Leik lokið!
Völsungur vinnur
Þetta var ákaflega sannfærandi og sanngjarnt. Eins og maðurinn sagði, Völsungur er alltaf Völsungur á Mærudögum. Elfar Árni Aðalsteinsson er svo frábær fótboltamaður!
92. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtElfar Árni Aðalsteinsson
Heiðursskipting
Elfar Árni fær heiðursskiptingu. Þvílíkur leikur hjá þessum stórkostlega leikmanni.
92. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtSergio Parla Garcia
91. mín
Komið í uppbótartíma en heimamenn halda bara áfram að sækja
89. mín
Grindvíkingar eru að reyna en Victor í marki Völsungs ver vel. Nokkrum sekúndum síðar er Gestur kominn í færi hinum megin en Hjörvar ver frá honum.
88. mín
Gult spjald
Elvar Baldvinsson
85. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
85. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
83. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtFernando Jimenez Arranz
83. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
82. mín
Leikmyndin er eins og að gestirnir séu yfir. Þeir liggja til baka meðan heimamenn sækja.
80. mín
Þetta lítur afar vel út fyrir heimamenn. Grindvíkingar eru ekki einu sinni líklegir að minnka muninn.
74. mín
Elfar Árni aftur!
Elfar Árni Aðalsteinsson (stoðsending: Dagbjartur Búi Davíðsson)
Dagbjartur fær boltinn rétt innan við miðju og á góðan sprett fram völlinn. Hann gerir svo það eina rétta í stöðunni, sendir innfyrir á Elfar Árna sem sippar stórkostlega yfir markmanninn! Þvílík afgreiðsla!73. mín
Gult spjald
Modoumatarr Mbye
Modou fær gult fyrir að stoppa skyndisókn68. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtTómas Bjarni Baldursson
Flottur leikur hjá Tómasi.
64. mín
InnHeiðar Snær Ragnarsson
ÚtLárus Orri Ólafsson
64. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
64. mín
Og nú fær Fernando færi fyrir heimamenn en dúndrar yfir.
63. mín
Elfar Árni með fínt langskot en yfir fer boltinn.
60. mín
Heimamenn eru mun líklegri þessa stundina. Það er samt líf í þessu. Grindvíkingar eru að eiga sín augnablik
55. mín
Elfar Árni að hóta
Arnar Pálmi með frábæran sprett upp kantinn og á fína fyrirgjöf sem Elfar Árni er hársbreidd frá því að pota inn!
52. mín
Grindvíkingar byrja seinni hálfeikinn af krafti en hafa þó ekki náð að ógna að ráði.
46. mín
Grindvíkingar svo nálægt því!
Eftir frábæra fyrirgjöf strax í byrjun seinni skallar Eysteinn í stöngina!
46. mín
45. mín
Heimamenn leiða í hálfleik
Völsungar leiða mjög sanngjarnt í hálfleik. Þeir hafa verið margfalt betri aðili leiksins og naga sig eflaust í handarbökin að vera bara 1-0 yfir.
39. mín
Heimamenn halda áfram að sækja af krafti með Elfar og Tómas fremsta í flokki. Þeir hafa fengið svona 15 hornspyrnur
33. mín
Grindvíkingar fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað en Lárus Orri á skot sem Victor markmaður ver vel. Völsungar fá skyndisókn í kjölfarið þar sem að Fernando fær ágætis færi en skot hans er slakt.
31. mín
Arnar Pálmi fyrirliði Völsungs reynir fyrir sér. Hann og Xabier spila mjög vel upp vinstri kantinn og Arnar lætur vaða en Hjörvar ver.
25. mín
Tómas Bjarni nálægt því að tvöfalda forystu heimamanna. Boltinn fellur fyrir hann eftir fyrirgjöf og hann neglir að marki en Hjörvar ver mjög vel.
23. mín
Frábær hornspyrna sem að Rafael Victor skallar að marki en Victor í markinu ver frábærlega! Önnur hornspyrna sem ekkert kemur úr.
