Leik lokið!
Þróttarar fara á Laugardalsvöll
Verðskuldaður sigur Þróttara á endanum. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+2
Þrjár mínútur í uppbót
90. mín
+1
ÍBV sækja á öllum sínum mönnum með miðvörðinn Avery fremsta í flokki til þess að reyna að jafna þetta.
88. mín
Þróttarar sækja og Þórdís Nanna nær skoti á markið sem Olga bara hreinlega ver með hendinni. Ef fólk sá hendina á Jóa Bjarna í leik FH og Breiðabliks fyrr í vikunni þá var þetta nákvæmlega eins.
88. mín
Gult spjald
María Eva Eyjólfsdóttir
Rífur aðeins í Fridrikka sem fellir hana, ekki mikið í þessu.87. mín
Avery skorar glæsilegt skallamark rétt fyrir skiptinguna en flaggið fer á loft.
86. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtSandra Voitane
85. mín
ÍBV fá hornspyrnu hægra megin sem kemur inn á teiginn en Sæunn skallar frá.
80. mín
Get ekki ímyndað mér að Jón Óli sé ánægður með sínar konur í þessu marki.
Ísinn brotinn
Þórdís Nanna Ágústsdóttir
Slök markspyrna frá Avery fer beint til Þróttara sem geta sótt hratt. Bríet Fjóla fær boltann og lætur bara vaða en La-Rose ver hann í rammann. Boltinn berst út í teiginn og á einhvern ótrúlegan hátt er Þórdís Nanna, umkringd bláum treyjum, fyrst á boltann og hleypur hann inn.Get ekki ímyndað mér að Jón Óli sé ánægður með sínar konur í þessu marki.
78. mín
Avery allt of róleg í tíðinni í baráttunni við Kayla Rollins og ég í raun veit ekki alveg hvað planið hennar var. Kayla nær að komast í boltann og nær skotinu en Avery nær að bjarga andliti og truflar nóg til þess að skotið sé slakt.
77. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtKatherine Amanda Cousins
Kemur hér inn á í sínum fyrsta leik fyrir Þrótt.
74. mín
Aftur fá Þróttarar horn en núna setur Sæunn boltann beint ofan á þaknetið.
73. mín
Sæunn tekur spyrnuna, á hausinn á Rollins en hann er aðeins of hár fyrir hana. Katie fær boltann á fjær og hleður í skot en varnarmenn ÍBV komast fyrir skotið.
72. mín
Góður bolti inn á teig ÍBV sem Avery skallar aftur fyrir
71. mín
Björg Gunnlaugs með fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Unnur Dóra er ein og óvölduð en skotið hennar í varnarmann. Eitt besta færi leiksins til þessa.
69. mín
InnRagna Sara Magnúsdóttir
ÚtÞóra Björg Stefánsdóttir
68. mín
Unnur Dóra er alein, engin í kring um hana, fer niður og þarf aðhlynningu. Leit ekki vel út i fyrstu en virðist geta haldið leik áfram.
65. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
64. mín
María Eva brýtur af sér úti á velli í tilraun til að stöðva skyndisókn. Eyjakonur halda í boltann og hagnaði beitt en sóknin rennur á endanum út í sandinn og Stefán ákveður að gefa Maríu ekki gult. Klárt gult í mínum bókum
63. mín
Sæunn stígur enn og aftur á stokk og nú endar spyrnan hennar aðeins fyrir utan markteiginn þar sem Katie Cousins nær skalla en hann er fram hjá.
62. mín
Þróttarar sækja og uppskera á endanum hornspyrnu.
59. mín
Mist Funa leikur listir sínar áður en hún á skot sem fer hátt yfir markið.
58. mín
Sæunn tekur spyrnuna en sem fyrr er hún beint á hausinn á Avery sem skallar frá.
57. mín
Þróttarar fá horn
56. mín
Kristín Klara á hvínandi siglingu upp völlinn og lætur vaða þegar hún kemur að teignum en skotið beint á Mollee.
55. mín
Unnur Dóra setur Kayla Rollins í gegn með fínni sendingu. Kayla er með varnarmann í sér en nær þó skoti en La-Rose ver það auðveldlega.
53. mín
ÍBV byrja seinni hálfleikinn sterkt. Kristín Klara bindur enda á sókn eyjakvenna með skoti sem fer langt yfir.
52. mín
Björg reynir að sækja víti á Helenu en Stefán heldur nú alls ekki.
49. mín
ÍBV fá aukaspyrnu úti vinstra megin sem Sandra tekur inn á teiginn. Þar finnur hún Avery sem á skalla sem Mollee þarf að hafa sig alla við að verja. ÍBV fær hornspyrnu sem skapast mikil hætta upp úr en skotið fram hjá.
48. mín
Vond sending út úr markinu fer beint á Björgu sem keyrir í átt að markinu, lætur vaða en það er beint á La-Rose.
47. mín
Olga með fínan bolta á fjær en hann er aðeins of hár og endar á því að fara yfir allan pakkann.
