Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
ÍR
ÍR
3 - 1
Njarðvík
Njarðvík
Emil Nói Sigurhjartarson 20'1 - 01 - 146' Arnleifur HjörleifssonGuðjón Máni Magnússon 60'2 - 1Bergvin Fannar Helgason 76'3 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Lífsnauðsynleg þrjú stig í Breiðholtið.
Þetta horn er það síðasta sem gerist í þessum leik. Verðskuldaður sigur ÍR staðreynd. Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
90. mín
+5
Alexander Helgi gerir frábærlega og finnur Oumar Diouck í pínulitlum vasa í teignum, hann nær skoti en Vilhelm ver í horn.
90. mín
+4
Boltinn dettur fyrir Aron Einarsson rétt fyrir utan teiginn, hann á skot sem er beint á Vilhelm.
90. mín
+3
Þorri Heiðar í dauðafæri sloppinn einn í gegn en Guy gerir vel og les hann.
90. mín
Fimm mínútum bætt við.
90. mín
Víðir Freyr i fínu færi eftir flikkskalla frá Bergvin Fannari en skotið hans er beint á Guy.
ÍR
89. mín
InnÞorri Heiðar Bergmann
ÚtOrri Bjarkason
87. mín
Rafael Victor í dauðafæri inn á markteignum en skotið hans en rétt fram hjá fjærstönginni.
85. mín
ÍR sækja upp hinum megin og vinna horn.
85. mín
Arnleifur tekur spyrnuna og finnur Rafael Victor sem nær skalla en hann fer á varnarmann sem skallar frá.
84. mín
Enn og aftur vilja Njarðvíkingar víti og mögulega hafa þeir eitthvað til síns máls í þetta skiptið þegar Oumar Diouck er rifinn niður í teignum en horn er niðurstaðan.
Njarðvík
83. mín
InnStefán Gísli Stefánsson
ÚtBragi Karl Bjarkason
Njarðvík
83. mín
InnBjörn Aron Björnsson
ÚtSigurjón Már Markússon
83. mín
ÍR skalla frá en aftur fyrir og Njarðvæik fá annað horn.
82. mín
Oumar Diouck setur spyrnuna beint í vegginn og Njarðvík fá horn.
81. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu á mjög góður stað við teiginn vinstra megin.
ÍR
79. mín
Gult spjald

Jón Arnar Sigurðsson

Stoppar Oumar Diouck sem er að keyra í skyndisókn og ÍRingar fámennir til baka
78. mín
ÍR fá hornspyrnu sem þeir ná ekki að nýta.
ÍR
76. mín
Samba í Breiðholtinu!!!

Bergvin Fannar Helgason (stoðsending: Óliver Andri Einarsson)

Orri Bjarkason, Óliver Andri og Ágúst Unnar spila vel á milli sín úti hægra megin. Óliver endar með boltann inn á teignum, finnur Bergvin við vítapunktinn. Bergvin tekur eina snertingu áður en hann skilar honum í netið. Þessi varnarleikur Njarðvíkur alls ekki upp á marga fiska.
ÍR
75. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
72. mín
Arnleifur tekur spyrnuna en þá flautar Gunnar Oddur og vill taka menn á eittvað tal. Arnleifur tekur spyrnuna aftur á fjær þar sem Eiður Aron reynir að fiska víti en það er eiginlega hlægileg tilraun og Gunnar Oddur fellur ekki í þá gryfju.
72. mín
Njarðvíkingar fá horn.
72. mín
Orri Bjarkason er að sleppa aleinn í gegn en flaggið á loft, mjöög tæpt ef rétt er.
Njarðvík
66. mín
Gult spjald

Rafael Alexandre Victor

Tekur Óliver Andra ansi hressilega niður.
66. mín
Aftur vilja Njarðvík víti, nú fyrir hendi, en mér sýnist ekkert hafa verið á þetta.
65. mín
Bragi Karl tekur spyrnuna sem er ótrúlega slök og fer hátt yfir markið.
65. mín
Njarðvík vilja víti þegar Alexander Helgi fellur í teignum en fá bara horn, þeir ná svo ekki að nýta hornið en fá aukaspyrnu hinum megin.
Njarðvík
61. mín
InnAron Einarsson
ÚtLeandro Fernandes
Njarðvík
61. mín
InnOumar Diouck
ÚtValdimar Jóhannsson
ÍR
60. mín
Keimlíkt marki gestanna í upphafi hálfleiksins