21. mín
Völsungar hafa fengið ótal hornspyrnur á þessum fyrstu 20 mínútum en hafa þó ekki náð að gera sér mat úr þeim. En nú eiga gestirnir horn..
16. mín
Það eru hornspyrnur á báða enda þessa stundina. Nú áttu Grindavík hornspyrnu sem endaði með stórhættulegri skyndisókn Völsungs. Fernando átti góðan sprett en náði ekki að koma Tómasi einum í gegn.
11. mín
Aftur eru Völsungar nálægt því! Hornspyrna sem að Juan Gardia skallar rétt framhjá. Það er meðbyr með heimamönnum.
9. mín
Völsungar svo nálægt þvi að bæta við! Eftir hornspyrnu sendir Sergio Parla fyrir á Elvar Baldvinsson sem á góðan skalla að marki en Hjörvar ver vel.
6. mín
Heimamenn leiða!
Elfar Árni Aðalsteinsson (stoðsending: Tómas Bjarni Baldursson)
Sergio Parla stjórnar erfiðri sendingu vel á miðjunni og sendir út til hægri á Tómas Bjarna sem á frábæra fyrirgjöf á Elfar Árna sem sneiðir boltann með höfðinu í hornið fjær.2. mín
Heimamenn byrja af krafti. Elfar og Tómas spila vel saman upp hægri kantinn en fyrirgjöf Tómasar er auðveldlega gripin af Hjörvari.
1. mín
Arnar dómari flautar leikinn af stað.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á hér á GPG-vellinum. Stúkan er nú þegar orðin full og það er mikil stemning. Greinilegt að upphitunin á Húsavík Öl hefur gengið vel!
Meira að segja var það gaman í upphitunni að Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands var mætt og hún styður Völsung í dag þrátt fyrir mótmæli eiginmannsins frá Grindavík.
Meira að segja var það gaman í upphitunni að Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands var mætt og hún styður Völsung í dag þrátt fyrir mótmæli eiginmannsins frá Grindavík.
Fyrir leik
Viðtal við Borja Iglesias
Þjálfari Völsungs er í afar áhugaverðu viðtali á fotbolti.net í dag. Viðtalið má lesa hér:
Fyrir leik
Gengi liðanna
Eftir fjóra leiki án taps hafa heimamenn tapað síðustu tveim leikjum. Töpuðu afar illa gegn Aftureldingu í síðasta heimaleik og því fylgdi svo 1-0 tap gegn Þrótti í Laugardal. Völsungur er í 11. sæti deildarinnar með 8 stig.
Grindvíkingar eru á ágætis skriði þannig séð. Hafa einungis tapað einum af síðustu 6 leikjum en hafa þó líka bara unnið einn af þeim leikjum. Grindavík er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig.
Grindvíkingar eru á ágætis skriði þannig séð. Hafa einungis tapað einum af síðustu 6 leikjum en hafa þó líka bara unnið einn af þeim leikjum. Grindavík er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig.
Fyrir leik
Mærudagar
Ég er nokkuð viss um að þetta sé rétt en mér vitrari menn segja mér að Völsungur hafi ekki tapað leik á Mærudögum síðan hörmungarárið 2013. Völsungur er alltaf Völsungur á Mærudögum.
Ég get hins vegar sagt með vissu að Völsungur vann Mærudagaleikinn í fyrra með glæsibrag, 4-0 gegn Selfossi þar sem að bárðdælingurinn Jakob Héðinn Róbertsson, núverandi leikmaður KA, gerði þrennu.
Ég get hins vegar sagt með vissu að Völsungur vann Mærudagaleikinn í fyrra með glæsibrag, 4-0 gegn Selfossi þar sem að bárðdælingurinn Jakob Héðinn Róbertsson, núverandi leikmaður KA, gerði þrennu.
Fyrir leik
Mærudagar
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík, á hinum einu sönnu Mærudögum, þar sem að Völsungur og Grindavík mætast í Lengjudeild karla.



