Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Fyrir leik
Sædís Rún spáir í 13. umferðina
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir fékk það verðuga verkefni að spá í leikina í 13. umferðinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

FH 1 - 2 Stjarnan
Grannaslagur af bestu gerð, það verður hiti á hliðarlínunni, Óskar og Hlynur keppast um að öskra sín lið áfram og stjarnan skorar undir blálokin. Ingibjörg hefur reimað á sig markaskóna í sumar og setur eitt ásamt Snædísi. Ída skorar fyrsta mark leiksins fyrir FH.


Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust eins og áður sagði þann 10. maí sl. þar sem FH fór með 1-2 sigur af hólmi, með mörkum frá Deju Sandoval og Hafrúnu Birnu. Hulda Hrund skoraði svo sárabótarmark Stjörnunnar í uppbótartíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur hafa verið á mikilli siglingu og sitja í 3. sætinu með 21 stig, 3 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu og 1 stigi á undan ÍBV í 4. sætinu.

Stjarnan hefur ekki tapað leik í deildinni síðan 10. maí þegar þær mættu einmitt FH í fyrri umferðinni. Þær hafa þó gert 2 jafntefli þar sem þær hafa misst stig.

Stjarnan er það lið í deildinni sem hefur fengið lang fæst mörk á sig en þær hafa einungis fengið á sig 11 mörk! eða 5 mörkum færri en FH og 4 mörkum færri en Breiðablik.

Stjarnan mun því eflaust treysta á solid varnarleik í kvöld gegn sóknarliði FH og reyna svo að breika á þær þegar færi gefst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
FH konur sitja á toppnum fyrir þennan leik, með 26 stig eða 2 stigum á undan Breiðablik í 2. sætinu og 5 stigum fyrir ofan Stjörnuna í 3. sætinu.

FH hafa komið af miklum krafti eftir hléið og markatalan úr síðustu tveimur leikjum er 13-4! en þær unnu Grindavík/Njarðvík 1-6 í síðustu umferð og Þrótt 7-3 þar á undan!

Þær hafa litið fáránlega vel út og bara hætta ekki að skora! Á góðum degi veit ég hreinlega ekki hvaða lið ætlar að stoppa þessa ferð á FH

Það eitt sem víst er að það ætti að vera nóg stuð í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
13. umferðin
Umferðin hófst á sunnudaginn með tveimur leikjum, einn leikur var á dagskrá í gær en umferðin klárast svo í dag með tveimur leikjum.

13. umferðin lítur þá svona út:

Á sunnudaginn:
14:00 Víkingur R. - Fram 1-2
16:00 Þór/KA - ÍBV 2-1

Í gær:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2

Í dag:
19:15 FH - Stjarnan
19:15 Valur - Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Stefán Ragnar Guðlaugsson og honum til halds og trausts verða Jovan Subic og Mikael Ívan AxelssonErlendsson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í kvöld er Gunnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin í Kaplakrikann!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Stjörnunni í 13. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.