Leik lokið!
Þetta er búið. Þróttur var miklu miklu betri, skýrsla og viðtöl á leiðinni takk fyrir mig.
93. mín
Kári Sigfús með horn en Hlynur Sævar skallar yfir.
91. mín
Kári kemst í gegn og sendir inn í teiginn en sendingin er léleg og vörn Þróttar dílar við hana þægilega.
88. mín
Gult spjald
Arnór Breki Ásþórsson
Rígheldur í Aron, þetta er búið að vera erfitt kvöld fyrir Arnór.86. mín
MAAAARK!
Magnús Þórðarson (stoðsending: Aron Snær Ingason)
Þórhallur með langa markspyrnu beint á hausinn hans Aron sem er við teiginn. Aron rís manna hæst og skallar fyrir aftan sig og Magnús kemst í boltann og vippar yfir Ólaf.85. mín
Hiti
Aron Snær Ingason
Arnór Breki rígheldur í Aron, Aron er eitthvað pirraður og Hlynur Sævar ýtir honum. Aron er ekki ánægður og lætur Hlyn heyra það og tekur í Hlyn. Dómarinn er ekki sáttur og Aron fær það gula. Að mínu mati erfitt að láta Arnór eða Hlyn sleppa með gult ef Aron fær gult.84. mín
Áhorfendur
802
83. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
82. mín
Gult spjald
Aron Snær Guðbjörnsson
79. mín
Pitch invader
Það er mávur inn á vellinum en hann veit best og flýgur burt, hann vill ekki láta gæsluna hlaupa á eftir sér og tækla sig.
79. mín
Dauðafæri
Aron fær boltann rétt fyrir framan markið og hann neglir yfir markið.
77. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtAdam Árni Róbertsson
Fer meiddur út af velli, fékk eitthvað í punginn en líklega eitthvað meira en það.
76. mín
Adam Árni fær pungskot.
75. mín
Hár bolti inn í teig á Gumma, Þórhallur hleypur út úr markinu og lemur boltann burt, þetta var hættulegt.
74. mín
Gult spjald
Kári Kristjánsson
73. mín
Bjarki rígheldur í Adam.
72. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
72. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
72. mín
Kári Sigfús með hættulega aukaspyrnu en Fylkismenn ná ekki að skalla boltann.
71. mín
Gult spjald
Viktor Steinarsson
70. mín
Mark en rangstaða
Flottur bolti hjá Kára Kristjáns úr aukaspyrnunni, beint á Aron sem er fjær. Aron kemur boltanum framhjá makmanninum en hann er rangur.
69. mín
Viktor Steinars fer létt í Bjarka og hann kastar sér niður.
68. mín
Hár bolti á Aron sem er inn í teig Fylkis, Aron skallar á Adam sem nær honum niður en missir hann svo.
67. mín
Bjarki Steinsen með aðra háa sendingu inn í teig en hún er of föst.
65. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
65. mín
InnAdam Árni Róbertsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
65. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtBaldur Hannes Stefánsson
65. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
63. mín
Sigurður Egill ætlar að labba út af en aðstoðardómarinn stoppar hann og segir leikmönnunum að halda áfram þrétt fyrir að hann var tilbúin til þess að skrifa niður í bókina.
63. mín
Gult spjald
Bjarki Steinsen Arnarsson
59. mín
Varslaaaa
Kári tekur hornið, sendingin er beint á Birki sem skallar beint á markið. Þórhallur ver ótrúlega. Ótrúlegt að Fylkir jafnaði ekki, Þórhallur að halda Þrótti í leiknum með þessari vörslu.
57. mín
Brynjar Gautur brýtur af sér og Fylkismenn eru ósáttir að Ívar leyfir Fylki ekki að halda áfram með sóknina.
53. mín
Færii
Hár bolti á Kári Sigfús sem fær boltann við D bogann og volley yfir markið. Fylkismenn eru vaknaðir.
51. mín
MAAAARK!
Eyþór Aron Wöhler (stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson)
Bjarki Steinsen er alveg við marklínuna, kemur með háa sendingu fram fyrir markið, beint á hausinn á Wöhler sem skallar í markið. Varnarmenn Þróttar eru sofandi á verðinum.51. mín
Kári Sigfús kemur með góða háa sendingu inn í teig, beint á Wöhler sem skammar vel framhjá.
50. mín
Örn í góðu færi en skotið er beint á Ólaf.
49. mín
Vilhjálmur Kaldal setur Örn í gegn, Örn reynir að senda fram fyrir markið en Ólafur tekur sendinguna.
48. mín
Færi
Aron Snær á vinstri kantinum, cuttar inn og kemst inn í teiginn, sendir á Kára sem er alveg einn. Kári skýtur en beint yfir markið.
47. mín
Sigurður kemur með bolta inn í teig Fylkis en Örn rétt missir af boltanum.
46. mín
InnKári Sigfússon