Guðjón Máni Magnússon (stoðsending: Óliver Andri Einarsson)

Guðjón Máni aleinn á fjærstönginni þegar Óliver virðist vera að reyna að finna Bergvin í fætur. Hann hleypur, að mér sýnist, óvart yfir boltann sem verður til þess að hann rúllar fyrir Guðjón Mána sem er aleinn á fjær.
57. mín
Orri Bjarkason með fínasta skot að marki Njarðvíkur en það er yfir.
55. mín
Njarðvík fá horn sem Arnleifur tekur og Eiður Aron skorar fyrir Njarðvík en Gunnar Oddur metur það sem svo að það hafi verið brotið á Vilhelm í teignum. Davíð Smári tryllist á bekknum og spyr á hvað sé verið að dæma.
53. mín
Njarðvík í nauðvörn og henda sér fyrir allt, Bergvin Fannar fær fínt færi, skotið í varnarmann og þeir koma hættunni frá.
48. mín
Áfram sækja Njarðvík og nú fær Fernandes skallafæri en skallinn hittir ekki markið.
47. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu á fínum stað úti vinstra megin en spyrnan frá Fernandes er slök og er yfir allan pakkan og fer aftur fyrir.
Njarðvík
46. mín
Þeir jafna strax!!

Arnleifur Hjörleifsson (stoðsending: Alexander Helgi Sigurðarson)

ÍRingar alveg sofandi í upphafi seinni hálfleiks. Fyrirgjöf frá Alexander Helga sem fer fram hjá öllum, alla leið á fjær þar sem Arnleifur er aleinn, grunsamlega einn, og skilar honum í netið.
46. mín
Við erum farin aftur af stað
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða í hálfleik.
Nokkuð fjörugur hálfleikur að baki þrátt fyrir að það hafi aðeins eitt mark litið dagsins ljós. Barátta út um allan völl og eitthvað af færum og vonandi meira af því í þeim seinni.
44. mín
Emil Nói með skot fyrir utan teig en það er hátt yfir markið.
ÍR
42. mín
Gult spjald

Óliver Andri Einarsson

Kemur seint inn í Alexander Helga sem er búinn að losa sig við boltann. ÍR bekkurinn tryllist og mögulega réttilega, virtist soft við fyrstu sýn.
41. mín
Skalli út úr vörn ÍR dettur beint fyrir fætur Ágústs Unnars sem tekur hann á lofti og þrumar honum í átt að markinu en skotið er yfir.
40. mín
Njarðvík spila vel á milli sín upp vinstri kantinn og á endanum fær Valdimar boltann í fætur rétt fyrir utan teiginn í kjör skotstöðu, lætur vaða en skotið er yfir markið.
Njarðvík
36. mín
Gult spjald

Arnleifur Hjörleifsson

Gamla góða 'annað hvort fer maðurinn fram hjá þér eða boltinn, ekki bæði'. Orri búinn að stinga boltanum inn fyrir og ætlar að hlaupa á eftir honum en Arnleifur stígur fyrir hann.
35. mín
Loksins kemur góður bolti fyrir markið úr horni, þegar Arnleifur stígur á stokk en Vilhelm með frábært úthlaup úr markinu og handsamar boltann.
34. mín
Bragi Karl fær boltann í fætur upp hægri vænginn, þrumar honum fyrir markið en Sigurður Karl nær skallar aftur fyrir.
30. mín
Lítið um gæði þessari síðustu mínútur. Báðum liðum virðist fyrirmunað að halda boltanum á jörðinni og löngu og háu boltarnir eru að virka illa fyrir bæði lið.
26. mín
Rafael Victor á mikilli siglingu upp vinstri kantinn og vinnur horn.
Nú tekur Fernandes spyrnuna en aftur fer hún ofan á þaknetið.
21. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu á góðum stað sem Fernandes tekur beint á pönnuna á Rafael Victor en skallinn hans fram hjá.
ÍR
20. mín
Heimamenn leiða

