SKÝRSLAN: Jafnasti 3-0 leikur sem maður hefur séð lengi
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar kaflaskiptur en í heildina litið jafn leikur spilanlega séð. Munurinn á liðunum var bara sá að þegar FH náði sínum köflum skoruðu þeir mörk en KA ekki. FH gerði nóg, og KA menn geta verið mjög svekktir með sjálfa sig að gera ekki betur fyrir framan markið.
Bestu leikmenn
1. Tómas Orri Róbertsson (FH)
Skorar gullfallegt mark sem kom líka á fullkomnum tímapunkti til að gefa KA mönnum alvöru högg í magann. Hann var líka eins og ávallt harður í horn að taka á miðjunni.
2. Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Tvær stoðsendingar í leiknum, fyrri stoðsendingin var mjög góð í fyrsta markinu, en sú seinni var minna merkileg þegar hann leggur boltann á Tómas sem skoraði mark fyrir utan teig.
Atvikið
KA menn komu grimmir inn í seinni háflleikinn en fengu svo alvöru kjaftshögg sem stoppaði allan meðbyr þegar Tómas Orri skorar gullfallegt mark fyrir utan teig, og svo strax fjórum mínútum síðar verður Andre Römer fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Það batt enda á leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
FH-ingar fá smá andrúmsloft frá fallsætunum og eru nú fjórum stigum frá því. KA menn geta þakkað fyrir önnur úrslit, þar sem þeir eru enn í fallsæti en aðeins eitt stig upp í Þór sem er í sætinu fyrir ofan. Næsti leikur er einmitt KA-Þór.
Vondur dagur
Guðjón Ernir Hrafnkelsson á mikla sök í fyrsta markinu, þar sem hann og Hans Viktor líta út fyrir að vita bara ekki af Adolf sem kemur í hlaupið inn í teig. Þeir voru ekki nálægt honum þar. Auk þess fær Guðjón algjört dauðafæri í seinni hálfleik sem hann klúðrar á afskaplega klaufalegan máta. Andre Römer er eflaust líka svekktur yfir sjálfsmarkinu sem hann skorar, fyrirgjöf inn í teig sem hann reynir að hreinsa en sparkar honum bara í eigið net.
Dómarinn - 8
Arnar Þór þurfti lítið að taka erfiðar ákvarðanir, en hann var með góða stjórn á leiknum, og tók að mínu viti mest megnis réttar ákvarðanir.