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
46. mín
Seinni hálfleikur
Sjáum til hvernig Fylkir svarar, það er komin tími á það að þeir fari að láta Þórhall gera eitthvað í markinu.
45. mín
Hálfleikur
+2
Þróttur er búin að vera betri aðilinn, þeir eiga þetta skilið en það eru 45 eftir og Heimir getur cookað eitthvað í seinni.
Þróttur er búin að vera betri aðilinn, þeir eiga þetta skilið en það eru 45 eftir og Heimir getur cookað eitthvað í seinni.
45. mín
Dauðafæri
+1
Eiríkur er á fjær og sendir fram fyrir markið á Örn sem er fyrir framan markið missir af boltanum, þetta á að vera 3-0, enginn spurning.
Eiríkur er á fjær og sendir fram fyrir markið á Örn sem er fyrir framan markið missir af boltanum, þetta á að vera 3-0, enginn spurning.
45. mín
Örn kemur með sendingu inn í teig en Hlynur Sævar hælar boltann út.
43. mín
Bjarki Steinsen brýtur af sér, hann er mjög ósáttur og tekur smá kast, dómarinn gefur honum tiltal.
39. mín
Hár bolti á Aron sem skallar beint á markið en Ólafur ver vel.
37. mín
Fylkismenn eru að reyna að svara, boltinn dettur á Aron en hann er að gleyma sér og Arnór tekur boltann af honum.
36. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Meiðsli, við sendum batakveðjur til Mána.
35. mín
Máni Austmann er niðri og þarf aðhlynningu.
34. mín
Fylkismenn vilja svara fyrir þetta en ekkert virkar og Þróttur vill meira.
29. mín
MAAAARK!
Aron Snær Ingason (stoðsending: Örn Bragi Hinriksson)
Örn fær boltann og setur Aron Snæ í gegn. Aron og Arnór eru að berjast um boltann og Aron þarf mikið til svo að hann nái boltanum. Aron nær boltanum og kemst í 1v1 stöðu, Ólafur var ekki langt frá því að verja en hann fær boltann undir fótinn, boltinn skoppar svo inn í markið.28. mín
Máni með skot fyrir utan teiginn, í varnarmann og Þórhallur grípur.
27. mín
Sigurður Egil tekur hana og hún er rétt yfir markið.
27. mín
Þróttur fær hættulega aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Fylkis.
25. mín
Hár bolti inn í teig Þróttar, Wöhler reynir að skalla en missir af boltanum.
23. mín
Varsla
Eiríkur Blöndal setur Arno Snæ í gegn á hægri kantinum, Aron er í mjög þröngu færi en lætur vaða beint í Ólaf sem ver og út.
21. mín
Aron Snær er allt í öllu, skallandi alla bolta og er mikið að atast í leikmönnum Fylkis.
19. mín
Gummi fær boltann inn í teignum, sendir á Mána sem skýtur en beint í varnarmann og út.
15. mín
Gummi Tyrfings fær boltann í vondri stöðu og reynir að vippa boltanum yfir tvo leikmenn. Það virkar en hann sparkar svo boltanum beint til Þróttar.
12. mín
Aron Snær á hægri kantinum keyrir inn í teig, sendir fram fyrir markið en vörn Fylkis kemst fyrir sendinguna.
10. mín
Dauðafæri
Eiríkur Blöndal á hægri kantinum, kemur með fyrirgjöf inn í teig. Arnór Breki ætlar að skalla boltann burt en missir af honum og boltinn fer á Örn. Skallinn hjá Erni fer beint niður og upp, Ólafur greip boltann þægilega.
6. mín
Mark tímabilsins eða mark sumarsins?
Livey er ekki markið, mikill skellur þetta var ótrúlegt mark.
Fallegt, ótrúlegt
Sigurður Egill Lárusson (stoðsending: Aron Snær Ingason)
Aron Snær kassar hann niður inn í teignum og sendir á Sigurð sem er langt fyrir utan teig. Sigurður tekur eina snertingu og bæng beint í samskeytin. Ólafur Kristófer hefði átt að sleppa að reyna verja þessa neglu, hann var aldrei að fara að verja hana.Mark tímabilsins eða mark sumarsins?
Livey er ekki markið, mikill skellur þetta var ótrúlegt mark.
5. mín
Máni Austmann reynir að senda Wöhler í gegn en Njörður kemyr fir sendinguna.
3. mín
Arnór Breki vippar boltanum inn í teig, varnarmenn Þróttar skalla boltann burt.
3. mín
Gummi Tyrfings fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
1. mín
Aron Snær vippar boltanum yfir vörn Fylkis til Örn Braga sem missir boltann út í markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Snýr aftur
Sigurður Egill Lárusson snýr aftur eftir langa fjarveru, Sigurður er búin að vera á meiðslalistanum eftir að hann meiddist í 1-1 jafntefli gegn Vesta á heimavelli.
Sigurður skoraði tvö gegn Fylki á útivelli í fyrri leik liðanna.

