Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
2 - 2
HK
HK
Óðinn Bjarkason 9'1 - 01 - 113' Breki Hólm BaldurssonAron Elí Sævarsson (misnotað víti) 45'1 - 257' Viktor Helgi Benediktsson Haukur Örn Brink 60'2 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
2-2 lokatölur!
Ooog anda. Þvílík spenna hérna á lokamínútunum. Bæði lið sóttu til sigurs.

Afturelding fékk urmul færa og brenndu af vítaspyrnu. Þeir eru eflaust svekktir með að hafa ekki sótt stigin þrjú.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
95. mín
HK-ingar komnir í góða stöðu en flaggið á loft.
93. mín
Hálsar áhorfenda í yfirvinnu, bæði lið sækja eins og enginn sé morgundagurinn.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
Fáum við dramatík?
89. mín
HVERNIG KLÚÐRAÐI HANN ÞESSU???
Joachim Holtan brennir af gegn opnu marki!

Fær sendingu í gegn, Ólafur Örn í skógarúthlaupi. Holtan, sem er utarlega við vítateig, á bara eftir að renna boltanum í netið en setur hann framhjá!
87. mín
HK fær hornspyrnu. Ívar Örn með spyrnu á fjærsvæðið, Radic nær skallanum en tilraun hans framhjá.
Afturelding
84. mín
Gult spjald

Andi Hoti

Fer harkalega í Jóhann Þór og Gunnar spjaldar hann réttilega.
Afturelding
83. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtHaukur Örn Brink
HK
83. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
Afturelding
83. mín
Gult spjald

Óðinn Bjarkason

Fer í Breka Hólm og fær að líta gula spjaldið.
81. mín
Afturelding þjarmar að HK.
80. mín
Dauðafæri!
Haukur Örn Brink fær boltann rétt fyrir utan markteig og á viðstöðulaust skot beint á Ólaf Örn sem ver vel.

Þarna munaði engu!
HK
76. mín
InnÍvar Örn Jónsson
ÚtBirgir Steinn Styrmisson
Neyðist til þess að fara af velli
Alvöru þruma sem hann fékk í andlitið. Inn kemur aukaspyrnu-Ívar.
74. mín
Beint í andlitið!
Óðinn Bjarka tekur spyrnuna og setur hann beint í andlitið á Birgi Steini sem var í varnarvegg HK.

Birgir liggur óvígur eftir og fær aðhlynningu.
73. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Sýndist HK-ingurinn hafa farið bara farið í boltann, áhugaverður dómur.
HK
70. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtTumi Þorvarsson
HK
70. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtÞorvaldur Smári Jónsson
67. mín
Afturelding mun sterkara liðið þessa stundina.
65. mín
Stórhætta!
Óðinn Bjarka með skalla úr hornspyrnu Aftureldingar sem Ólafur Örn kemur fingri á og þaðan fer boltinn í viðarverkið. HK-ingar koma hættunni frá að lokum.
64. mín
Joachim Holtan með lúmska tilraun af löngu færi, Ólafur Örn langt af línunni. En markvörður HK er fljótur til og ver í horn.
Afturelding
62. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtSævar Atli Hugason
Afturelding
62. mín
InnAndi Hoti
ÚtBirkir Már Sævarsson
Afturelding
60. mín
EKKI LENGI AÐ SVARA!

Haukur Örn Brink

Byrjar og lýkur sókninni!

Haukur vinnur stöðvar hættulega skyndisókn HK-inga og vinnur boltann á eigin vallarhelmingi.

Mosfellingar keyra upp völlinn. Boltinn á Hauk sem er rétt innan vítateigs og hann klárar vel framhjá Ólafi Erni.
HK
57. mín
STANGAR HANN Í NETIÐ!

Viktor Helgi Benediktsson (stoðsending: Atli Hrafn Andrason)

HK-ingar leiða!

