SKÝRSLAN: Kaflaskiptur sigur Fram
Hvað réði úrslitum?
Þetta var kaflaskipt og ekki mikið fyrir augað. Þróttur var lungan af fyrri hálfleik mun betra liðið og maður sá Fram aðeins gefa meira í þegar það voru fimm mínútur eftir í fyrri. Hinsvegar var Fram miklu betri aðilinn í seinni hálfleik og stelpurnar í Fram sýndu mun meiri ákefð.
Bestu leikmenn
1. Ashley Brown Orkus
Frábær í markinu í dag. Kýldi nánast allar hornspyrnur burt og greip nánast allar fyrirgjafir sem komu til hennar.
2. Mist Funadóttir
Feykilega kröftugur leikmaður hér á ferð og hljóp eins og andskotinn á köntunum. Stóð sig ágætlega þrátt fyrir tapleik.
Atvikið
Ætli það sé bara ekki markið hjá Taylor. Markið kemur á 48. mínútu og var í raun á móti gang leiksins þegar meður tekur fyrri hálfleikinn með í reikninginn. Boltinn rúllaði yfir á Fram þá og þá sá maður þessa ákefð í liðinu.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur situr enn í 5. sæti með 13 stig en Fram klifrar sig ofar, og eru núna í 9. sæti með 10 stig.
Vondur dagur
Leiðinlegt að segja það en manni fannst Þróttarar vera hálf-bitlausir í seinni hálfleik. Sköpuðu ekki mörg færi fannst mér og leiðinlegt að sjá það miðað við hve góðar þær voru í fyrri hálfleik og þær hefðu hæglega getað nýtt nokkur færi betur.
Dómarinn - 7
Arnar bara fínn í dag, sumt fannst manni smá skrýtið en ekkert eitthvað sem situr í manni eftir leik.




