Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Besta karla
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
3 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Róbert Hauksson 12'1 - 01 - 134' Emil AtlasonRóbert Hauksson 39'2 - 1Már Ægisson 62'3 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
+4
Fjörugum leik lokið! Sanngjarn sigur Framara í kvöld. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+1
Jóhann Árni reynir skot sem fer hátt yfir markið.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
90. mín
Stuðningsmenn Fram ánægðir með Kennie
Þeir syngja um Kennie eftir að hafa unnið návígi.
89. mín
Már með skotið!
Már með fínt skot sem fer rétt yfir markið.
Fram
88. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Vuk átti frábæran leik í kvöld
Fram
88. mín
InnJakob Byström
ÚtRóbert Hauksson
Róbert magnaður í kvöld
86. mín
Horn fyrir Stjörnunna
Róbert Hauks nær að skalla frá eftir fyrirgjöf.
85. mín
Aukaspyrna á góðum stað
Boltinn kemur inn á teiginn en Fram hreinsa frá.
Fram
84. mín
Hrindir Árna Vill

Haraldur Einar Ásgrímsson

83. mín
DAUÐAFÆRI!
Israel Garcia þræðir Kennie í gegn en Darri Bergmann gerir sig stóran og ver vel.
80. mín
Vuk við það að ná fyrirgjöfinni en fær horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá. Fram fá annað horn. Jóhann Árni hreinsar frá.
Stjarnan
79. mín
Peysutog

Jóhann Árni Gunnarsson

Stjarnan
77. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtEmil Atlason
Þreföld breyting
Stjarnan
77. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtGuðmundur Baldvin Nökkvason
Stjarnan
77. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtÖrvar Eggertsson
Fram
76. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtFreyr Sigurðsson
Freyr uppsker mikið lófaklapp
74. mín
Framarar fá horn
Haraldur Einar kemur með boltann inn á teiginn en boltinn flýgur yfir allan pakkann og aftur fyrir.
74. mín
790 áhorfendur í kvöld!
73. mín
Kyle með ágætis tilraun
Hann tekur skot á lofti langt fyrir utan teig sem fer yfir.
Stjarnan
73. mín
Stoppar skyndisókn með peysutogi

Bjarki Hauksson

71. mín
Bjarki Hauks dæmdur brotlegur
Aukaspyrnan er tekin stutt og svo kemur fyrirgjöf sem er hreinsuð frá.
69. mín
Sláin!
Birnir Snær leikur á Kyle og nær sniðugu skoti sem flýgur í slána og í innkast.
68. mín
Horn fyrir Stjörnuna
Birnir Snær nær skoti en það fer hátt yfir markið.
66. mín
Góð staða en markspyrna
Haraldur Einar í góðri fyrirgjafarstöðu en missir boltann aftur fyrir.
Stjarnan
62. mín
InnSindri Þór Ingimarsson
ÚtIbrahim Turay
Stjarnan
62. mín
InnBirnir Snær Ingason
ÚtAri Leifsson
Fram
62. mín
Framarar að komast í frábæra stöðu!

Már Ægisson (stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic)

Viktor Freyr kemur með frábæra sendingu á Vuk, hann heldur í boltann við vítateiginn áður en hann sér hlaup Más. Sendingin er frábær og afgreiðslan ekki síðri.
61. mín
Fram að fá aukaspyrnu á fínum stað
Jóhann Árni kemur með boltann inn á teiginn en Sigurjón skallar boltann yfir markið. Hornspyrna fyrir Stjörnuna. Viktor Freyr grípur spyrnuna.
59. mín
Benedikt að vinna horn
Þeir taka þetta stutt og rangstaða dæmd þegar Benedikt fær boltann aftur. Mjög klaufalegt.
58. mín
Skot
Haraldur Einar með skot úr góðri stöðu sem fer í varnarmann og í innkast.
56. mín
Boltinn er í netinu en innkast dæmt
Línudómarinn flaggaði innkast, líklegast hárrétt.
51. mín
Frábær varsla!
Vuk kemst á hægri fótinn og tekur fast skot sem fer í áttina að fjærhorninu. Þar er Darri mættur og ver meistaralega.
Fram
50. mín
InnMár Ægisson
ÚtFrederico Bello Saraiva
Fred fer meiddur af velli
48. mín
Mikil hætta!
Emil Atla kemur boltanum á Benedikt Warén sem sem kemur með hættulega fyrirgjöf en þarna vantar hvítar treyjur.
46. mín
Fram byrja seinni hálfleikinn
Vuk sparkar þessu í gang á ný.
45. mín
Hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks
Þetta hefur verið mjög opinn og skemmtilegur leikur hingað til. Bæði lið hafa skapað góð færi en Framarar hafa skapað betri færi og eru sanngjarnt yfir í hálfleik.
45. mín
Örvar Eggerts liggur eftir og fær aðhlynningu
Hann ætlar að halda áfram.
45. mín
Ein í uppbót
44. mín
Dauðafæri!
Jóhann Árni í dýrindis skotfæri inni á teignum en skotið hátt yfir markið.
42. mín
Stjarnan fá aukaspyrnu á hættulegum stað
Jóhann Árni kemur með boltann inn á teiginn, hann finnur Benedikt sem skallar framhjá.
Fram
39. mín
Hann þakkar traustið!

