAAARK!

Grétar Jónatan Pálmason

Nr. 26 með flotta spyrnu, Uros fer í rétt horn þó en ekki dugar það til
Kormákur/Hvöt
123. mín
MAAAARK!

Manuel Ferriol Martínez

Smellir honum í vinstra hornið!
123. mín
Albert Hafsteinsson (Kári) brennir af
UROS VER ÞETTA!!!!!!
Kormákur/Hvöt
123. mín
MAAAARK!

Pere Belmonte

Fín spyrna í hægra hornið, Kasper fer í rétta horn en það dugar ekki
122. mín
VIÐ ERUM Á LEIÐINNI Í VITASPYRNUKEPPNI GÓÐIR LESENDUR!!!!
Kormákur/Hvöt
122. mín
InnUros Djuric
ÚtJón Þór Valdimarsson
UROS KEMUR INN FYRIR VÍTAKEPPNINA
Kormákur/Hvöt
121. mín
MAAAARK!

Sigurður Bjarni Aadnegard

SIGURÐUR BJARNI ADNEGAAARD ER AÐ SENDA ÞETTA Í VÍTASSPYRNUKEPPNI!!!!! SENUR Á BLÖNUDÓSVELLI
Kormákur/Hvöt
119. mín
Gult spjald

Federico Ignacio Russo Anzola

Fyrir tuð
119. mín
Horn fyrir gestina
117. mín
Horn fyrir heimamenn
Hreinsað eftir skot frá Sigga
113. mín
Gestirnir ná ekki að nýta þetta
113. mín
Jón Þór með frábæra vörslu eftir gott skot, fer í horn
Kormákur/Hvöt
112. mín
Gult spjald

Manuel Ferriol Martínez

Glæfraleg tækling
Kári
110. mín
ERU GESTIRNIR AÐ KLÁRA ÞETTA?!?!??!

Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson

EINN Á MÓTI JÓN ÞÓRI OG SETUR HANN Í VINSTRA HORNIÐ!! HEIMAMENN BRJÁLAÐIR, SEGJA AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ BROT Í UPPBYGGINGU MARKSINS OG RANGSTÆÐA LÍKA
108. mín
Ingibergur næstum búinn að ná þriðja marki heimamanna! Boltinn á leiðinni inn en þeir ná að hreinsa aftur á Ingiberg. Slakt skot í fyrsta hjá honum eftir á
106. mín
Seinni hafinn
105. mín
Fyrri hálfleikur lokinn
104. mín
PAPA DIOUNKOU ÞVÍLÍK TÆKLING
JÓN ÞÓR VER FYRIRGJÖF, BOLTINN FER TIL BAKA Á NR. 26 OG PAPA BLOKKERAR ÞETTA FRÁBÆRLEGA.
102. mín
Horn fyrir Kára
Mikið klafs í þessu og heimamenn hreinsa
98. mín
Horn fyrir heimamenn
Pol með skot í varnarmann og út í horn Pol fær svo boltann eftir hornið og tekur volley! Fer rétt svo framhjá!
95. mín
Pere með þvílíkt show, hleypur hring um leikmann og tekur skotið af löngu færi! Boltinn yfir þó
Kári
94. mín
Gult spjald

Jóhannes Már Daníelsson

Sýndist hann fá gult frekar en Trausti. Sá það ekki almennilega
93. mín
DAUUUUUUÐAFÆRI FYRIR HEIMAMENN
HAUKUR HLEYPUR UPP HÆGRI KANTINN OG REYNIR FYRIIRGJÖFINA!! SIGGI HITTIR HANN HREINLEGA EKKI OG BOLTINN FER ÚT Í INNKAST!!
91. mín
Gestirnir byrja af krafti strax! Albert kemst upp vinstri kant en heimamenn hreinsa! Þetta verður fjörugt
91. mín
Fyrsti hálfleikur í framlengingu hafinn!
90. mín
+3
Og það er framlenging!!!
90. mín
+1
Horn fyrir heimamenn Fede skallar yfir
Kári
88. mín
KÁRAMENN JAFNA