Atli Hrafn með fyrirgjöf úr aukaspyrnu á fjærsvæðið. Viktor Helgi rís manna hæst og stangar boltann í netið af stuttu færi.
Afturelding
56. mín
Gult spjald

Birkir Már Sævarsson

Tumi gerir vel og leikur á Birki sem tekur hann niður í kjölfarið og fer í bókina góðu.
54. mín
Afturelding ógnar
Sævar Atli með hörkuskot fyrir utan teig sem Ólafur ver vel í marki HK. Boltinn beint á Holtan sem er í markteignum en aftur ver Óli meistaralega. Holtan var þó flaggaður rangstæður.
49. mín
Bjartur Bjarmi með skot á mark HK en Ólafur Örn ver nokkuð þægilega.
47. mín
HK fær hornspyrnu, taka hana stutt. Aron Kristófer við endalínu og tekur af rás inn í teiginn. Á að lokum skot sem fer í varnarmann og í aðra hornspyrnu.

Ekkert kemur upp úr seinni hornspyrnu HK-inga.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Joachim Holtan sparkar þessu í gang.
45. mín
Hálfleikur
Fjörugum fyrri hálfleik lokið!
Gunnar Freyr flautar til hálfleiks beint eftir vítavörsluna. Jafnræði með liðunum hér í líflegum fyrri hálfleik og ganga þau jöfn til búningsklefa.
Afturelding
45. mín
ÓLAFUR GRÍPUR VÍTIÐ!

Aron Elí Sævarsson

Aron fær loks að taka spyrnuna eftir miklar tafir.

Þokkalega föst spyrna í hornið en Ólafur les hann vel og grípur boltann!
45. mín
AFTURELDING FÆR VÍTI!
Hætta eftir hornspyrnu Mosfellinga og Gunnar Freyr bendir á punktinn. HK-ingar nokkuð gáttaðir. Hann hlýtur að vera dæma hendi, ómögulegt að sjá úr blaðamannastúknni.

Eftir VAR skoðun uppi í blaðamannaboxi þá sýnist mér þetta vera réttur dómur. Boltinn í hendina á Aroni Kristófer sem stóð á marklínu HK.
45. mín
+1

Afturelding fær hornspyrnu.
45. mín
Ein mínúta í uppbót.
44. mín
Tumi sker inn frá vinstri og krullar boltanum rétt framhjá marki Aftureldingar.
HK
41. mín
Gult spjald

Þorsteinn Aron Antonsson

Rífur Hauk Brink niður í skyndisókn Aftureldingar og fer verðskuldað í bókina góðu.
36. mín
Vel varið!
HK-ingar missa boltann á hættulegum stað. Boltinn berst á Hauk Brink sem lætur vaða við vítateig en Ólafur Örn ver vel í marki gestanna.
33. mín
Arnþór Ari með tilraun af löngu færi sem Arnar Daði ver örugglega í marki Aftureldingar.
30. mín
Holtan fær sendingu í gegn og keyrir að vítateig HK. Birgir Steinn verst vel og bægir hættunni frá.
30. mín
Tumi með tilraun sem fer beint á Arnar Daða í marki Aftureldingar.
28. mín
Verið lítið um færi eftir þessa hressandi byrjun.
18. mín
Tumi Þorvars með fyrirgjöf á Breka Hólm sem skallar framhjá marki Mosfellinga.
HK
13. mín
ÚR EFSTU HILLU!

Breki Hólm Baldursson

Smyr honum í samskeytin!

Breki fær boltann langt fyrir utan teig, enginn Mosfellingur sem mætir. Hann leggur boltann fyrir sig og klínir honum í samskeytin fjær!

Alvöru mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir HK. Breki kom á láni frá KA rétt fyrir gluggalok.
12. mín
Aron Kristófer!
Lætur bara vaða úr aukaspyrnunni sem er vel fyrir utan teig. Arnar Daði þarf að hafa sig allan við til að verja skotið.
Afturelding
11. mín
Gult spjald

Axel Óskar Andrésson

HK-ingar keyra upp í skyndisókn. Axel fer harkalega í Atla og fær að líta gula spjaldið.
Afturelding
9. mín
ÓÐINN BRÝTUR ÍSINN!

Óðinn Bjarkason (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Frábærlega gert hjá Aroni og Óðni. Þríhyrningsspil í gegnum hjarta HK-inga. Óðinn fær boltann einn í gegn og klárar snyrtilega framhjá Ólafi í marki HK.