46. mín
Allison Clark kemst á einhvern mjög skrýtinn hátt ein í gegn og nær boltanum fyrir markið en Þróttarar ná að hreinsa.
46. mín
Gestirnir koma þessum seinni hálfleik í gang.
46. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
Ein breyting í hálfleik, Allisons Lowrey hlýtur að vera að fara út af meidd
45. mín
Frægir á vellinum
Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Írlands er meðal frægra í stúkunni á þessum leik í kvöld. Jóhanna Vigdís fréttakona er hérna og líka Daníel Geir Moritz, fyrrum fyndnasti maður Íslands. Dóri Gylfa leikari og Þorvaldur Ingimundarson viðskiptamaður eru hér líka.
Kveðja, útsendarinn í stúkunni
Kveðja, útsendarinn í stúkunni
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar Stefán til hálfleiks. Fínasti fyrri hálfleikur sem Þróttarar tóku yfir hægt og rólega. Eftir steindauðar fyrstu fimmtán fóru þær að sækja í sig veðrið og hefur mestallur leikurinn farið fram á vallarhelmingi gestanna. Eyjakonur eru þó hættulegar þegar þær ná að sækja hratt.
43. mín
Mist með góða takta úti vinstra megin, fer fram hjá þeim nokkrum áður en hún kemur boltanum fyrir á Kayla Rollins sem kemur boltanum á markið en La-Rose er ekki í miklum vandræðum með það.
41. mín
Kayla Rollins með fínustu hugmynd, ætlar að finna Björgu inn fyrir varnarlínuna en Fridrikka les vel í aðstæður, eltir Björgu og kemst fyrir sendinguna.
39. mín
Góð sókn upp hægra megin hjá Þrótturum en María Eva gerir vel að koma sér fram hjá Helenu, nær fyrirgjöf þar sem Unnur Dóra er en hún nær ekki nægri snertingu á boltann til að koma honum á markið.
38. mín
Sandra með góðan sprett upp hægri kantinn, nær góðum þríhyrning við Allison Clark áður en hún kemur boltanum fyrir á Þóru Björgu en hún nær ekki góðri snertingu og setur boltann beint til Mollee.
37. mín
Olga með tilraun fyrir utan d-bogann en skotið nær því að fara í innkast en í netið.
35. mín
Sæunn með góðan bolta inn á teiginn sem Avery skallar frá sem fyrr. Boltinn berst út í teiginn þar sem Katie Cousins reynir skot en það fer beint í Avery sem nær á endanum að koma boltanum frá.
34. mín
Katie Cousins með fínustu tilraun við vítateigslínuna en La-Rose nær að blaka boltanum yfir markið.
33. mín
Mist setur fyrirgjöf á fjær en Kayla og Björg eru hálfpartinn fyrir hvor annari og boltinn endar fyrir aftan endalínu.
30. mín
Allison Lowrey nær á einhvern ótrúlegan hátt að halda boltanum inn á eftir baráttu við Mist og kemur honum út í teiginn þar sem Viktorija og Allison Clark eru aleinar en misskilingur á milli þeirra verður til þess að þær hlaupa báðar yfir boltann og koma honum ekki á markið. Þróttarar stálheppnar.
29. mín
Sæunn tekur spyrnuna inn á teiginn en eyjakonur skalla frá.
28. mín
Há fyrirgjöf inn á teig ÍBV sem La-Rose er í allskonar vandræðum með og blakar yfir markið.
28. mín
Björg Gunnlaugs potar boltanum fram hjá Helenu og er svo ótrúlega fljót á fyrstu metrunum að hún skilur hana eftir í rykinu, kemur boltanum fyrir en La-Rose slær boltann frá.
26. mín
Þróttarar hafa verið að sækja í sig veðrið síðustu mínútur. Jón Óli nýtti þetta stopp til að kalla liðið til sín í vatnspásu, spurning hvort hann hafi náð að koma einhverjum skilaboðum áleiðis.
25. mín
InnKayla Marie Rollins
ÚtAlexia Marin Czerwien
Alexia þarf skiptingu, virðist hafa ætlað að harka sig í gegn um þennan leik en þurfti a játa sig sigraða hér eftir 25 mínútur.
24. mín
Alexia er sest í grasið og þarf aðhlynningu. Hún er eitthvað búin að vera að kveinka sér síðustu mínútur.
22. mín
Björg Gunnlaugs á fleygiferð í átt að markinu og kemur boltanum fyrir á Alexiu en skotið fram hjá.
21. mín
Annar góður bolti fyrir markið frá Mist Funa sem Björg reynir að ná til en hún er tekin niður, María Eva nær svo til boltans og á skot sem fer af varnarmanni. Þróttarar í stúkunni vilja víti en tæklingin á Björgu var bara góð, ekkert í þessu.
18. mín
Mist Funa með góðan bolta inn á teiginn en skallinn frá Alexiu er ekki góður.
17. mín
Jelena með fínasta bolta fram á Sigríði Theódóru en fyrsta snertingin svíkur hana og La-Rose í markinu nær til boltans.
