Leik lokið!
Leikur búinn
94. mín
Aukaspyrna Þór
nokkrar sekúndur og Þór með boltann við vítateig Blika
93. mín
Fyrirgjöf Blikar
Blikar í góðri stöðu og koma með fyrirgjöf frá hægri sem siglir framhjá og út af
92. mín
Aukaspyrna Þór
Ekkert verður úr henni
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
Reynslan
Atli Sigurjónsson
Blikar að komast í hraða sókn en Atli nýtti öll knattspyrnuárin og tók spjald á sig89. mín
InnSverrir Páll Ingason
ÚtÞorri Ingólfsson
Tvöföld skipting hjá heimamönnum
89. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtEinar Freyr Halldórsson
Tvöföld skipting hjá heimamönnum
86. mín
Aukaspyrna Þór
Þór fær aukaspyrnu inni í miðjuhring sem er sett inn í teig. Ekkert verður úr því
84. mín
Horn og aftur horn
Horn tekið frá hægri inni í teig sem er skallað í horn sem er svo tekið stutt en endar í útsparki
84. mín
Horn Blikar
Horn frá hægri sem Blikar spila úr og komast inn í markteig og Gyrðir bjargar á línu og aftur í horn
80. mín
Blikar horn
Eftir að Blikar framkvæma bakhrindingu ársins sem sást frá KA svæðinu fá Blikar að bruna í sókn og fá horn sem Þórsarar hreinsa
78. mín
Aron liggur eftir
Brot á Aroni sem verður að fá aðhlynningu
77. mín
InnKristófer Ingi Kristinsson
ÚtViktor Örn Margeirsson
Blikar skipta
77. mín
Horn Blikar
Blikar fá horn frá hægri. Ekkert varð úr því
76. mín
Dauðafæri
Blikar komast hratt upp og Ágúst Orri leggur boltann fyrir Dag sem á skot framhjá fjærstönginni.
75. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtKevin Vazquez Comesaña
Varnarsinnuð skipting hjá Þór
73. mín
Rangstaða
Ágúst veiddur í rangstöðu. Þórsarar verða að passa þetta.
72. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Fannar búinn á því eftir meiðslin í lok fyrri
71. mín
Skot yfir
Einar með skot yfir frá vítateig. Hefði átt að gera betur
70. mín
Horn Blikar
Horn frá vinstri sem endar hjá Aroni.
68. mín
Dauðafæri
Ágúst Orri fær boltann inni á teig eftir góða sendingu frá Degi. Ágúst á gott skot sem Aron ver í horn sem ekkert verður úr.
67. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtKristinn Jónsson
Blikar skipta
63. mín
Smá pressa
Blikar að setja meiri pressu á Þórsara þessa stundina
62. mín
Aukaspyrna Þór
Þór fær aukaspyrnu rétt utan teigs hægra megin sem Einar tekur. Hann seur boltann á nær sem Blikar hreinsa frá
60. mín
Dauðafæri Þór
Stungusending eða lauma inn á Ágúst sem á gott skot sem Anton ver.
57. mín
Skot yfir Blikar
Viktor Örn með skot af löngu færi yfir.
54. mín
Aukaspyrna Þór
Þórsarar fá aukaspyrnu rétt inn á vallarhelmingi Blika. Einar tekur stutt
53. mín
Skyndisókn Blikar og horn
Óli Valur kemst upp hægra megin og á sendingu fyrir markið þar sem tveir Blikar bíða en Affi kemst á milli og bjargar í horn sem ekkert verður úr.
52. mín
Skot Blikar
Arnar Bjarki kemst inn í markteig og á skot í hliðarnet
51. mín
Skot Þór
Gyrðir leggur boltann á Einar sem kemur sér í færi en skotið laust beint á Anton
46. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÍvar Örn Árnason
Tvöföld skipting hjá Blikum
46. mín
InnÁsgeir Helgi Orrason
ÚtÞór Andersen Willumsson
Tvöföld skipting hjá Blikum
45. mín
Hálfleikstölfræði

45. mín
Hálfleikur
1 - 0 fyrir Þór í hálfleik
45. mín
Skot yfir +6
Kristinn Jóns með skot yfir af markteig.
45. mín
Bakhrinding +5
Hlynur Freyr Karlsson
Fór í bakið á Ágústi45. mín
Meiðsl +3
Fannar liggur eftir eftir návígi. Tak í læri
45. mín
Aukaspyrna +2
Þór fær aukaspyrnu úti hægra megin.
45. mín
Viðbót
Sex mínútum bætt við
44. mín
Aukaspyrnan +3
Einar tók á fjær þar sem Bjarni fékk boltann en var of lengi að hlaða í skotið svo Blikar komust fyrir
44. mín
Skalli framhjá
Þórsarar komast aftur upp vinstra megin og Ágúst lyftir boltanum á Greko sem skallar framhjá
42. mín
Horn Þór
Christian Jakobsen
Þór fær horn frá vinstri eftir góða pressu. Einar setur hann á fjærstöngina þar sem Greko mætir og setur hann upp í þaknetið39. mín
Dómaraskipti
Dómarinn meiðist og þarf skiptingu. Sigurður Hjörtur kemur inn á. Spurning um hvort dómgæslan breytist. Vilhjálmur var búinn að taka sig taki eftir að hann las gagnrýnina. Dómarar eru þar með búnir með sínar skiptingar.
38. mín
Dómarinn þarf aðhlynningu
Sjúkraþjálfari Blika hlúir að dómaranum sem þarf svo að fara út af í mínútu. Þeir dæma bara sjálfir á meðan.
37. mín
Skot yfir
Þórsarar með góða sókn sem endar með skoti frá Fannari yfir markið.
35. mín
Sláin
Þórsarar vinna strax boltann og Fannar á hörkuskot í slána, Greko nær frákastinu en skallar yfir.
