Fotbolti.net
Besta deildin
Viktor Ingi Valgarðsson
Besta karla - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
Nýjasta og fagrasta grasið
Stjarnan
Stjarnan
2 - 0
ÍBV
ÍBV
Benedikt V. Warén 28'1 - 0Benedikt V. Warén 32'2 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Ákvarðanir geta skipt sköpum en Stjörnumenn þægilegir

Hvað réði úrslitum?

Tveggja marka forskot Stjörnunnar í hálfleik réði úrslitum. Hefðum fengið eitthvað allt annað en það sem við fengum í seinni. Stjarnan var bara í kósý gírnum meðan ÍBV reyndi án árangurs.

Bestu leikmenn

1. Benedikt Warén

Skoraði öll mörk leiksins og þá ertur maðurinn.

2. Árni Snær Ólafsson

Árni átti góðan dag, þetta voru kannski ekki krefjandi boltar sem hann var að taka en hann sá líka mjög vel um þá.

Atvikið

79mín atvikið þar sem Kjeldsen fellur Alex Frey. Það er ótrúlegt að Helgi Mikael sjá ekki brot í þeirri tæklingu. Gerist fyrir framan hann. Held að það sé líka fyrir innan og þá hefði ÍBV væntanlega fengið víti en svo var ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er í toppsæti neðri hlutans og 11stigum frá fallsæti. Spennandi barátta um forsetabikarinn við Val framundan. ÍBV eru ennþá neðstir og stigafjöldi neðstu þriggja liða er óbreyttur eftir fyrstu umferð eftir skiptingu.

Vondur dagur

Bara einsog Linta talaði um í viðtalinu. Ákvarðanatökur fá vondan dag. Sóknarleikur ÍBV þarf að batna hratt ef þeir ætla sér að fara safna stigum til að halda sér uppi. Sóknargæðin og ákvarðanir leikmann fram á við voru off í dag.

Dómarinn - 4

Mér fannst margt skrítið í dag. Mikið af augljósum brotum sem ekki var flautað á en svo var flautað á mun minni atvik. Finnst líka ótrúlegt að hann dæmi ekki á brotið hans Kjeldsen á Alex. Hvort það hefði verið víti eða aukaspyrna, það var stór furðulegt að veifa því af.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.