Róbert Hauksson (stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic)

Boltinn kemur á Vuk sem er rétt fyrir framan miðju. Hann tekur þessa fullkomnu snertingu í svæðið fyrir Róbert Hauks sem á frábæra afgreiðslu upp í þaknetið með mann í sér.
Fram
38. mín
Fer of seint í Ara Leifs

Vuk Oskar Dimitrijevic

Stjarnan
34. mín
Hann er eins og gammur í teignum!

Emil Atlason (stoðsending: Jóhann Árni Gunnarsson)

Jóhann Árni kemur með fyrirgjöf í fyrsta á hættusvæðið, Viktor Freyr kemur út úr markinu en Emil er fyrri til og potar boltanum í netið.

Allt jafnt á nýjan leik!
32. mín
Fram fá aukaspyrnu á fínum stað
Fred kemur með boltann inn á teiginn og þar er Þorri Stefán nálægt því að komast í hann en markspyrna niðurstaðan.
30. mín
Róbert Hauks!
Vuk platar Örvar Loga upp úr skónum og finnur Róbert sem tekur skot í varnarmann og boltinn endar hjá Darra í markinu.
28. mín
Bjarki Hauks vinnur hornspyrnu
Boltinn kemur inn á teiginn en Kyle hreinsar frá.
23. mín
Stjarnan fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn og Stjörnumenn ná skoti sem fer í Kyle og í aðra hornspyrnu. Freyr hreinsar frá en Stjarnan halda í boltann.
22. mín
Slá og stöng!
Bjarki Hauks tekur gott skot rétt fyrir utan teig sem fer í varnarmann og í slána, þá hrekkur boltinn til Emils sem neglir honum í stöngina og framhjá.
21. mín
Vuk með skotið!
Fred kemur með frábæran bolta á Róbert Hauks, hann finnur Vuk inni á teignum, Vuk nær að snúa og tekur sniðugt skot sem fer framhjá.
16. mín
Fred í færi!
Fred fær boltann í góðri stöðu, hann keyrir á hægri löppina og tekur lúmskt skot sem siglir framhjá fjærhorninu.
15. mín
Benedikt Warén að vinna horn
Ekkert kom úr þessu horni.
Fram
12. mín
FRÁBÆRT SPIL OG MARK!

Róbert Hauksson (stoðsending: Frederico Bello Saraiva)

Kennie er með boltann úti hægra megin. Fred tekur hlaup í svæðið við endalínuna Hann fær boltann og kemur með fullkomna fyrirgjöf á Róbert Hauks sem setur boltann á milli fóta Darra í markinu.

