Leik lokið!
Grindvíkingar vinna sinn fyrsta sigur síðan í maí!
Viðtöl og skýrsla innan skamms!
94. mín
Guðmundur Rafn fer fram í horn
og er allt í öllu í horninu! Fær boltann og kemur honum fyrir en Grindvíkingar bægja hættunni svo frá!
92. mín
STÖNGIN!
Grímur Ingi tekur spyrnuna og hún er góð! Fer framhjá vegnum og í stöngina innanverða og út! Þarna mátti litlu muna
91. mín
Gult fyrir brot
Eysteinn Rúnarsson
Mér sýndist það vera Eysteinn91. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað
Gunnleifur Orri Gunnleifsson
Gunnleifur fær gult fyrir mótmæli90. mín
+5
fimm mínútur í viðbót
88. mín
2 mínútur eftir
Grótta er heldur betur að banka, fáum við jöfnunarmark?
82. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtStefán Jón Friðriksson
Síðasta skipting Grindavíkur
81. mín
Sláin!
Gróttumenn eru heldur betur að banka. Hörkuskot í slánna og yfir
80. mín
Nökkvi með tilraun!
Björgvin Brimi er enn eina ferðina með boltann inni í teig, leggur hann út á Nökkva sem á flott skot rétt yfir
73. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Fjórða og síðasta skipting Gróttu
70. mín
Viktor Ingi lætur strax til sín taka
Hefur verið á vellinum í góðar 20 sekúndur þegar hann á góðan sprett inn í teig og sendir boltann fyrir, beint á vítapunktinn en þar vantaði bláa treyju til að pota boltanum inn.
68. mín
InnIngi Þór Sigurðsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Grindvíkingar gera einnig breytingu
68. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtAxel Sigurðarson
Þriðja skipting Gróttu
66. mín
Gróttumenn vilja hendi-víti
En Pétur samþykkir það ekki, dæmir horn í staðinn. Mér þótti boltinn hafa farið í öxl varnarmanns Grindavíkur svo Pétur er frá mínum bæjardyrum séð með allt á hreinu.
63. mín
InnHeiðar Snær Ragnarsson
ÚtSindri Þór Guðmundsson
Tvöföld breyting Grindavíkur
63. mín
InnRafael Alexandre Romao Victor
ÚtValur Þór Hákonarson
Tvöföld breyting Grindavíkur
60. mín
Björgvin Brimi!!
Fær boltann í teig Grindavíkur, leikur á tvo varnarmenn en skotið er slakt og yfir markið. Allt hárrétt fram að skotinu hjá Bjögga.
59. mín
InnDagur Bjarkason
ÚtEmil Skúli Einarsson
Tvær breytingar hjá Gróttu
59. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtEinar Tómas Sveinbjarnarson
Tvær breytingar hjá Gróttu
57. mín
Stórhætturlegur skalli!
Damir á hér stórhættulegan skalla rétt yfir markið eftir góða hornspyrnu frá vinstri. Munaði litlu að Grindvíkingar tvöfölduðu forustuna þarna.
53. mín
Grindvíkingar taka forustuna á ný!
Rúnar Ingi Eysteinsson
Flottur sprettur upp hægri kantinn og það kemur fastur bolti fyrir markið. Þar var Rúnar Ingi mættur og gat ekki annað gert en að smella boltanum í netið. 1-2!49. mín
og fjórða hornið..
ekkert varð úr því
48. mín
Grindvíkingar sækja hér í upphafi
Búnir að vinna hér þrjú horn í byrjun síðari hálfleiks
46. mín
Gróttumenn keyra þetta áfram
45. mín
Það er kominn hálfleikur hér á Vivaldi vellinum
Staðan jöfn í hálfleik, Gróttumenn verið ívið sterkari í þessum fyrri hálfleik.
Tökum okkur korter
44. mín
Frábært spil Grindavíkur
Gunnleifur tekur góðan sprett og finnur Val Hákonar sem á góðan bolta fyrir á besta stað í teignum en því miður fyrir Grindvíkinga var engin gul treyja þar. Það besta sem hefur sést frá Grindavík síðan þeier skoruðu markið.
39. mín
Andri!
Andri Freyr með tilraun fyrir utan teig rétt yfir markið.
