Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Stillt og fínt veður
Haukar
Haukar
0 - 2
HK
HK
0 - 178' Valgerður Lilja Arnarsdóttir0 - 281' Henríetta Ágústsdóttir
Dómari: Jovan Subic

SKÝRSLAN: HK stal senunni í endurkomuleik Söru Bjarkar

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög kaflaskiptur leikur þar sem liðin skiptust á að hafa yfirhöndina. Það sem réði þó úrslitum í kvöld, var hreinlega baráttan og seiglan í HK konum í lok leiks þegar þær brutu loksins ísinn með marki fyrirliðans Valgerðar Lilju og svo rak Henríetta síðasta naglann í kistuna með frábæru marki stuttu síðar.

Bestu leikmenn

1. Valgerður Lilja Arnarsdóttir

Að öðrum ólöstuðum þá fær fyrirliðinn þennan titil í kvöld, barðist eins og ljón inn á vellinum og fór fyrir sínum konum í baráttunni. Braut síðan ísinn fyrir HK og setti fyrsta mark leiksinsþegar hún fylgdi eftir skalla frá Henríettu. Ekki á hverjum degi sem hún setur mörk!

2. Henríetta Ágústsdóttir

Átti frábæran leik í kvöld, kom sér í góðar stöður og var sí ógnandi. Átti skallann sem skóp fyrsta markið og setti svo sjálf frábært mark af löngu færi yfir Viktoríu í markinu. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir og Ísabel Rós Ragnarsdóttir áttu sömuleiðis góðan leik fyrir HK

Atvikið

Seinna mark HK sem Henríetta skoraði þremur mínútum á eftir fyrra markinu undir lok leiksins, gjörsamlega rak síðasta naglann í kistu Hauka. Það var enn von þegar Haukakonur voru bara 0-1 undir en það er erfitt að koma til baka úr 0-2 stöðu og hvað þá þegar lítið er eftir af leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að HK tekur stigin þrjú og stekkur þar með úr 7. sætinu og upp yfir Hauka í 3. sætið. Bæði lið eru þá með 17 stig, HK með betri markatölu og því í 3. sæti en Haukarnir eiga þó leik til góða.

Vondur dagur

Það var nú enginn sem átti slæman dag en það getur ekki hafa verið gaman fyrir Söru Björk að tapa 0-2 í stóra endurkomu leiknum. Hún má þó eiga það að hún er í hörkuformi! Þær þurfa bara að slípa sig aðeins til og þá er voðin vís fyrir önnur lið deildarinnar.

Dómarinn - 6

Fínasti dagur bara hjá dómarateyminu í dag, leyfði leiknum að fljóta vel og sýndist þeir hafa dæmt hárrétt þegar boltinn fór í höndina á Völu í aðdraganda marksins sem Haukar skoruðu í fyrri hálfleik en var dæmt af í kjölfarið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.