Stefán Logi Sigurjónsson

ROSALEGUR DARRAÐARDANS!!!!!! SÉ EKKI HVER NÆLIR ÞESSUM INN, EN JÓN ÞÓR VIRÐIST VERJA Á LÍNU EN DÓMARINN DÆMIR FYRST AÐ BOLTINN HAFI EKKI FARIÐ INN EN LÍNUVÖRÐUR SEGIR ANNAÐ!!! VIÐ ERUM MEÐ LEIK
87. mín
Horn fyrir Kára
Kári
85. mín
InnGrétar Jónatan Pálmason
ÚtMikael Hrafn Helgason
Grétar að koma inná fyrir númer 11 sem er ekki á skýrslu hjá Kára. Set bara ágiskun!
Kormákur/Hvöt
84. mín
InnHaukur Ingi Ólafsson
ÚtHlib Horan
82. mín
Lítið gerst í seinni hálfleik. Það má fara hækka tempóið seinustu mínúturnar
78. mín
Lítið gerst seinustu mínútur. Menn að sparka í bolta og svoleiðis húllumhæ. Rétt í þessu brotið á Pere.
Kormákur/Hvöt
73. mín
InnIngibergur Kort Sigurðsson
ÚtBilal Kamal
Kári
73. mín
InnJóhannes Már Daníelsson
ÚtMarinó Hilmar Ásgeirsson
Kári
73. mín
InnRobert Elli Vífilsson
ÚtJón Þór Finnbogason
Þökkum gæslumanni og leikmanni Ægis, Sigurði Pétri Stefánssyni fyrir þessar upplýsingar!
70. mín
Gestirnir fá horn
Löpp á nr. 11! Fer yfir allan hópinn og í innkast!
65. mín
Sýnist Úlfur hafi skipt öllum inná. Sé í raun ekkert hverjir þetta eru sem fara útaf né inná
Kári
64. mín
InnAlbert Hafsteinsson
ÚtSævar Hrafn Sævarsson
Kári
64. mín
InnFinnbogi Laxdal Aðalgeirsson
ÚtMatthías Daði Gunnarsson
64. mín
Fjórföld skipting hjá Kára!
63. mín
Heimamenn sækja ábyggilega 5. hornið í seinni
Enginn nær snertingunni og hann fer út í markspyrnu
61. mín
Siggi kemst í gegn og reynir skotið! Kasper ver vel en liggur síðan eftir. Hann kvartaði eitthvað í fyrri hálfleik en hann harkar þetta af sér
60. mín
Gleb með skot utan af teig! Flott skot en hann fer í hliðarnetið!!
58. mín
Gísli Fannar tekinn niður í teig Kormáks/Hvatar. Þetta sýndist manni ekki vera öxl í öxl. Gísli ósáttur út í dómarann
55. mín
ÞVÍLÍK VARSLA!!!!
Jón Þór með geggjaða vörslu! Frábært uppspil hjá Kára! Sýnist Sævar eiga sendinguna en sé ekki hver tekur skotið! En Jón Þór gerir frábærlega í 1-á-móti-1!
53. mín
Gestirnir sækja horn
Jón Þór nær að kýla þetta frá
52. mín
Annað horn fyrir heimamenn
Stúkan að taka róðurinn, takið frekar húið! En að hornspyrnunni, þá var hún illa nýtt!
50. mín
Gestirnir ógna með fínni sókn, Fede nær þó að skalla frá
47. mín
Horn fyrir heimamenn - ekki lengi að sækja það
Sýnist Papa ná snertingunni, boltinn fer í hliðarnetið og markspyrna
46. mín
Gestirnir sparka seinni af stað!
Held það hafa ekki verið skiptingar gerðar
45. mín
+1
Bætir ekki miklu við, dómarinn. Sjáumst eftir korter!
45. mín
Annað horn
Flottur bolti, Papa skallar hann upp og Kasper grípur hann
44. mín
Horn fyrir heimamenn
Slakur bolti frá Pere þarna, fær boltann til baka og lætur hann renna í innkast. Mislukkað færi hjá heimamönnum
42. mín
Lítið gerst eftir seinna mark heimamanna
Kormákur/Hvöt
35. mín
VÁ!!!!