Óðinn með sitt fjórtánda mark í sumar!
8. mín
Bæði lið þreifa hvort á öðru. Engin færi enn sem komið er.
1. mín
HK-ingar ógna
Strax hætta.

Radic keyrir í teiginn, kominn við endalínu og gefur út í teig Mosfellinga en enginn HK-ingur mættur.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Bláklæddir HK-ingar hefja leik.
Fyrir leik
Styttist!
Ísfuglinn heldur uppi stuðinu með skemmtilegum dönsum fyrir leik.

Mynd: Kári Snorrason
Fyrir leik
Elmar Kári og Karl Ágúst hvorugir í hóp
Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins. Elmar Kári Cogic er ekki í leikmannahóp Aftureldingar en hann hefur verið frá í undanförnum leikjum vegna meiðsla. Þá er Karl Ágúst Karlsson ekki í leikmannahóp HK en hann skoraði fyrra mark liðsins gegn Leikni síðastliðinn fimmtudag.

Gunnar Bergmann kemur inn í byrjunarlið Mosfellinga á kostnað Andi Hoti. Breki Hólm er í byrjunarliði HK í fyrsta sinn frá því að hann gekk í raðir liðsins á láni frá KA.
Fyrir leik
Sá flúraði á flautunni
Gunnar Freyr Róbertsson er dómari leiksins. Honum til halds og trausts á sitthvorri hliðarlínunni eru þeir Ronnarong Wongmahadthai og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.

Eftirlitsmaður er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Ánægður í Mosfellsbæ
Haukur Örn Brink er á láni hjá Aftureldingu frá Stjörnunni. Hann byrjaði sinn fyrsta leik með Aftureldingu á fimmtudag og skoraði eitt af þremur mörkum liðsins í 3-3 jafntefli í Árbænum. Hann skoraði með skoti fyrir utan teig.

Hann var í skemmtilegu viðtali á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um dvölina í Mosfellsbæ.

„Ég vildi fara á lán til þess að fá meiri spiltíma, vera í stærra hlutverki og þróast betur sem leikmaður. Afturelding er mjög spennandi lið, ég fíla boltann sem liðið spilar og mér finnst hann henta mér mjög vel."

„Mér fannst líka mjög spennandi að þeir væru ennþá í bikarkeppninni. það voru nokkrir kostir í boði en Afturelding var alltaf fyrsti kosturinn."

Fyrir leik
Haukur Andri spáir endurkomusigri
Haukur Andri Haraldsson er spámaður umferðarinnar að þessu sinni og spáir hann markaleik.

Afturelding 3 - 2 HK
Mörg augu ættu að vera á þessum leik. Bæði lið eru að ganga vel og boltinn verður ekki mikið í loftinu. HK mun eiga fyrri hálfleikinn og komast í 0-2. Tumi Thorvars hleypur inn fyrir vörnina eins og hann gerir best og vippar yfir Arnar Daða. 0-2 er staðan í hálfleik.

Afturelding setur svo í gírinn í seinni og byrjar með marki frá öðrum BBB, Bjarta Bjarma. Axel Óskar skorar ekki með skalla heldur eftir aukaspyrnu af stuttu færi þar sem hann neglir í markmannshornið.

Afturelding hendir öllu fram í lokin og það verður darraðadans inni í teignum og Kiddi Freyr skorar og fer og fagnar með Kristjáni Hjörvari. Kristján Hjörvar gefur svo Kidda skeið af Hreysti og Lean Body og tekur hann með sér að grinda í ræktinni.

Fyrir leik
Spennan magnast
Fjórar umferðir eru eftir af Lengjudeildinni og er mikil spenna. Afturelding á þó eftir að spila fimm leiki vegna bikarævintýri liðsins.

Mjótt er á munum á toppnum en aðeins fjögur stig frá fimmta sætinu (HK) yfir í það fyrsta (Afturelding).

1 - Afturelding 17 +22 35 stig
2 - Þróttur R. 18 +19 34 stig
3 - Fylkir 18 +9 34 stig
4 - Njarðvík 18 +8 32 stig
5 - HK 18 +9 31 stig

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Malbikstöðin heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Malbikstöðinni að Varmá.

Hér klukkan 19:15 mun Gunnar Freyr Róbertsson flauta til leiks viðureign Aftureldingar gegn HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.