Fyrir leik
Guðbjörn Smári spáir útisigri
Fyrir leik
Njarðvík unnu naumlega fyrr í sumar
Liðin mættust fyrr í sumar og þar höfðu Njarðvík betur. Leikar enduðu 1-0 fyrir Njarðvík, þar sem Valdimar Jóhannsson skoraði sigurmarkið eftir 34 mínútna leik.
Fyrir leik
Dómarateymið
Sveinn Arnarsson er aðaldómari leiksins. Honum til halds og trausts eru Arnþór Helgi Gíslason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður er Viðar Helgason.


Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvík hefur átt virkilega gott tímabil í Lengjudeildinni og tryggði sér sæti í umspilinu. Liðið hefur verið sterkt í sumar og náð í nokkra flotta sigra á leiðinni. Njarðvíkingar hafa sýnt mikinn stöðugleika og verið erfiðir viðureignar fyrir flest lið deildarinnar. Nú tekur við umspilið þar sem liðið fær tækifæri til að berjast um sæti í Bestu deildinni.


Fyrir leik
Leiknir
Leiknir hefur átt frekar sveiflukennt tímabil í sumar. Liðið hefur átt góða kafla og sýnt hvað í því býr en þess á milli hafa úrslitin ekki alveg fallið með Breiðhyltingum. Stöðugleikann hefur vantað og liðið því ekki náð að halda sér í baráttunni við efstu liðin. Nú er komið að lokakafla tímabilsins og Leiknismenn vilja klárlega enda sumarið vel.


Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Leiknisvelli. Í dag taka heimamenn í Leikni á móti Njarðvík í 21. umferð Lengjudeildar karla. Leikið verður klukkan 14:00.





Leiknir R. 0 - 2 Njarðvík
Njarðvík tekur þennan leik í hörkuleik í efra Breiðholtinu. Rauðhærða undrið Arnleifur Hjörleifs skorar og leggur upp á Braga Karl.