SKÝRSLAN: Þróttur sækir fyrsta miðann á ballið
Hvað réði úrslitum?
Þróttararnir voru bara heilt yfir betri. Eyjakonur áttu rispur og hraðaupphlaup en lélegar ákvarðanir og gæðaleysi á síðasta þriðjungi varð til þess að þær sköpuðu sér lítið að viti. Þróttarar hefðu getað skorað meira en voru klaufar og í raun heppnar að það kom ekki að sök.
Bestu leikmenn
1. Björg Gunnlaugsdóttir (Þróttur R.)
Þvílíkur kraftur í einum leikmanni. Trúi ekki að það séu margir í deildinni fljótari en hún á fyrstu metrunum en hún gerði Helenu, vinstri bakverði ÍBV, lífið leitt í dag. Hefði getað lagt upp í dag en sóknarmenn Þróttar í krummafót í mörgum atvikum.
2. Mist Funadóttir (Þróttur R.)
Gríðarlega mikilvæg Þróttaraliðinu bæði til baka og fram á við. Átti margar góðar fyrirgjafir sem samherjar hennar náðu ekki að nýta sér og er svo grimm í varnarleik liðsins sem hélt auðvitað hreinu í dag.
Atvikið
Það verður að vera sigurmarkið sem sendir Þrótt í úrslitin. Léleg markspyna út úr marki ÍBV og hrikalegur varnarleikur í kjölfarið verður til þess að Þórdís Nanna skilar boltanum í netið og tryggir þetta fyrir Þróttara.
Hvað þýða úrslitin?
Bikarinn er ekki flókinn. Þróttarar fara á Laugardalsvöll og mæta þar annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík á meðan ÍBV þurfa að játa sig sigraðar í þetta skiptið og reyna aftur að ári.
Vondur dagur
Sóknarleikurinn hjá ÍBV var ansi bitlaus í leiknum og leikmenn sem að búa yfir gríðarlegum gæðum náðu ekki að sýna það í dag. Vondar ákvarðanir og gæðaleysi á síðasta þriðjungi var svolítið þemað í dag.
Dómarinn - 6
Stefán og hans teymi voru með þetta allt í teskeið þangað til alveg í lokinn. Þróttarar áttu að fá einhverja augljósustu vítaspyrnu sem ég hef séð þegar Olga varði skot með hendinni sem hann missti af og í kjölfarið missti hann aðeins stjórn. Heilt yfir flott en þegar stóru ákvarðanirnar eru ekki negldar er erfitt að gefa góða einkunn. Heppinn í dag að það skipti ekki máli.