Guzman Díaz Scarone (stoðsending: Pol Morlans Martin)

GUZMAN FÆR BOLTANN, LEIKUR Á VARNARMANN KÁRA SEM RENNUR NIÐUR EINS OG HANN HAFI STIGIÐ Á BANANAHÝÐI, SENDIR HANN SVO Í NEÐRA VINSTRA HORNIÐ ÚR D-BOGANUM!!
35. mín
Leikmaður nr. 11 tekinn niður í teig Hvatar og þeir vilja fá dæmda vítaspyrnu á þetta. Sá þetta ekki nægilega vel!
34. mín
FEDE MEÐ ÞRUMUFLEYG
Skot langt utan af teig, virtist ætla reyna það sem Trausti afrekaði fyrir nokkrum leikjum! Boltinn fer hins vegar hátt yfir!
33. mín
Flott skot hjá Marinó! Fær boltann frá samherja eftir mislukkaða hreinsun frá Jón Þóri. Boltinn hinsvegar beint á Jón Þór
Kormákur/Hvöt
30. mín
ÞEIR JAFNA

Pere Belmonte

Frábær spyrna hjá Pere! Hátt í vinstri stöngina og inn!
29. mín
VÍTI!!!
POL TEKINN NIÐUR Í TEIGNUM EFTIR HÆTTULEGA SPYRNU!! FYRST VILDU HEIMAMENN DÆMDA HENDI EN STUTTU SEINNA ER POL TEKINN NIÐUR
29. mín
Aukaspyrna fyrir heimamenn
27. mín
Leikmaður númer 11 hjá Kára er ekki skráður á skýrslu, ef einhver veit hver það er má endilega senda á mig!
26. mín
Bilal með skot sem fer yfir, frábærlega spilað milli leikmanna Kormáks/Hvatar, vantaði bara upp á finishið
22. mín
Þriðja horn Kormáks
Pere með flottan bolta inn, Pol reynir að skalla hann en gestirnir hreinsa
Kári
20. mín
Gestirnir leiða!

Benedikt Ísar Björgvinsson (stoðsending: Matthías Daði Gunnarsson)

