Fotbolti.net
@fotboltinetHafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Fótbolti.net bikarinn
Blönduósvöllur
Kormákur/Hvöt
Kormákur/Hvöt
0 - 0
Kári
Kári
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson
0. mín
Innbyrðis viðureignir
Þessi lið hafa aðeins mætt hvoru öðru átta sinnum, en í þeim viðureignum hafa Kormáks/Hvatarmenn sigrað 5, Kári sigrað 2 og liðin skilað jöfnu einu sinni. Þessi jafnteflisleikur er mörgum minnisstæður og ekki fyrir góða ástæðu. Alls fóru 5 rauð spjöld á loft í þessum leik og þar af 4 fyrir Kormák/Hvöt. Hilmar Halldórsson, leikmaður Kára, var fyrir því atviki að vera bitinn í kálfann af mótherja og var sendur í stífkrampasprautu eftir leik. En nóg um vampírur og rauð spjöld! Stærsti sigur í þessum viðureignum var fyrir rúmum mánuði síðan á Blönduósvelli, en þar sigruðu heimamenn 4-1. Stærsti sigur Kára var einnig í ar, en það var í Lengjubikarnum fræga þar sem þeir sigruðu 4-2. Hins vegar hafa lið Kára og Hvatar mæst þrisvar. Hvöt sigraði tvo leiki og Kári einn, en þessir leikir gerðust allir fyrir 20 árum síðan. Merkilegt nokk er það í tvemur af þessum leikjum skoraði Dejan Djuric, pabbi Danijel Dejan Djuric, fyrir Hvöt!
0. mín
Tímabil Kára
Káramenn sitja sæti og stigi ofar en Kormákur/Hvöt með 17 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var fyrir viku síðan gegn Haukum á Ásvöllum, en þar töpuðu Káramenn 1-4. Markahæsti leikmaður Kára þetta tímabil hefur verið Matthías Daði, en hann hefur skorað 10 mörk í 11 leikjum þegar talið er í deild og Gatorade-bikarnum! Fyrsti leikur Kára þetta árið í Gatorade-bikarnum var stórsigur heimamanna á Akranesi 5-1 gegn bitlausum Vængjum Júpíters.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Tímabil Kormáks/Hvatar
Húnvetningarnir sitja í 5. sæti 2. deildar þetta árið, með 16 stig eftir 11 leiki. Seinasti leikur þeirra var 1-1 jafntefli gegn Fjölni í Grafarvoginum. Án efa er afkastamesti leikmaður þeirra Pere Belmonte, hann er kominn með 5 mörk í bæði deild og Gatorade-bikarnum í 9 leikjum. Fyrsti leikur þeirra í Gatorade-bikarnum þetta árið var gegn Víkingi Ó. á Blönduósvelli, en heimamenn sigruðu 3-2 í æsispennandi leik sem fór í framlengingu!
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Dómaramál
Dómari leiksins er Róbert Þór Guðmundsson, honum til aðstoðar eru Heimir Árni Erlendsson og Margeir Valur Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Blönduósvelli, en þar munu Kormáks/Hvatarmenn etja kappi við Kára í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins!
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.