Emil Nói Sigurhjartarson

Bergvin Fannar fær boltann í fætur og keyrir á varnarlínuna, klobbar Eið Aron og kemur honum út á Orra Bjarkason, hann dansar aðeins með hann áður en hann setur hann fyrir markið á Oliver Andra sem á skot í stöngina og beint út í teiginn þar sem Emil Nói bíður og skilar honum upp í þaknetið.
18. mín
Alexander tekur spyrnuna sme endar ofan á þaknetinu.
18. mín
Klaufalegur varnarleikur hjá ÍR en Sigurður Karl skallar boltann í samherja og aftur fyrir markið, gefins horn fyrir gestina.
15. mín
Hornspyrnan kemur í út-swing langt út í teiginn þar sem Sigurður Karl kemur honum að marki, ÍRingar næ annari snertingu á boltann áður en Óliver Andri kemur honum á markið en Guy er í litlum vandræðum með það.
14. mín
Orri Bjarkason dansar með boltann inn í teig, reynir svo að koma honum fyrir en í varnarmann fer boltinn og aftur fyrir.
12. mín
ÍR í góðri sókn sem endar á því að Bergvin Fannar sleppur einn í gegn, Arnar Helgi fylgir fast á hæla hans og Guy kemur vel út úr markinu sem nær honum úr nægilegu jafnvægi að skotið er fram hjá markinu.
8. mín
Eftir smá skallatennis í teignum nær Rafael Victor að koma boltanum frá og Njarðvík sækja hratt en ÍR eru snöggir til baka og gestirnir ná ekki að nýta sóknina.
7. mín
Góð sókn ÍR endar með fyrirgjöf frá Óliver Andra sem fer af varnarmanni og aftur fyrir, fyrsta horn leiksins er heimamanna.
5. mín
Guy Smit fer í tæpt skógarhlaup út fyrir teiginn sinn en sleppur með skrekkinn og nær fyrstur til boltans
3. mín
Aftur eru ÍR að sækja en í þetta skiptið fer skotið beint á Guy í markinu.
2. mín
Guðjón Máni kominn í fína stöðu við teiginn hinum megin en skotið hans af varnarmanni og í fangið á Guy Smit
1. mín
Bragi Karl strax kominn í færi á sínum gamla heimavelli, á skot úr d-boganum en það er fram hjá.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað í Breiðholtinu.
Fyrir leik
Haukur Andri og kristalkúlan
Haukur Andri Haraldsson, leikmaður ÍA, er spámaður umferðarinnar og hann hafði þetta að segja um þennan leik:

ÍR 0 - 2 Njarðvík
Þessi leikur verður einnig spilaður mikið af þessari leið eitt. Bæði lið eru á ágætu skriði en Njarðvík er með betra lið og hefur þennan. ÍR mun byrja leikinn betur og Davíð Smára líst ekkert á blikuna. Hann gírar sína menn rækilega í hálfleik og þeir koma út og skora strax eftir 10 sekúndur. Oumar Diouck pressar miðjuna sem ÍR á, stelur boltanum, kemst í gegn og klobbar markmanninn. Stefán Gísli skorar svo eftir misheppnaða fyrirgjöf og Ómar Björn missir sig og hleypur inn á völlinn til að fagna með litla bróður sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jóhann Birnir gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Vestra í síðustu umferð. Inn koma þeir Kristján Atli Marteinsson, Guðjón Máni Magnússon og Óliver Andri Einarsson. Þeir koma inn fyrir þá André Abedm, Stefán Þór Pálsson og Víði Freyr Ívarsson

Davíð Smári gerir tvær breytingur á sínu liði frá sigrinum gegn Gróttu en Oumar Diouck og Aron Einarsson fá sér sæti á bekknum og inn fyrir þá koma þeir Leandro Fernandes og Rafael Victor.
Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni í leik dagsinsn og með honum eru Óliver Thanh Tung Vú og Jón Reynir Reynisson með sitthvort flaggið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvíkingar eru heitasta liðið í deildinni um þessar mundir og hafa unnið síðustu fjóra leiki. Þeir heimsóttu Gróttu í síðustu umferð í leik sem þeir unnu 1-4. Eins og er sitja þeir í 4. sæti þremur stigum frá Aftureldingu á toppnum sem eiga þó leik til góða. Davíð Smári kann svo sannarlega að láta sín lið toppa á réttum tíma og verður áhugavert að sjá lokasprettinn hjá þeim.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
ÍR
ÍR hafa verið á ágætis róli undanfarin en þurftu þó að sætta sig við tap í síðustu umferð. Þeir heimsóttu Vestra á Ísafjörð í síðasta leik sem endaði 1-0 fyrir heimamönnum. ÍR eru með tvo sigra, tvö töp og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum og sitja í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Komið sælir kæru lesendur
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik ÍR og Njarðvíkur í Lengjudeild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.