Fotbolti.net
19.07.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Sædís Rún spáir í 12. umferð Bestu kvenna

Sædís gekk í raðir Köln á dögunum.

Sædís gekk í raðir Köln á dögunum.

Canon

Mynd: Köln

Í dag hefst tólfta umferðin í Bestu deild kvenna með tveimur áhugaverðum leikjum.

Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir fékk það verkefni að spá í leikina sem eru framundan en hún gekk á dögunum í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln.
Víkingur R. 2 - 0 Fram (14:00 í dag)
Jasmín skorar 2 og Víkingur siglir þessu heim. Lítið að frétta eftir mörkin og þægilegt í Víkinni.

Þór/KA 0 - 3 ÍBV (16:00 í dag)
Erlendu leikmenn ÍBV halda áfram á góðri siglingu. ÍBV vinnur þægilegan 3-0 sigur.

Grindavík/Njarðvík 1 - 2 Þróttur R. (19:15 á morgun)
Bæði lið hafa verið með lítinn stöðugleika. Endurkoma Katie Cousins í Þrótt verður lykilinn í þessum leik.

Valur 1 - 3 Breiðablik (19:15 á þriðjudag)
Stórleikur umferðarinnar þar sem Breiðablik hefur betur. Agla María og Olla skora svo kemur Þórdís Elva með sitt fyrsta mark fyrir Blix. Mark Vals kemur úr föstu leikatriði þar sem Málfríður gerir sárabótamark.

FH 1 - 2 Stjarnan (19:15 á þriðjudag)
Grannaslagur af bestu gerð, það verður hiti á hliðarlínunni, Óskar og Hlynur keppast um að öskra sín lið áfram og stjarnan skorar undir blálokin. Ingibjörg hefur reimað á sig markaskóna í sumar og setur eitt ásamt Snædísi. Ída skorar fyrsta mark leiksins fyrir FH.

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
Thelma Karen (1 réttur)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Jasmín Erla Ingadóttir.

Jasmín Erla Ingadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórdís Elva gekk á dögunum í raðir Breiðabliks.

Þórdís Elva gekk á dögunum í raðir Breiðabliks.

Canon

Mynd: Breiðablik

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH14+2733
2Breiðablik14+2533
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík15-619
6Fram15-1316
7Þór/KA14-515
8Þróttur R.14-515
9Valur14-1213
10Víkingur R.14-1311
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.