Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 0
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
Bergdís Sveinsdóttir 17'1 - 0Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir 22'2 - 0Bergdís Sveinsdóttir 68'3 - 0
Dómari: Hreinn Magnússon
Leik lokið!
Frábær og dýrmætur sigur Víkinga staðreynd. Skýsla kemur inn á síðuna innan skamms. .net er því miður ekki á staðnum og því verða engin viðtöl
Víkingur R.
93. mín
InnCamilly Kristal Silva Da Rocha
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
92. mín
Thea Rhode sleppur í gegn. Stephanie er fyrir utan teiginn og Thea skýtur beint á hana. Illa farið með gott tækifæri þarna
Grindavík/Njarðvík
88. mín
InnBrynja Pálmadóttir
ÚtEmma Nicole Phillips
Víkingur R.
88. mín
Gult spjald

Emma Steinsen Jónsdóttir

87. mín
Arna Ísold Stefánsdóttir með laglegan snúning í D-boganum en skotið í varnarmann
84. mín
Emma Nicole Philips með skot sem fer af varnarmanni og í horn. Telma grípur fyrirgjöfina
Víkingur R.
81. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
Víkingur R.
81. mín
InnThea Rhode
ÚtJasmín Erla Ingadóttir
Grindavík/Njarðvík
80. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtHannah McLaughlin
78. mín
Illa farið með góðan möguleika. Santa Sanija Vuskane inn á teignum og sendir áfram á Jennings en hún nær ekki til boltans og hann rúllar út af.
Grindavík/Njarðvík
77. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
Víkingur R.
75. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
Víkingur R.
68. mín
MAAAARK!

Bergdís Sveinsdóttir (stoðsending: Jasmín Erla Ingadóttir)

Jasmín leggur boltann til vinstri á Bergdísi sem er sloppin í gegn og setur boltann yfir Stephanie.
65. mín
Stephanie Bukovec er hátt uppi á vellinum og Jasmín Erla tekur skot af löngu færi en hittir ekki á markið
63. mín
Úff.. Kristín Erla Johnson fær boltann í höfuðið af stuttu færi. Hún er staðin upp og komin aftur inn á
59. mín
Víkingar sækja hratt eftir horn hjá Gri/Nja. Gestirnir vinna vel til baka og Víkingar fá horn. Ekkert kemur út úr því
Grindavík/Njarðvík
53. mín
Gult spjald

Sophia Faith Romine

52. mín
Emersen Jennings með sendingu fyrir mark Víkings en boltinn aftur fyrir
Grindavík/Njarðvík
46. mín
InnJúlía Ruth Thasaphong
ÚtKatrín Lilja Ármannsdóttir
Það var tvöföld skipting hjá gestunum
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað
Grindavík/Njarðvík
46. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtHrafnhildur Salka Pálmadóttir
Breyting hjá gestunum í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur. Víkingar með tveggja marka forystu.
Grindavík/Njarðvík
45. mín
+3

Emersen Jennings

45. mín
Telma Ívars!
Telma á hrikalega sendingu beint á Emmu Nicole Phillips en ver frá henni. Boltinn berst til Hrafnhildar Sölku en Telma ver stórkostlega!
45. mín
Þremur mínútum bætt við
43. mín
Dagný Rún fær boltann inn á teignum en nær ekki krafti í skallann. Víkingar sterkar þessa stundina
42. mín
Bergþóra Sól vinnur boltann af Ellie Coffield við vítateig Gri/Nja en sendingin inn á teiginn finnur ekki samherja.
41. mín
Bergdís er staðin á fætur og heldur áfram
Grindavík/Njarðvík
39. mín
Gult spjald

