SKÝRSLAN: Hausverkur að velja mann leiksins
Hvað réði úrslitum?
Eins og Sölvi talaði um í viðtali eftir leik, fagmennska í spilamennsku Víkinga réði úrslitum. Þeir voru nánast allan leikinn mjög öruggir en fengu smá spark í rassinn að vera ekki og þægilegir í byrjun seinni.
Bestu leikmenn
1. Óskar Borgþórsson
Valinn bestur hjá vallarþulnum og ég gef honum það bara líka. Margir sem voru mjög flottir hjá Víking í dag og gera tilkall í mann leiksins
2. Stígur Diljan Þórðarson
Eflaust búin að bíða spenntur eftir byrjunarliðs leiknum sínum eftir meiðslin og hann skilar frábæru dagsverki. Tryllt mark og það var ekki að sjá á drengnum að hann væri búin að vera meiddur.
Atvikið
Markið sem Keflavík skoraði kom á þannig tíma að liðið hefði getað heldur betur nýtt sér það og mögulega sótt eitthvað úr þessum leik. Svo varð ekki en það er atvikið.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur heldur áfram á toppinum núna með átta stiga forskot á KR sem er í 2.sæti. Keflavík fer í 6.sæti með 19stig en worst case enda þeir umferðina í 7.sæti ef ÍBV vinnur sinn leik. Annars vonast Keflvíkingur eflaust eftir því að ná að halda sér sem lengst í efri hlutanum.
Vondur dagur
Gæti verið leiðinlegur og sett þetta á vörn Keflavíkur en ég set þetta á veðrið sem hefur verið hjá okkur upp á síðkastið því við þurfum fleiri svona frammistöður frá sólinni, annars fær hún oftar "Vondur Dagur" sætið. Vondur dagur líka fyrir fólk með valkvíða uppá að velja mann leiksins. Það eru svona 5-6 leikmenn sem gætu fengið þann titil í kvöld.
Dómarinn - 6
Bara flottur ekkert á hann að setja í dag.



