Fotbolti.net
@fotboltinet Gylfi Már Þórðarson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
0 - 0
Grindavík
Grindavík
Dómari: Pétur Guðmundsson
Fyrir leik
Spámaðurinn
Sigurður Hrannar Þorsteinsson, leikmaður Hauka, spáði í spilin fyrir þennan leik. Grótta 2 - 0 Grindavík Rúnar Páls army vinna þennan leik frekar þægilega 2-0 og fara beint á Rauða Ljónið eftir leik.
Fyrir leik
Önnur úrslit
Eins og fyrr segir er þetta lokaleikur umferðarinnar. Önnur úrslit í þessari umferð féllu svo: HK 2 - 1 Afturelding Ægir 0 - 3 Leiknir R Njarðvík 5- 1 ÍR Fylkir 1 - 3 Þróttur R Vestri 5 - 1 Völsungur
Fyrir leik
Grindavík
Grindvíkingar sitja í 10. sæti deildarinnar með 10 stig einungis tveimur stigum frá fallsæti. Enginn sigur í síðustu átta leikjum en síðast sóttu Grindvíkingar þrjú stig þann 17. maí í 4. umferð deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Grótta
Fyrir leik sitja Gróttumenn í 8. sæti deildarinnar með 19 stig, einungis tveimur stigum frá umspilssæti. Seltirningar mæta til leiks fullir sjálfstrausts með tvo sigra í röð og ekki tapað í síðustu þremur leikjum.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Þriðja liðið
Pétur Guðmundsson mun dæma hér í dag. Honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Ragnar Arelíus Sveinsson. Dómaraeftirlitsmaður er Gunnar Helgason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Verið velkomin á Vivaldivöllinn
Í kvöld fer fram lokaleikur 8. umferðar Lengjudeildarinnar þegar heimamenn í Gróttu taka á móti Grindvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.