Fotbolti.net
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Fótbolti.net bikarinn
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
5 - 0
Árborg
Árborg
Brynjar Bergsson 3'1 - 0Viðar Örn Kjartansson 13'2 - 0Viðar Örn Kjartansson 24'3 - 0Elías Karl Heiðarsson 39'4 - 0Viðar Örn Kjartansson (misnotað víti) 45'Aron Fannar Birgisson 79'5 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Tileinkaði móður sinni markið á eftirminnilegu kvöldi

Hvað réði úrslitum?

Selfoss var með öll völd á vellinum frá upphafi til enda. Árborg náði aldrei að ógna marki Selfoss af alvöru og leikurinn fór að mestu leyti fram á vallarhelmingi gestanna.

Bestu leikmenn

1. Aron Fannar Birgisson

Aron Fannar fær þetta frá mér. Hann kom inn á sem varamaður í hálfleik og það lá nánast í loftinu að hann myndi skora í þessum leik. Það gerði hann síðan með skalla eftir hornspyrnu og átti afar tilfinningaríkt augnablik þegar hann fagnaði markinu með Selfoss-treyju merkta móður sinni.

2. Viðar Örn Kjartansson

VÖK átti frábæran leik, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hann hefði jafnvel getað fullkomnað þrennuna en fór illa með vítaspyrnu.

Atvikið

Atvik leiksins átti sér stað á 79. mínútu þegar Aron Fannar skoraði með skalla eftir hornspyrnu og tileinkaði markið móður sinni, Helgu Guðmundsdóttur, sem lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein. Það var einstaklega tilfinningaríkt augnablik á JÁVERK-vellinum.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss er komið áfram í átta liða úrslit Fótbolta.net bikarsins. Sigurinn ætti jafnframt að gefa liðinu aukið sjálfstraust fyrir komandi verkefni í deildinni.

Vondur dagur

Ef ég ætti að nefna einn leikmann væri það Stefán Blær. Hann var reglulega í basli í leiknum og fór út í misheppnað úthlaup þar sem hann fékk boltann yfir sig. Í kjölfarið kom vítaspyrnan sem Selfoss reyndar klikkaði á. Þá hefði hann einnig mögulega getað komið í veg fyrir eitt til tvö mörk.

Dómarinn - 9

Gunnar Oddur dæmdi þennan leik fáránlega vel ekkert út á hann að setja engin vafa atriði og leyfði leiknum að fljóta vel!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.