16. mín
Olga ber boltann upp og er með einhverja samherja með sér, velur utanáhlaupið en sendingin er slök og María Eva kemst inn í hana.
11. mín
Fyrstu tíu mínútur þessa leiks aðallega snúist um stöðubaráttur úti á velli. Eyjakonur fengið eitt færi og Þróttarar þetta horn en hafa ekkert ógnað fyrir utan það.
10. mín
Sæunn setur góðan bolta inn á markteiginn en eyjakonur skalla frá.
9. mín
Þróttarar vinna fyrst hornspyrnu leiksins.
8. mín
Mjög góður spil kafli endar hjá Björgu en flaggið fer á loft.
5. mín
Allison Lowrey fær fyrsta færi leiksins eftir fyrirgjöf frá nöfnu sinni Clark en skotið er rétt fram hjá.
4. mín
Svona stilla liðin upp
Þróttur
Mollee
María - Jelena - Sæunn - Mist
Álfhildur
Katie - Sigríður T.
Björg - Alexia - Unnur
ÍBV
Arden
Kristín - Sandra - Avery - Helena
Þóra
Fridrikka - Allison Clark
Viktorija - Allison Lowrey - Olga
Mollee
María - Jelena - Sæunn - Mist
Álfhildur
Katie - Sigríður T.
Björg - Alexia - Unnur
ÍBV
Arden
Kristín - Sandra - Avery - Helena
Þóra
Fridrikka - Allison Clark
Viktorija - Allison Lowrey - Olga
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn, við erum að fara af stað. Þróttur í sínum rauðu og hvítu búningum og eyjakonur í bláum varabúningum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarliðin eru dottin í hús.
Jóhann Kristinn gerir þrjár breytingar frá síðasta leik sem tapaðist 4-2 gegn Grindavík/Njarðvík. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og María Eva Eyjólfsdóttir koma inn ásamt Kate Cousins sem spilar sinn fyrsta leik fyrir Þrótt eftir að hafa komið aftur í glugganum. Út fyrir þær fara Sóley María Steinarsdóttir, Kristrún Ýr Holm og Þórdís Nanna Ágústsdóttir.
Jón Óli gerir eina breytingu á sínu liði frá 2-1 tapi gegn Þór/KA í síðasta leik en Þóra Björg Stefánsdóttir kemur inn fyrir Eddu Dögg Sindradóttur.
Jóhann Kristinn gerir þrjár breytingar frá síðasta leik sem tapaðist 4-2 gegn Grindavík/Njarðvík. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og María Eva Eyjólfsdóttir koma inn ásamt Kate Cousins sem spilar sinn fyrsta leik fyrir Þrótt eftir að hafa komið aftur í glugganum. Út fyrir þær fara Sóley María Steinarsdóttir, Kristrún Ýr Holm og Þórdís Nanna Ágústsdóttir.
Jón Óli gerir eina breytingu á sínu liði frá 2-1 tapi gegn Þór/KA í síðasta leik en Þóra Björg Stefánsdóttir kemur inn fyrir Eddu Dögg Sindradóttur.
Fyrir leik
Dómarateymið
Enginn dómari, enginn leikur segja Köttararnir og er engu logið þar. Stefán Ragnar Guðlaugsson stjórnar flautukonsertnum í þessum leik og með honum eru Þráinn Jón Elmarsson og Jón Reynir Reynisson með sitthvort flaggið. Óli Njáll Ingólfsson er svo á skiltinu. 

Fyrir leik
ÍBV
Eyjakonur hafa, líkt og Þróttur, aðeins spilað tvo leiki í keppninni hingað til. Í fyrri leiknum heimsóttu þær Tindastól á Sauðárkrók í leik sem endaði með öruggum 0-5 sigri. Í seinni leiknum sóttu FH þær heim á Hásteinsvöll í leik sem endaði 3-2. Nöfnurnar Allison Lowrey og Allison Clark settu sitt hvort markið áður en að Avery Vanderven kláraði leikinn fyrir ÍBV í framlengingu. Eftir stórkostlega byrjun á tímabilinu hafa þær aðeins misst taktinn og stöðugleikann en þær eru með tvo sigra, tvö töp og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum. 

Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar hafa spilað tvo leiki í keppninni hingað til en þær hafa nú þegar slegið út Breiðablik og Víking. Þær byrjuðu á að slá Kópavogskonur út í spennandi leik sem endaði 3-2. Kayla Rollins, Unnur Dóra Bergdsóttir og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoruðu mörkin fyrir Þrótt. Í seinni leiknum tóku þær á móti Víkingum í leik sem vannst 1-0 með sigurmarki frá Maríu Evu Eyjólfsdóttur á 85. mínútu. Þróttarar koma inn í þennan leik á vondu skriði en þær hafa tapað síðustu fjórum leikjum í Bestu deildinni. 

Fyrir leik
Hver sækir fyrri miðann á ballið?
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Þróttar og ÍBV í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Flautað er til leiks klukkan 18:00 á AVIS vellinum í Laugardalnum



