Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 2
Þór/KA
Þór/KA
Fanney Lísa Jóhannesdóttir 6'1 - 01 - 136' Bríet JóhannsdóttirSnædís María Jörundsdóttir 57'2 - 1Hulda Hrund Arnarsdóttir 65'3 - 13 - 291' Erin Flurey (víti)
Dómari: Atli Björn E Levy
Leik lokið!
Sterkur 3-2 Stjörnusigur hér í dag! Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld
95. mín
Brotið á Angelu á hættulegum stað, Emilía Ósk tekur spyrnuna í pakkann en þær ná að koma þessu frá, Atli Björn flautar leikinn svo af
93. mín
Þór/KA er alveg að gera atlögu að jöfnunarmarkinu! Karen Hulda setur boltann inn á teiginn þar nær Amalía skallanum en rétt yfir markið
91. mín
A.m.k. 5 mínútur í uppbótartíma,
Þór/KA
91. mín
Mark úr víti!

Erin Flurey

Öruggt í vinstra hornið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
90. mín
Mér sýnist þetta vera Jakobína sem liggur hér eftir brotið, er studd útaf
89. mín
VÍTI!
Brotið á Erin Flurey
Stjarnan
86. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Þór/KA
86. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
85. mín
JESÚS!
Erin Flurey með frábæra fyrirgjöf hittir beint á Bríeti sem á bara eftir að pota boltanum inn en setur hann beint á Skiba, þarna þarf að gera betur í svona dauuuuuuðafæri!
82. mín
Erin Flurey gerir vel, finnur svo Margréti og tekur overlappið, reynir svo skot en yfir
80. mín
Fínasta sókn hjá Stjörnukonum, Snædís finnur Þóru Maríu upp í horn, hún nær svo að koma honum fyrir þar sem Snædís er mætt og reynir skotið en yfir markið
75. mín
STÓRAR BREYTINGAR
Stórar breytingar hjá báðum liðum! Arna Sif farin úr vörninni hjá Þór/KA og Murielle Tiernan er að koma inn á eftir næstum 8 vikna meiðsli hjá Stjörnunni
Stjarnan
75. mín
InnMurielle Tiernan
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Stjarnan
75. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
Þór/KA
74. mín
InnEmelía Blöndal Ásgeirsdóttir
ÚtArna Sif Ásgrímsdóttir
Þór/KA
74. mín
InnAgnes Birta Stefánsdóttir
ÚtElísa Bríet Björnsdóttir
Þór/KA
74. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtMaría Dögg Jóhannesdóttir
72. mín
Hulda Hrun er komin fínustu stöðu en flaggið fer réttilega á loft
71. mín
Andrea Mist tekur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Þórs/KA, lætur bara vaða en rétt yfir
69. mín
Andrea Mist með hornið, Þórs/KA konur skalla þetta frá og Erin gerir sig líklega í skyndisókn en er stöðvuð
Stjarnan
65. mín
MAAAARK!

Hulda Hrund Arnarsdóttir (stoðsending: Telma Steindórsdóttir)

Gerir þetta ógeðslega vel! Telma skiptir boltanum yfir allan völlinn og yfir varnarmenn Þórs/KA og hver lúrir þar önnur en Hulda Hrund sem er það alein og óvölduð og stýrir boltanum í fjærhornið framhjá Alessöndru
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
63. mín
Birgitta reynir tjahh skot? eða fyrirgjöf? Langt utan að velli, en Skiba grípur þetta örugglega
Þór/KA
61. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
60. mín
Stjörnukonur þeysast í skyndisókn, Hulda Hrund ætlar að stinga boltanum inn fyrir en þar er Angela Mary mætt og stelur honum
Stjarnan
57. mín
MAAAARK!

Snædís María Jörundsdóttir (stoðsending: Hulda Hrund Arnarsdóttir)

Þóra María gerir vel inn á miðjunni setur hann svo út á Huldu Hrund, hún finnur svo Snædísi Maríu sem hoppar hæst í teignum og kemur Stjörnunni yfir!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
53. mín
ÚFFF
Hulda Ósk leikur listir sínar, kemst inn fyrir Jakobínu inn í teiginn setur hann svo fyrir þar sem Stjörnukonur ná rétt svo að skalla boltann frá markinu! Þetta var stórhættulegt
51. mín
María Dögg brýtur á Evu Marie, þær taka þetta fljótt og stutt
48. mín
Máfur stelur senunni!
Stal heillri pizzusneið af saklausum áhorfenda og plantaði sér svo á völlinn með fenginn!
Mynd: Snæbjört
46. mín
Erin Flurey sparkar þessu aftur af stað fyrir okkur
Stjarnan
46. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
Markaskorarinn útaf
45. mín
1-1 í hálfleik!
Þetta er líklega eins og endurtekin martröð hjá Óskari og lærisveinum hans, dómineruðu fyrstu 20 mínúturnar og hefðu átt að vera búnar að setja 2-3 mörk til viðbótar. Þór/KA vann sig heldur betur inn í leikinn og uppskar frábært jöfnunarmark
45. mín
Hulda Ósk reynir að sækja hornspyrnu en boltinn í hana aftur og út fyrir endalínu
45. mín
Andrea brýtur á Bríeti við miðjubogann, Arna Sif tekur spyrnuna, fer í hælinn á Úlfu Dís en það var engin grimmd í Þór/KA liðinu að elta þetta
43. mín
ÚFFFF
Fanney Lísa sleppur í gegn ákveður að reyna að setja boltann yfir Alessöndru en skóflar boltanum yfir markið
41. mín
Snædís María reynir að setja boltann fyrir en þar er Karen María mætt
Þór/KA
36. mín
MAAAARK!