Framarar leiða!
9. mín
Hætta!
Freyr Sigurðsson kemst upp að endamörkum og kemur með hættulega fyrirgjöf sem Stjarnan koma frá.
7. mín
Stjarnan fá aukaspyrnu á fínum stað
Gustav Kjeldsen braut á Kennie. Þeir taka þetta stutt og svo kemur fyrirgjöf en Stjörnumenn skalla frá.
4. mín
Fram fá fyrsta horn leiksins
Haraldur Einar kom boltanum í Ara Leifs og hornspyrna niðurstaðan. Spyrnan kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
3. mín
Fred með skot!
Fred er með boltann úti hægra megin. Hann tekur stefnubreytingu og kemst á hægri fótinn en Darri Bergmann ver vel í markinu.
3. mín
Örvar Eggerts dæmdur brotlegur
Fer þarna of harkalega í Harald Einar og aukaspyrna dæmd.
1. mín
Leikur hafinn
Stjörnumenn byrja með boltann.
Fyrir leik
10 mínútur í leik
Það er allt að verða klárt á Lambhagavellinum. Búið að vökva völlinn vel og aðstæðurnar upp á tíu. Liðin halda til búningsherbergja
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir þrjár breytingar. Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, gerir eina breytingu.

Fyrir leik
Sumargluggi liðanna
Glugginn hjá Fram var mjög rólegur. Liðið kallaði Óliver Elís Hlynsson aftur frá láni en engir leikmenn fóru frá félaginu í glugganum.

Fram
Komnir
Óliver Elís Hlynsson frá ÍR úr láni

Farnir

Það var svo sannarlega nóg að gera hjá Stjörnunni í glugganum. Liðið sótti fjóra leikmenn en misstu þrjá.

Stjarnan
Komnir
Árni Vilhjálmsson frá Al-Sahel í Sádi-Arabíu
Ari Leifsson frá Kolding í Danmörku
Christian Bjarmi Alexandersson frá Grindavík
Sigurður Gunnar Jónsson frá HK úr láni

Farnir
Bjarki Hrafn Garðarsson til Dortmund í Þýskalandi
Haukur Örn Brink á láni til Aftureldingar
Alpha Conteh seldur til Keflavíkur (var á láni)


Fyrir leik
Framarar reyndu að næla sér í þriðja Rúnarssoninn
Á dögunum reyndu Fram að kaupa Eystein Rúnarsson, leikmann Grindavíkur, en liðin náðu ekki saman fyrir gluggalok.


Fyrir leik
Sjáðu mörkin úr hinum leikjum umferðarinnar
Fyrir leik
Karl Ágúst spáir spennandi leik og stemningu!
Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, hefur verið funheitur um þessar mundir og fékk það verkefni að spá fyrir 19. umferð Bestu deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fram 3-2 Stjarnan
Þetta verður lang besti leikurinn og það verður geggjuð stemning. Örvar skorar tvö mörk fyrir Stjörnuna en það dugar þeim ekki, Fram enda á að stela stigunum þremur.



Fyrir leik
Framarar unnu naumlega í fyrri viðureigninni
Liðin áttust við í 8. umferð og þar bar Fram sigur af hólmi í tíðindalitlum leik. Róbert Hauksson skoraði sigurmarkið eftir frábæra fyrirgjöf frá Frey Sigurðssyni.

Fyrir leik
Gestirnir hafa átt erfitt með að tengja saman sigra
Tímabil Stjörnunnar hefur verið ákaflega sveiflukennt og valdið miklum vonbrigðum. Liðið hefur átt erfitt með að komast á almennilegt skrið og það hefur verið krefjandi að tengja saman sigra. Þeir náðu þó tveimur gríðarlega mikilvægum sigrum á Keflavík og Val í síðustu tveimur leikjum. Stjörnunni var spáð 3. sæti fyrir tímabilið og eru ansi langt frá því. Það er áhugavert að sjá að Fram sem var spáð 8. sæti eru í 3. sæti en Stjörnunni sem var spáð 3. sæti eru í 8. sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heimamenn stefna á Evrópusæti
Fram hafa verið virkilega öflugir á tímabilinu og komið á óvart. Þeir höfðu ekki tapað í sex leikjum þangað til þeir mættu sterku liði KR og þurftu að þola 5-2 skell á heimavelli. Stefnan er klárlega á Evrópusæti þar sem þeir eru í 3. sæti, sjö stigum á undan Blikum sem eru í því fjórða. Þeim var spáð 8. sæti fyrir tímabilið og hafa svo sannarlega farið fram úr þeim væntingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sigurður Hjörtur er á flautunni
Sigurður Hjörtur Þrastarson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson.

Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar!
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Í kvöld eigast Fram og Stjarnan við í 19. umferð Bestu deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

mánudagur 17. ágúst

Besta karla
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.