Fyrir leik
Tríóið
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni í leik dagsinsn og með honum eru Óliver Thanh Tung Vú og Jón Reynir Reynisson með sitthvort flaggið. 

Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvíkingar eru heitasta liðið í deildinni um þessar mundir og hafa unnið síðustu fjóra leiki. Þeir heimsóttu Gróttu í síðustu umferð í leik sem þeir unnu 1-4. Eins og er sitja þeir í 4. sæti þremur stigum frá Aftureldingu á toppnum sem eiga þó leik til góða. Davíð Smári kann svo sannarlega að láta sín lið toppa á réttum tíma og verður áhugavert að sjá lokasprettinn hjá þeim. 

Fyrir leik
ÍR
ÍR hafa verið á ágætis róli undanfarin en þurftu þó að sætta sig við tap í síðustu umferð. Þeir heimsóttu Vestra á Ísafjörð í síðasta leik sem endaði 1-0 fyrir heimamönnum. ÍR eru með tvo sigra, tvö töp og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum og sitja í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti. 

Fyrir leik
Komið sælir kæru lesendur
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik ÍR og Njarðvíkur í Lengjudeild karla. 