Bríet Jóhannsdóttir (stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir)

Þetta lá í loftinu! Stjarnan bara bakkaði og leyfði þeim að komast inn í leikinn! María Þrumar honum fram Erin leyfir honum að fara og Bríet laumar sér á bakvið Þóru Maríu og rennir svo boltanum framhjá Skiba í markinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
35. mín
Bríet vinnur boltan af Þóru Maríu finnur Erin Flurey sem snýr Telmu eiginlega bara í hringi,
33. mín
Þór/KA konur komnar eru heldur betur farnar að sækja í sig veðrið, komnar með meiri trú eftir því sem líður á leikinn
Þór/KA
31. mín
Gult spjald

Margrét Árnadóttir

Er ekki alveg viss fyrir hvað þetta spjald var
30. mín
Elísa tekur annað horn fyrir Þór/KA, setur boltann þar sem Erin kemur á ferðinni en nær ekki nægilega góðum skalla
29. mín
Elísa Bríet tekur hornið en ekkert kemur úr því
28. mín
Heyrðu VÁ!
Karen María með þrumufleyg langt út á velli sem Skiba þarf að hafa sig alla við að verja
27. mín
Margrét Árna með fínan bolta yfir völlinn og upp í horn á Bríeti en flaggið góða fer á loft
25. mín
Jakobína brýtur á Huldu ósk út á hægri kanti, Karen María tekur spyrnuna, setur hana í pakkann og þar má minnstu muna að Þór/KA konur næðu honum. Skiba hins vegar vel vakandi og nær honum
23. mín
Úlfa Dís reynir að þræða sig inn en missir boltan út fyrir endalínu
20. mín
Andrea Mist með hornið setur hann á fjærsvæðið en þar er engin tilbúin að taka við boltanum
20. mín
Fanney Lísa lætur vaða en fer í varnarmann og svo hátt yfir
17. mín
Telma með frábæra tæklingu kemur í veg fyrir að Erin Flurey geri neitt
17. mín
Stjörnukonur hafa trekk í trekk komið sér í góðar stöður, þær eru aggressívar og gefa Þór/KA konum engan tíma
14. mín
Margrét nær góðri sendingu upp á Bríeti, sú setur boltann fyrir en þar er engin mætt
12. mín
Brotið á Þóru Maríu við miðjulínuna, Telma setur þetta upp en Karen María skallar þetta frá
11. mín
Aftur er Fanney Lísa að komast alein í boltann á fjær en ekkert kemur þó úr þessu að sinni
7. mín
Úlfa Dís á svona annað þrumuskot en rétt framhjá samskeytunum fjær
Stjarnan
6. mín
MAAAARK!

Fanney Lísa Jóhannesdóttir

Vel pressað hjá Störnunni, Úlfa Dís setur hann á teiginn þar fer boltinn í varnarmann og út til Fanneyjar Lísu sem þrumar honum í netið!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
5. mín
Andrea Mist tekur hornið að vana en boltinn útaf á fjærstönginni
4. mín
Fanney Lísa nálægt því að komast í boltan á stórhættulegum stað en Alessandra kemur vel út og grípur þetta.
3. mín
Arna í baráttunni við Snædísi en skýlir boltanum útaf
1. mín
Snædís María sparkar þessu af stað fyrir Stjörnukonur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru komin inn á völlinn og þetta fer alveg að detta í gang. Allt hefðbundið hér Stjarnan eru bláar-hvítar-bláar og Þór/KA eru hvítar-svartar-hvítar
Fyrir leik
Byrjunarlið - Þór/KA
Aðalsteinn Jóhann þjálfari Þórs/KA gerir þá 2x breytingar frá 1-0 sigri sínum á Grindavík/Njarðvík. Inn í liðið koma Elísa Bríet og Bríet en á bekkinn setjast Hildur Anna og Amalía.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarlið - Stjarnan
Óskar Smári þjálfari Stjörnunnar gerir 1x breytingu á liði sínu frá 1-1 jafntefli gegn Val í síðustu umferð. Snædís kemur inn fyrir Anítu Ýr sem er farin út til Bandaríkjanna í skóla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Liðin hafa mæst 2x í sumar með viku millibili annars vegar í deildinni og hins vegar í mjólkurbikarnum. Mikil dramatík var í báðum leikjum en í deildinni náðu systurnar Amalía og Margrét Árnadætur að knýja fram jafntefli með tveimur mörkum í lok leiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þór/KA
Þór/KA hafa verið að sækja í sig veðrið eftir afleita byrjun á tímabilinu. Þær hafa haldið hreinu og sótt 7 stig í síðustu þremur leikjum með jafntefli gegn Val, óvæntan 2-0 sigur á Þróttir og svo 1-0 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð. Þær sitja þó enn í 9. sætinu fyrir leikinn með 9 stig en það er stutt í miðjumoðið og sigur í dag myndi fleyta þeim upp fyrir botnbaráttuna. Þetta ætti því að verða hörkuleikur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sæti með 18 stig eða þremur stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu. Stjörnukonur misstu aðeins flugið í síðasta leik þegar þær gerðu 1-1 jafntefli við Val en höfðu fram af því unnið 4 leiki í röð. Þær eru hins vegar enn viðloðandi toppbaráttuna og sigur í dag hjálpar þar mikið!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Atli Björn E Levy og honum til halds og trausts verða Eydís Ragna Einarsdóttir og Tijana Krstic aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Óli Njáll Ingólfsson og eftirlitsmaður í dag er Ólafur Ingi Guðmundsson.
Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti Þór/KA í 12. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst á slaginu 18:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.