SKÝRSLAN: Sjötta markalausa jafntefli Grindavíkur á tímabilinu
Hvað réði úrslitum?
Vindurinn hafði mikil áhrif á leikinn í dag og var boltinn mikið úr leik og menn mikið að taka innköst.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Rafn Ingason
Hann varði vel þegar hann þurfti þess og var meira að gera hjá honum í markinu en hjá Hjörvari Daða.
2. Ingi Þór Sigurðsson
Veit eiginlega ekki hver á þetta skilið en Ingi var að reyna skapa færi og gerði vel nokkrum sinnum og skapði hættu inn í teig Gróttumanna.
Atvikið
Þegar Rúnar Ingi setti boltann í stöngina af stuttu færi! Það hefði mögulega bara klárað þennan leik og Grindavík hefðu getað tryggt sér 3 mikilvæg stig!
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík eru aðeins 1 stigi frá fallsæti eftir að Völsungur er búið að vera á siglingu og unnu Vestra í dag!
Grótta sitja ennþá í 6.sæti 5 stigum frá Njarðvík.
Grótta sitja ennþá í 6.sæti 5 stigum frá Njarðvík.
Vondur dagur
Ætla gefa leiknum bara vondan dag. Andri Freyr gæti mögulega verið þarna líka, fékk 1-2 góð færi sem hann hefði átt að gera betur í en annars sást hann voðalega lítið í leiknum.
Dómarinn - 8
Hann var bara góður, enginn stór atriði í þessum leik og ekki mikið í gangi þannig að mínu mati mjög þæginlegur leikur að dæma.