36. mín
Björgvin Brimi hættulegur
Vinnur boltann hátt á vellinum og reynir að vippa yfir Hjörvar Daða í markinu en hann sér við honum.
32. mín
Gróttumenn vinna aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Grindavíkur
Venjulega er þetta ekki skotfæri, en það er það í dag.
31. mín
Grímur tekur spyrnuna
og hún er góð en skotið fer rétt framhjá.
30. mín
Björgvin Brimi með fast skot!
Sem fer af tveimur leikmönnum Grindavíkur og þeir liggja báðir eftir óvígir. Alvöru sleggja frá Bjögga.
27. mín
Darraðadans!
Ef orðinu darraðadans væri flett upp í orðabók þá myndi vera mynd af þessu atviki. Grindvíkingar sækja inn í teig og boltinn berst manna á milli líkt og í kúluspili. Gróttumenn enda á að hreinsa boltann frá.
23. mín
Grótta jafnar!
Hrannar Ingi Magnússon
Björgvin Brimi á hér eitraða sendingu inn fyrir beint í fætur á Andra Frey sem leggur hann á Hrannar sem smyr hann út við stöngina. 1-1!22. mín
Grótta að banka
Grímur Ingi Jakobsson á hér fínt skot eftir hornspyrnu sem fer rétt yfir markið, Gróttumenn eru með öll völd á vellinum.
15. mín
Einar Tómas með flottan sprett!
Vinnur boltann við eigin vítateig og tekur á rás upp allan völlinn, reynir að stinga inn á samherja þegar hann er kominn að vítateignum en Damir, að mér sýndist hreinsar frá. Þarna hefði Einar Tómas átt að vera eigingjarn og taka skotið sjálfur. Hann lærir af þessu!
12. mín
Lítið að gerast í þessu
Grindvíkingar sitja til baka, vel skipulagðir. Gróttumenn reyna að finna glufur en verður lítt ágengt.
6. mín
Grindvíkingar taka forustuna!
Haraldur Björgvin Eysteinsson
Þetta kom upp úr nákvæmlega engu! Haraldur fær boltann í miðjuhringnum, rekur boltann um 15 metra lætur vaða og boltinn syngur í netinu, óverjandi fyrir Guðmund Rafn í markinu. 0-1!3. mín
Liðin þreifa hvert á öðru
Rokið setur mikinn svip á þennan leik hér í upphafi
1. mín
Grindvíkingar sparka okkur af stað
Þeir leika að World Class, Gróttumenn að Bakkagarði
Fyrir leik
Styttist í þetta
Liðin ganga hér inn á völl
Fyrir leik
Spámaðurinn
Sigurður Hrannar Þorsteinsson, leikmaður Hauka, spáði í spilin fyrir þennan leik.
Grótta 2 - 0 Grindavík
Rúnar Páls army vinna þennan leik frekar þægilega 2-0 og fara beint á Rauða Ljónið eftir leik.
Fyrir leik
Önnur úrslit
Eins og fyrr segir er þetta lokaleikur umferðarinnar. Önnur úrslit í þessari umferð féllu svo:
HK 2 - 1 Afturelding
Ægir 0 - 3 Leiknir R
Njarðvík 5- 1 ÍR
Fylkir 1 - 3 Þróttur R
Vestri 5 - 1 Völsungur
Fyrir leik
Grindavík
Grindvíkingar sitja í 10. sæti deildarinnar með 10 stig einungis tveimur stigum frá fallsæti. Enginn sigur í síðustu átta leikjum en síðast sóttu Grindvíkingar þrjú stig þann 17. maí í 4. umferð deildarinnar.

Fyrir leik
Grótta
Fyrir leik sitja Gróttumenn í 8. sæti deildarinnar með 19 stig, einungis tveimur stigum frá umspilssæti. Seltirningar mæta til leiks fullir sjálfstrausts með tvo sigra í röð og ekki tapað í síðustu þremur leikjum.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Pétur Guðmundsson mun dæma hér í dag. Honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Ragnar Arelíus Sveinsson.
Dómaraeftirlitsmaður er Gunnar Helgason

Fyrir leik
Verið velkomin á Vivaldivöllinn
Í kvöld fer fram lokaleikur 8. umferðar Lengjudeildarinnar þegar heimamenn í Gróttu taka á móti Grindvíkingum




