SKÝRSLAN: Breiðhyltingar grillaðir á Heimavelli Hlýjunnar
Hvað réði úrslitum?
HK var töluvert betra liðið í dag. Það var jafnræði með liðunum þar til HK skoraði og þá var ekki aftur snúið. Gæðin og ákefðin í leik heimamanna var til fyrirmyndar.
Bestu leikmenn
1. Karl Ágúst Karlsson
Mark og stoðsending hjá Karli Ágústi í dag. Ótrúlega skemmtilegur leikmaður sem hefur alltaf verið með hraða sem getur ógnað vörnum. Nú er hann hins vegar farinn að finna netið og þá er voðinn vís fyrir önnur lið í deildinni
2. Dominik Radic
Radic var sömuleiðis frábær, skoraði og lagði upp í dag. Hann er nú kominn með 10 mörk á tímabilinu. Langar líka að minnast á Ólaf Örn sem átti nokkrar góðar vörslur, svekkjandi fyrir hann að halda ekki hreinu.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins kom HK á lagið. Karl Ágúst átti góðan sprett upp hægra kantinn og skipti honum yfir á Ívar Örn sem átti frábæra fyrirgjöf á fjærstöng. Þar var Karl Ágúst sem hélt hlaupi sínu áfram og kláraði færið vel.
Hvað þýða úrslitin?
HK er komið í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig. ÍR er í 10. sæti með 12 stig. Þess ber þó að geta að flest önnur lið í deildinni eiga leik til góða.
Vondur dagur
Varnarleikur ÍR-inga var alls ekki góður í dag. Vilhelm Þráinn gerði sig sekan um mistök í fimmta marki HK en það réði ekki úrslitum.
Dómarinn - 6
Ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma. Hreinn gerði ágætlega í dag. Mér fannst spjaldið sem Aron Kristófer fékk soft en annars bara fínt.


