Fyrir leik
Gestirnir hafa átt erfitt með að tengja saman sigra
Tímabil Stjörnunnar hefur verið ákaflega sveiflukennt og valdið miklum vonbrigðum. Liðið hefur átt erfitt með að komast á almennilegt skrið og það hefur verið krefjandi að tengja saman sigra. Þeir náðu þó tveimur gríðarlega mikilvægum sigrum á Keflavík og Val í síðustu tveimur leikjum. Stjörnunni var spáð 3. sæti fyrir tímabilið og eru ansi langt frá því. Það er áhugavert að sjá að Fram sem var spáð 8. sæti eru í 3. sæti en Stjörnunni sem var spáð 3. sæti eru í 8. sæti.

01.04.26 12:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 3. sæti

Fyrir leik
Heimamenn stefna á Evrópusæti
Fram hafa verið virkilega öflugir á tímabilinu og komið á óvart. Þeir höfðu ekki tapað í sex leiki þangað til þeir mættu sterku liði KR og þurftu að þola 5-2 skell á heimavelli. Stefnan er klárlega á Evrópusæti þar sem þeir eru í 3. sæti, sjö stigum á undan Blikum sem eru í því fjórða. Þeim var spáð 8. sæti fyrir tímabilið og hafa svo sannarlega farið fram úr þeim væntingum.


Fyrir leik
Sigurður Hjörtur er á flautunni
Sigurður Hjörtur Þrastarson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson.
Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar!
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Í kvöld eigast Fram og Stjarnan við í 19. umferð Bestu deildar karla.







