Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 0
Þór/KA
Þór/KA
Dómari: Atli Björn E Levy
Fyrir leik
Þór/KA
Þór/KA hafa verið að sækja í sig veðrið eftir afleita byrjun á tímabilinu. Þær hafa haldið hreinu og sótt 7 stig í síðustu þremur leikjum með jafntefli gegn Val, óvæntan 2-0 sigur á Þróttir og svo 1-0 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð. Þær sitja þó enn í 9. sætinu fyrir leikinn með 9 stig en það er stutt í miðjumoðið og sigur í dag myndi fleyta þeim upp fyrir botnbaráttuna. Þetta ætti því að verða hörkuleikur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sæti með 18 stig eða þremur stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu. Stjörnukonur misstu aðeins flugið í síðasta leik þegar þær gerðu 1-1 jafntefli við Val en höfðu fram af því unnið 4 leiki í röð. Þær eru hins vegar enn viðloðandi toppbaráttuna og sigur í dag hjálpar þar mikið!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Atli Björn E Levy og honum til halds og trausts verða Eydís Ragna Einarsdóttir og Tijana Krstic aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Óli Njáll Ingólfsson og eftirlitsmaður í dag er Ólafur Ingi Guðmundsson.
Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti Þór/KA í 12. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst á slaginu 18:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.