Fotbolti.net
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
Fótbolti.net bikarinn
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
0 - 0
Árborg
Árborg
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
0. mín
Leiðin í 16-liða úrslitin
Árborg, sem er í 4. deild, sigraði KFG á útivelli í 1. umferðinni. Þorkell Þráinsson skoraði eina mark leiksins. Selfoss, sem er í 2. deild, sigraði Hafnir 1-3 í 1. umferðinni. Elías Karl Heiðarsson skoraði tvennu og Viðar Örn Kjartansson skoraði eitt.
0. mín
Styrktarleikur fyrir Helgu
Leikurinn verður styrktarleikur fyrir Helgu Guðmundsdóttur en hún háir nú baráttu við illvígt krabbamein. Að ósk Helgu mun allur ágóði af leiknum renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Það er þjónusta sem Helga hefur þurft að nýta sér í sínum veikindum og vill hún leggja sitt af mörkum til þess að styðja við þetta mikilvæga starf sem hefur reynst henni svo vel. Helga er móðir Arons Fannars Birgissonar, leikmanns Selfoss, og fyrrum leikmanns Árborgar.
0. mín
Nágrannaslagur á Selfossi
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá nágrannaslag Selfoss og Árborgar í 16-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og fer fram á JÁVERK-vellinum á Selfossi.
Mynd: Facebook
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.