Gestirnir nýta sér mislukkaða hornspyrnu og hlaupa upp kantinn. Frábært spil milli Matthíasar og Benedikts, spila sig í gegnum vörnina og Benedikt nær að setja hann framhjá Jóni! 0-1!
19. mín
NÆSTUM ÞVÍ SJÁLFSMARK!
Bilal kominn með boltann á vinstri kantinn, gerir nokkur trix, missir hann frá sér, varnarmenn ná að hreinsa út í hornspyrnu en boltinn fer næstum því í markið!
18. mín
Heimamenn mikið meira að ógna. Spila mikið á hægri kantinum. Boltinn endar á Pere sem er vinstra megin, reynir fyrirgjöf en boltinn aðeins of hár og fer út í markspyrnu
16. mín
Gleb fær boltann á hægri kant frá Guzman, en boltinn mislukkaður og gestirnir hreinsa
16. mín
Gestirnir með flott upphlaup. Ná þó ekki að tengja eina sendingu og hann fer út í markspyrnu
14. mín
Lítið búið að gerast svosem. Boltinn fer svolítið bara fram og til baka
9. mín
Heimamenn hóta, Gísli Fannar missir boltann klaufalega og Bilal spyrnir honum inn í teiginn. Boltinn aðeins of langur fyrir Gleb og út í innkast
5. mín
Horn fyrir heimamenn
Fyrsta horn kvöldsins, Guzman tekur þetta. Flottur bogi hjá honum en markmaðurinn kýlir frá og hreinsar
3. mín
Stefán Logi dettur niður í teignum sýndist mér og vill fá eitthvað fyrir sinn snúð, en Róbert segir nei
1. mín
Gaman að sjá einhverja stráka með flautu og söngva!
1. mín
Og þetta er hafið!
Heimamenn sparka þessu af stað! Góða skemmtun!
0. mín
Liðin eru að labba út á völl! Heimamenn í bleiku og svörtu og gestirnir í röndóttum bláum og svörtum treyjum! Þessi veisla fer fljótlega að hefjast!
0. mín
20 mínútur í leik og lið eru að hita upp. Það er rigning og skýjað svo maður fer klárlega í bílastúkuna!
0. mín
Byrjunarlið
Heimamenn gera fjórar breytingar á sínu byrjunarliði frá því um helgina gegn Fjölni. Inn fyrir Uros markmann kemur Jón Þór, Papa, Sigurður Aadnegard og Gleb Goran koma líka inn. Úlfur gerir hvorki meira né minna 5 breytingar á Káraliðinu. Inn í mark kemur Kasper Úlfarsson, inn koma einnig Gísli Fannar, Benedikt Ísar, Sævar Hrafn og Mikael Hrafn.
0. mín
Þessi lið mættust fyrir rúmum mánuði hér á Blönduósvelli, en þar fóru Húnvetningar með 4-1 sigur af býtum, en í þeim komust gestirnir yfir á 26. mínútu. Rúmu korteri seinna jafnaði Trausti Þór Þorgilsson með rugluðu marki utan af teig! Síðan tók einstefna í mörkum við, Ismael Sidibe, Bilal Kamal og Manu Ferriol skoruðu mörk heimamanna í fyrri hálfleik! Sjáðu mörkin
0. mín
Innbyrðis viðureignir
Þessi lið hafa aðeins mætt hvoru öðru átta sinnum, en í þeim viðureignum hafa Kormáks/Hvatarmenn sigrað 5, Kári sigrað 2 og liðin skilað jöfnu einu sinni. Þessi jafnteflisleikur er mörgum minnisstæður og ekki fyrir góða ástæðu. Alls fóru 5 rauð spjöld á loft í þessum leik og þar af 4 fyrir Kormák/Hvöt. Hilmar Halldórsson, leikmaður Kára, var fyrir því atviki að vera bitinn í kálfann af mótherja og var sendur í stífkrampasprautu eftir leik. En nóg um vampírur og rauð spjöld! Stærsti sigur í þessum viðureignum var fyrir rúmum mánuði síðan á Blönduósvelli, en þar sigruðu heimamenn 4-1. Stærsti sigur Kára var einnig í ar, en það var í Lengjubikarnum fræga þar sem þeir sigruðu 4-2. Hins vegar hafa lið Kára og Hvatar mæst þrisvar. Hvöt sigraði tvo leiki og Kári einn, en þessir leikir gerðust allir fyrir 20 árum síðan. Merkilegt nokk er það í tvemur af þessum leikjum skoraði Dejan Djuric, pabbi Danijel Dejan Djuric, fyrir Hvöt!
0. mín
Tímabil Kára
Káramenn sitja sæti og stigi ofar en Kormákur/Hvöt með 17 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var fyrir viku síðan gegn Haukum á Ásvöllum, en þar töpuðu Káramenn 1-4. Markahæsti leikmaður Kára þetta tímabil hefur verið Matthías Daði, en hann hefur skorað 10 mörk í 11 leikjum þegar talið er í deild og Gatorade-bikarnum! Fyrsti leikur Kára þetta árið í Gatorade-bikarnum var stórsigur heimamanna á Akranesi 5-1 gegn bitlausum Vængjum Júpíters.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Tímabil Kormáks/Hvatar
Húnvetningarnir sitja í 5. sæti 2. deildar þetta árið, með 16 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var 1-1 jafntefli gegn Fjölni í Grafarvoginum. Án efa er afkastamesti leikmaður þeirra Pere Belmonte, hann er kominn með 5 mörk í bæði deild og Gatorade-bikarnum í 9 leikjum. Fyrsti leikur þeirra í Gatorade-bikarnum þetta árið var gegn Víkingi Ó. á Blönduósvelli, en heimamenn sigruðu 3-2 í æsispennandi leik sem fór í framlengingu!
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Dómaramál
Dómari leiksins er Róbert Þór Guðmundsson, honum til aðstoðar eru Heimir Árni Erlendsson og Margeir Valur Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Blönduósvelli, en þar munu Kormáks/Hvatarmenn etja kappi við Kára í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins!
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.