Sigurður skoraði tvö gegn Fylki á útivelli í fyrri leik liðanna.

Fyrir leik
Innbyrðis
Þróttur vann fyrri leik liðanna á heimavelli Fylkis, 1-3. Sigurður Egill Lárusson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og Magnús Þórðarson bætti því þriðja við. Theodór Ingi Óskarsson skoraði eina mark Fylkis.
Síðasta sumar vann Þróttur báða leiki liðanna. Báðir leikirnir enduðu með 2-1 sigri Þróttar.
Þegar litið er til sögunnar hefur Þróttur unnið 15 leiki, Fylkir 26 og 9 jafntefli.

Síðasta sumar vann Þróttur báða leiki liðanna. Báðir leikirnir enduðu með 2-1 sigri Þróttar.
Þegar litið er til sögunnar hefur Þróttur unnið 15 leiki, Fylkir 26 og 9 jafntefli.

Fyrir leik
Toppbaráttan
Bæði lið eru í harðri baráttu um sæti í Bestu deildinni. Þau sitja bæði í umspilssæti en markmiðið er auðvitað að ná fyrsta sætinu sem gefur beint sæti í þeirri efstu.
Baráttan á toppnum er æsispennandi. Afturelding situr á toppnum með 35 stig, aðeins einu stigi fyrir ofan Þrótt og Fylki.
Þróttur situr í öðru sæti með 34 stig. Í síðasta leik beið liðið óvænt lægri hlut gegn Grindavík á útivelli og þar áður gerðu Þróttarar jafntefli gegn Gróttu, einnig á útivelli. Þeir leita því nú að sigri, en síðasti sigur kom gegn Aftureldingu á heimavelli. Sá leikur fór 4-1, þar sem Afturelding fékk tvö rauð spjöld í fyrri hálfleik.
Sigurður Egill Lárusson er líka komin til baka eftir löng meiðsli, hann var á bekknum gegn Grindavík.

Eins og kom fram hér að ofan er Fylkir einnig með 34 stig og er því aðeins einu stigi frá toppsætinu. Fylkir hefur líka gert eitt jafntefli og tapað einum leik í síðustu tveimur umferðum. Jafnteflið kom gegn Aftureldingu á heimavelli, þar sem leikurinn endaði 3-3, en tapið kom gegn Leikni á útivelli. Sá leikur endaði með 3-0 sigri Leikni.

Baráttan á toppnum er æsispennandi. Afturelding situr á toppnum með 35 stig, aðeins einu stigi fyrir ofan Þrótt og Fylki.
Þróttur situr í öðru sæti með 34 stig. Í síðasta leik beið liðið óvænt lægri hlut gegn Grindavík á útivelli og þar áður gerðu Þróttarar jafntefli gegn Gróttu, einnig á útivelli. Þeir leita því nú að sigri, en síðasti sigur kom gegn Aftureldingu á heimavelli. Sá leikur fór 4-1, þar sem Afturelding fékk tvö rauð spjöld í fyrri hálfleik.
Sigurður Egill Lárusson er líka komin til baka eftir löng meiðsli, hann var á bekknum gegn Grindavík.

Eins og kom fram hér að ofan er Fylkir einnig með 34 stig og er því aðeins einu stigi frá toppsætinu. Fylkir hefur líka gert eitt jafntefli og tapað einum leik í síðustu tveimur umferðum. Jafnteflið kom gegn Aftureldingu á heimavelli, þar sem leikurinn endaði 3-3, en tapið kom gegn Leikni á útivelli. Sá leikur endaði með 3-0 sigri Leikni.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Ívar Orri Kristjánsson er með flautuna. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Mikael Ívan Axelsson eru með flöggin.


Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Heil og sæl, kæru lesendur, og verið velkomin í beina lýsingu frá Laugardalnum þar sem Þróttur og Fylkir mætast í 19. umferð Lengjudeildarinnar.

mánudagur 17. ágúst
18:00 Völsungur-Vestri (GPG völlurinn)
18:00 Leiknir R.-Ægir (Leiknisvöllur)
18:00 ÍR-Njarðvík (Þarfaþingsvöllurinn)
18:00 Grindavík-Grótta (Stakkavíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Fylkir (AVIS völlurinn)
19:15 Afturelding-HK (Malbikstöðin að Varmá)

mánudagur 17. ágúst
18:00 Völsungur-Vestri (GPG völlurinn)
18:00 Leiknir R.-Ægir (Leiknisvöllur)
18:00 ÍR-Njarðvík (Þarfaþingsvöllurinn)
18:00 Grindavík-Grótta (Stakkavíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Fylkir (AVIS völlurinn)
19:15 Afturelding-HK (Malbikstöðin að Varmá)



