Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Þessi lið mættust í deildinni þann 30. apríl á Avis vellinum þar sem Þróttarar báru sigur úr býtum í leik sem endaði 2-1. Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir í leiknum en mörk frá Sigríði Theódóru Guðmundsdóttur og Kayla Rollins tryggðu Þrótti sigurinn. Úr fyrri leik liðanna á þessu tímabili
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þriðja liðið
Arnar Ingi Ingvarsson er dómari þessa leiks en honum til halds og trausts eru Tijana Krstic og Arnþór Helgi Gíslason. Reynir Ingi Finnsson er svo á skiltinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar eru búnar að vera óstöðugar það sem af er á móti en í síðustu fimm leikjum eru þær með tvo sigra, tvö töp og eitt jafntefli. Í síðasta leik fóru þær norður á Akureyri þar sem þær töpuðu 2-0 fyrir Þór/KA. Þróttur er í miðjupakkanum sem hefur myndast í deildinni með 13 stig í 5. sætinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
FH hafa verið á miklu flugi undanfarið en þurftu að sætta sig við eitt stig úr síðasta leik gegn Valskonum. Ída Marín skoraði mark FH í leiknum á 3. mínútu áður en Valskonur jöfnuðu á þeirri 38. Eins og er eru FH í öðru sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi á eftir Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
Góðan daginn
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu kæru lesendur. Þessi leikur FH og Þróttar er liður í 10. umferð Bestu deildarinnar og flautað er til leiks klukkan 19:15 í Kaplakrika.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.