Það er heldur betur nóg um að vera hjá heimaliðinu um þessar mundir. Bullandi Evrópuverkefni og halda vel í toppsæti Bestu Deildarinnar. Þessi leikur er einmitt á milli Evrópuleiks við Hapoel frá Ísrael. Nóg af því, í síðasta leik Víkings í Bestu Deildinni kom fyrsta tapið á tímabilinu. Botnlið Þórs nýtti sér miklar róteringar á hóp Víkings og nýju andlitin hjá Þór skiluðu 2-1 sigri. Eina mark Víkings skoraði Daði Berg Jónsson sem er mættur aftur eftir meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þrátt fyrir tapið ættu ekki að vera neinar áhyggjur hjá Víking, þeir eru á toppnum með 40stig og eiga þennan leik í kvöld til góða á KR sem eru í 2.sæti með 35stig úr 16 leikjum. Við meigum eflaust aftur búast við einhverjum hreyfingum í byrjunarliðinu þar sem ferðalag til Ungverjalands og seinni leikurinn við Hapoel er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið í kvöld
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni Aðstoðardómararnir eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann Fjórði dómarinn er Brynjar Þór Elvarsson Dómaraeftirlitsmaður er Jón Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Sú lang Besta í skjóli næturs
Hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Hamingjunni. Hér á Víkingsvellinum kl. 20:00 mun leikur Víkings og Keflavíkur fara fram.