Hrafnhildur Salka Pálmadóttir

Stígur á Bergdísi sem liggur eftir
34. mín
Bras í öftustu línu Grindavíkur/Njarðvíkur. Dagný Rún kemst í gott skotfæri en setur boltann framhjá.
31. mín
Hætta við mark Grindavíkur/Njarðvíkur. Katrín Lilja Ármannsdóttir nær að henda sér fyrir tvö skot og boltinn berst til Bergþóru Sól Ásmundsdóttir í D-boganum en skotið yfir.
29. mín
Natasha Anasi með fyrirgjöf og kollegi hennar í miðverðinum, Hannah McLauglin, er inn á teignum en hittir boltann illa með höfðinu.
27. mín
Dagný Rún Pétursdóttir vinnur boltann við vítateig Grindavíkur/Njarðvíkur. Hún á fyrirgjöf og Jasmín Erla nær boltanum og sendir fyrir markið en þar er enginn til að taka á móti boltanum.
25. mín
Jennings fær boltan á vinstri og fer inn á teiginn en skotið slakt og vel framhjá.
Víkingur R.
22. mín
Víkingur með tveggja marka forystu

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir

Mikið klafs inn á teignum eftir hornspyrnu og Áslaug Dóra kemur boltanum yfir línuna af stuttu færi
20. mín
Jasmín tekur á móti boltanum inn á teignum. Snýr baki í markið og sparkar yfir sig en þetta er auðveldur bolti fyrir Stephanie Bukovec.
19. mín
Víkingur upp úr fallsæti
Víkingur er eins og er komið af botninum og upp úr fallsæti. Fram er tveimur mörkum undir gegn Stjörnunni og er á botninum.
Víkingur R.
17. mín
MAAARK

Bergdís Sveinsdóttir (stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir)

Víkingar komast yfir. Þeirra fyrsta færi. Þórdís Hrönn með fyrirgjöf og Bergdís skutlar sér á boltann og kemur honum inn af stuttu færi.
11. mín
DAUÐAFÆRI
Jennings sleppur í gegn en setur boltann framhjá
9. mín
Hætta
Emersen Jennings með fyrirgjöf á fjær og skalli fyrir markið en enginn til að taka á móti boltanum.
8. mín
Leikurinn byrjar mjög rólega. Gestirnir halda vel í boltann en síðasta sendingin er að klikka.
4. mín
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir með fyrstu tilraunina. Skot vel fyrir utan teiginn, boltinn yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Lið Víkings er óbreytt frá 1-0 sigrinum á FH í síðustu umferð.

Katrín Lilja Ármannsdóttir, Emersen Jennings og Sigríður Emma F. Jónsdóttir koma inn í lið Víkings eftir 4-0 sigur á Fram. Birta Birgisdóttir, Elísa Birta Káradóttir og Júlía Ruth Thasaphong víkja.
Fyrir leik
Anna Björk spáir útisigri
Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður KR, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.

Víkingur R. 0 - 2 Grindavík/Njarðvík
Þægilegur sigur hjá útiliðinu. Bæði mörkin koma á fyrsta korterinu. Natasha skorar eitt mark í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Hreinn Magnússon verður með flautuna hér í dag. Jovan Subic og Rögnvaldur Þ Höskuldsson verða honum til aðstoðar. Gylfi Már Sigurðsson er fjórði dómari og Kristján Halldórsson eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrri leikurinn
Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna á mótinu. Maci Nicole Teater skoraði mark Grindavíkur/Njarðvíkur. Þetta var síðasti leikurinn hennar fyrir liðið áður en hún var seld til Bandaríkjanna. Þetta var eina mark hennar fyrir liðið í sjö leikjum.

Freyja Stefánsdóttir jafnaði metin fyrir Víking en hún hefur skorað sex mörk í 12 leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Nýliðarnir hafa verið flottir í sumar og þær sitja í 5. sæti deildarinnar.

Liðið getur tryggt sér sæti í efri hlutanum með sigri hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Víkingur hefur verið í miklu brasi á þessu tímabili og er á botninum.

Liðið vann hins vegar sterkan sigur á FH í síðustu umferð og er tveimur stigum frá öruggu sæti þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu fyrir tvískiptinguna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Víkings og Grindavíkur/Njarðvíkur í Bestu deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 14 á Víkingsvellinum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.