SKÝRSLAN: Lítill fótbolti á erfiðum velli í geggjuðum leik
Hvað réði úrslitum?
Vendipunktur leiksins var þetta rauða spjald á Davíðs Smára. Mér fannst fókusinn hjá öllum sem komu að leiknum fara í eitthvað annað en fótbolta eftir það og Njarðvíkingar græddu á því. Það lá alltaf í loftinu að þeir myndu klára þetta sem og þeir gerðu.
Bestu leikmenn
1. Arnleifur Hjörleifsson
Fannst hann frábær í þessum leik. Lúsiðinn og frábær á báðum endum vallarins, skilaði heilmiklu fyrir Njarðvíkurliðið í dag.
2. Bragi Karl Bjarkason
Skoraði sigurmarkið sem tryggði þessi þrjú stig. Kannski ekki hans flottasta mark en réttur maður á hárréttum stað og var stanslaust að ógna aftur fyrir, sérstaklega þegar leið á leikinn.
Atvikið
Það voru hellingur af atvikum í þessum leik en ég verð að velja atvikið þegar Elías dómari leiksins stopppar leikinn til að biðja Davíð um að færa sig ennþá lengra fjær vellinum nokkrum mínútum eftir að Davíð fékk rautt spjald. Maður sér það ekki á hverjum degi.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar eru komnir í topp 5 í fyrsta sinn í sumar en Grótta á að vissu leik til góða á þá, HK er áfram í 4. sætinu.
Vondur dagur
Langar að segja völlurinn en það er bara svo leiðinlegt svar, verð samt að taka það fram að völlurinn var ótrúlega erfiður viðureignar, maður sá það. Enda bauð þessi leikur upp á lítinn fótbolta. En ég ætla bara að velja Aron Kristófer svo einhver úr HK sé valinn. Tapar á þennan hátt og fær rautt spjald eftir að leikurinn var flautaður af, vondur dagur klárlega.
Dómarinn - 8
Fannst Elli dæma þetta vel. Það var mikið að gera fyrir hann og hans teymi, gífurlega margar stórar ákvarðanir sem þurfti að taka og án þess að hafa séð neitt aftur og þegar ég hugsa til baka fannst mér tríóið standa sig með prýði.



