Fyrir leik
ÍR
ÍR er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig og liðið hefur einungis fengið 5 stig í síðustu 8 leikjum. Breiðhyltingar gerðu hins vegar sterkt jafntefli í síðasta leik, gegn Þrótti, þar sem þeir léku manni færri í 70 mínútur.


Fyrir leik
Dómarateymið
Hreinn Magnússon verður á flautunni í dag. Honum til aðstoðar eru Kári Mímisson og Ronnarong Wongmahadthai á flöggunum. Þórður Georg Lárusson er eftirlitsmaður KSÍ.


Fyrir leik
Velkominn í Kórinn
Góðan daginn kæri lesandi og vertu velkominn í textalýsingu frá leik HK og ÍR í 14. umferð Lengjudeildarinnar.




