SKÝRSLAN: Það er draumur að vera á gervigrasi
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar mættu bara mikllu grimmari til leiks. Það þurfti þó ekki að koma á óvart þar sem þeir eiga það til að keyra yfir lið á fyrstu mínútum leikja og var það nákvæmlega það sem gerðist. Magalending fyrir ÍA sem hafa verið að spila vel að vera komnir 3-0 undir eftir 20 mínútur og þá var þetta bara game over.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Breki Kárason (KR)
Sigurður Breki var ótrúlega yfirvegaður í öllum sínum aðgerðum í dag. Spilar eins og miðjumaður með 20 ára reynslu og passar ótrúlega vel inní þetta KR lið. Skorar mark í dag og er ótrúlega öflugur í litla spilinu inn á miðjunni.
2. Galdur Guðmundsson (KR)
Hefur heldur betur stigið upp síðan þeir misstu Amin Cosic og hélt uppteknum hætti í dag. Fyrra markið hans mjög vel tekið og var svo grimmur í seinna markinu. Arnar Freyr Ólafsson fær kall líka en Óskar Hrafn vildi meina að hann hefði verið maður leiksins, gefur þessu KR liði aðra vídd í spili út frá marki og gerði nokkrum sinnum vel á milli stanganna líka.
Atvikið
Fyrsta mark KR setti tóninn. Orri Hrafn sprengdi upp miðju Skagamanna, sem átti eftir að gerast nokkrum sinnum, og leggur upp á Galdur. Sjö mínútur búnar og KR strax komnir yfir.
Hvað þýða úrslitin?
KR sækja þrjú stig og koma sér upp fyrir Framara sem eiga þó leik til góða. ÍA eru ennþá í 5. sæti, jafnir Blikum að stigum en Blikar eiga leik inni gegn Fram á þriðjudag.
Vondur dagur
Þrátt fyrir að hafa skorað eina mark ÍA í leiknum þá fannst mér Markús Páll Ellertsson skugginnn af sjálfum sér í þessum leik, á stórum köflum fannst mér hreinlega eins og hann væri að spila í Timberland skóm. Þungar snertingar og sendingar sem fóru forgörðum voru algengar frá leikmanni sem hefur spilað frábærlega í sumar.
Dómarinn - 8
Mér fannst Gunnar Oddur bara gera vel í dag. Ég varð lítið vör við hann sem mér finnst helsta hrós sem dómari getur fengið. Reif upp gula kortið þegar þess þurfti en var ekkert að flauta að óþörfu.