34. mín
Aukaspyrna Þór
Aukaspyrna úti vinstra megin sem Einar tekur á fjær en Anton kemur út og grípur.
33. mín
Rangstaða
Eftir góða sókn Þórs eru þeir nappaðir í rangstöðugildru
30. mín
Dómgæslan
Það hefur verið litið um brot og frekar auðdæmdur leikur en Blikarnir njóta samt því það má varla horfa á þá þá er dæmt á meðan sömu "brot" eru látin "slæda" hinum megin
29. mín
Rúst
Ágúst Orri fær boltann upp hægri kantinn en Ásbjörn pakkar honum saman
27. mín
Meiðsli
Ívar lenti í samstuði og fær aðhlynningu. Mér sýnist þetta vera höfuðmeiðsl
25. mín
Horn Þór
Horn hægra megin núna. Kmur með boltann inn í en Blikar hreinsa og Þorri og Þór fara í kapp sem Þorri tekur auðveldlega.
25. mín
Horn Þór
Fannar stelur boltanum úti vinstra megin og kemst upp að endalínu rennir boltanum út en blikar bjarga í horn. Einar tekur og Blikar bjarga aftur í horn
20. mín
Blikar í færi
Affi selur sig og blikar koma boltanum fyrir markið en aftur fyrir
19. mín
Færi - Þór
Þórsarar komast inn í teig og koma boltanum á Ágúst en Blikar komast fyrir skotið
14. mín
Horn Þór
Þór fær horn frá vinstri. Einar tekur og snýr boltann að marki en yfir
13. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtViktor Karl Einarsson
Blikar skipta vegna meiðsla
12. mín
Aukaspyrnan
Einar og Kevin standa yfir boltanum. Einar tekur í utanvert hliðarnet.
12. mín
Aukaspyrna
Þór fær aukaspyrnu rétt utan teigs hægra megin
10. mín
Viktor meiddur
Viktor Karl fær aðhlynningu og fer út af
8. mín
Hornið
Kristinn Jóns með hornið sem berst út fyrir teig en Þórsarar mæta strax og Blikar ná ekki skoti.
7. mín
Blikar horn
Eftir að hafa legið svolítið á heimamönnum ná Þórsarar að bjarga í horn. Viktor Karl eitthvað aumur eftir návígi.
4. mín
Þór með upphlaup og horn
Gyrðir kemst upp hægra megin og sendir fyrir markið. Blikar bjarga í horn. Einar tekur hornið en Ásbjörn á skalla rétt framhjá
4. mín
Þórsarar spila undan vindi í fyrri hálfleik
2. mín
Þórsarar með gott upphlaup
Þórsarar komast upp hægra megin og koma boltanum fyrir en ekkert verður úr þessu
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Alveg að byrja
Kynning á liðum í gangi. Nóg pláss í stúkunni. Endilega drífa sig út í blíðuna.
Nú kemur í ljós hvort liðið kemur betur undan verslunarmannahelginni. Hvort einhver hafi verið uppi á sviði eða dauður bak við næsta stein.
Nú kemur í ljós hvort liðið kemur betur undan verslunarmannahelginni. Hvort einhver hafi verið uppi á sviði eða dauður bak við næsta stein.
Fyrir leik
Ég er búin að hafa þá tilfinningu lengi að Blikar droppi stigum í kvöld, Þór 1X er 2.10 og það veðmál er byggt á þekkingu minni á Blikaliðinu sem er nokkuð góð.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 4, 2026
Fyrir leik
Liðin
Liðin eru að berjast sitt á hvorum stað í töflunni. Blikarnir eru að berjast við að koma sér upp að hlið KR og Fram á meðan Þórsarar eru neðstir en geta með sigri fikrað sig upp að hlið KA og upp fyrir FH.
Blikar eru í einhvers konar "no mans land" aðeins á eftir þremur efstu en vel á undan Val sem er í fimmta sæti.
Blikar eru í einhvers konar "no mans land" aðeins á eftir þremur efstu en vel á undan Val sem er í fimmta sæti.
Fyrir leik
Byrjunarlið Blika
Blikar gera þrjár breytingar á sínu liði sem eru væntanlega taktískar því þeir sem fara út fara allir á bekkinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Þórs
Það eru fimm breytingar á liði Þórs, þar af þrjár í vörninni því að Kristófer og Ragnar Óli eru líklega meiddir og Birgir Ómar fær sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin - Fimm breytingar hjá Þór og þrjár hjá Blikum
Fyrir leik
Gengi liðanna
Í síðustu 5 leikjum hefur Þór tapað tveimur leikjum fyrir gömlu stórveldunum Fram og Val, gerði jafntefli við þriðja Reykjavíkurstórveldið, KR, vann nýjasta stórveldið Víking og jafntefli við nágrannana hinum megin Glerár, KA. Blikarnir hafa aftur á móti unnið Víking í bikar, Skagann, Keflavík og Eyjamenn og gerðu jafntefli við FH.
Fyrir leik
Leikir liðanna
Þar sem Þór hefur nú ekki alltaf verið í efstu deild, og reyndar ekki Blikar heldur þá hafa liðin mæst sjaldan undanfarin ár. Síðan 2014 hafa liðin bara mæst tvisvar og Blikar haft betur í bæði skiptin. Þór vann 2014 en sex leikir þar á undan voru Kópavogsdrengir sterkari. Þannig að staðan er 8 - 1 fyrir Blika í leikjum síðan 2011.
En úrslit gærdagsins hafa enga þýðingu í dag.
En úrslit gærdagsins hafa enga þýðingu í dag.





Vinnusigur heimamanna.
'
Takk fyrir takk. Skýrsla eftir kvöldmat. :-)