Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHelgi Inguson
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
3 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Taylor Marie Hamlett 10'1 - 01 - 119' Edith Kristín Kristjánsdóttir1 - 224' Líf Joostdóttir van BemmelTaylor Marie Hamlett 73'2 - 2Harpa Helgadóttir 89'3 - 2
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson

SKÝRSLAN: Fýluferð Breiðabliks í Dal draumanna

Hvað réði úrslitum?

Það var tvennt sem réði úrslitum í þessum leik. Það var baráttan og viljinn sem Fram sýndi í þessum leik og hins vegar færanýting Blika sem var alls ekki upp á marga fiska. Seinni hálfleikur Framara var virkilega góður og liðið átti svo sannarlega skilið að fá stig úr þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Taylor Marie Hamlett

Taylor var frábær. Hún var ótrúlega kraftmikil og afskaplega ógnandi í hvert skipti sem hún fékk boltann. Tvenna hjá henni í dag sem skemmir ekki fyrir.

2. Ashely Brown Orkus

Ashley var afskaplega góð í marki Fram. Breiðablik fékk nóg af færum í dag en Ashley átti nokkrar frábærar vörslur.

Atvikið

Sigurmark Framara. Blikar hreinsa illa eftir hornspyrnu Framara. Boltinn rúllar til Hörpu Helgadóttur sem á bylmingsskot fyrir utan teig gestanna. Herdís átti ekki séns í þetta skot.

Hvað þýða úrslitin?

Fram vermir enn botnsæti deildarinnar en þessi sigur ætti að veita liðinu byr undir báða vængi í baráttunni um að halda sér í deild þeirra bestu. Breiðablik er nú í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir FH.

Vondur dagur

Færanýting Breiðabliks var slök svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ólöf Sigríður fékk urmul af færum en var einfaldlega í krummafót fyrir markið.

Dómarinn - 7

Tók lítið eftir Hallgrími sem er oftast ávísun á vel dæmdan leik. Engin vafaatriðið í dag og fín frammistaða hjá dómarateyminu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.