SKÝRSLAN: 13 gul og 3 rauð í áhugaverðum leik
Hvað réði úrslitum?
Þetta var stál í stál, bæði lið hefðu geta unnið þennan leik. Þrátt fyrir að vera einum færri þá gat HK alveg unnið þetta. Það voru litlu mómentin sem tóku þetta, HK menn slökkva á sér í nokkrar sekúndur og Gummi Tyrfings skorar, svona fór leikurinn. Þetta var mjög áhugaverður leikur og margt hægt að ræða eftir hann.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Skoraði sigurmarkið, fyrir utan það var hann að ógna mjög mikið og átti sinn þátt í fyrra markinu.
2. Ívar Örn Jónsson (HK)
Tvær stoðsendingar í dag, föstu leikatriðin sem hann tók voru alltaf að ógna. Þessar tvær stoðsendingar voru mjög góðar. Vil nýta þennan dálk líka til þess að hrósa Jóhanni Þór sem kom flottur af bekknum hjá HK. Theodór Ingi frá Fylki var góður líka.
Atvikið
Rauða spjaldið hjá Radic breytir öllu. Þetta gerist rétt fyrir hálfleik í framlengingu og í seinni þá missa menn hausinn, 10 gul spjöld eftir það, allir að rífast og tuð frá HK bekknum. HKingar gera vel eftir að vera einum færri en spurningin er hvað myndi gerast ef þeir væru ellefu.
Hvað þýða úrslitin?
HK er dottið úr leik en Fylkir spilar á móti Þrótti á Laugardalsvelli í úrslitaleik Lengjudeildarumsspilsins.
Vondur dagur
Ólafur Kristófer í seinna markinu, spurning hvort að hann eigi að verja þetta, skallinn fer yfir hann, ég þarf að sjá endursýningu en fyrst leit þetta illa út. Radic á líka ekki að haga sér svona þótt að honum finnst að þetta var brot, mjög heimskulegt. Rauða spjaldið hjá Aroni Kristófer er eiginlega en þá verra, hann reynir ekkert að fara í boltann og þetta er bara pjúra pirringur. Aron Snær missir af leiknum gegn Þrótti með tvö gul sem bæði var hægt að sleppa, þetta var allt heimskulegt og hann veit það sjálfur.
Dómarinn - 2
Ég sá ekki hvort að Radic sparkaði eða gaf olnboga en útskýringin var að þetta var ásetningarbrot sem er auðvitað rautt. En það er klárlega brotið á Radic fyrir seinna mark Fylkis og að dómarinn sá það ekki er alls ekki gott. Svo átti HK að fá víti eftir að Jóhann Þór kemst inn í teiginn og hann er svo keyrður niður í framlengingu. Þetta var ekki allt HK, dómarinn var líka ekki góður fyrir Fylki, Gummi Tyrfings var tekinn niður rétt fyrir utan teig HK og fékk ekki neitt. Bjarki tekur Atla niður en rétt fyrir það var höndin hans Atla í hausnum á Bjarka. Þetta er ekki gott og ég skil stuðningsmenn HK mjög vel að þeir séu pirraðir eftir þennan leik.



